Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 32

Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 32
32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Landsins mesta úrval af settum FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Torxtoppasett 1/2”T20-T60 Vörunr. BHS9TORX Verð áður: 7.819 kr. Verð nú: 6.647 kr. Sexkant-toppasett 1/2” Vörunr. BHS9HEX Verð áður: 8.349 kr. Verð nú: 7.097 kr. 16. UMFERÐ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Enn er líf í baráttunni um Íslands- meistaratitil karla í fótbolta þetta árið. HK sá til þess með því að valta yfir KR í Kórnum og verða þar með annað liðið í sumar, á eftir Grinda- vík, til að vinna KR. Að HK hafi sprengt einhvers kon- ar „blöðru“ KR með sigrinum verð- ur að teljast ólíklegt, og kannski hafði bikarleikurinn í kvöld óæskileg áhrif á spilamennsku KR-liðsins, en staðan er að minnsta kosti sú að nú skilja sjö stig KR og Breiðablik þeg- ar sex umferðir eru eftir. Möguleikinn á að Íslands- meistarabikarinn endi í Kópavogi er því enn raunhæfur. Breiðablik þarf meiri hjálp við að éta upp fjögur stig af forskoti KR fyrir lokaumferðina, en þá gætu Blikar tryggt sér Ís- landsmeistaratitilinn með sigri gegn KR á Meistaravöllum. Leikja- dagskrá Blika er hins vegar afar strembin, þar sem liðið á eftir fjóra leiki við lið úr efri helmingi deildar- innar, en ekki er úr vegi að skoða hvaða leiki liðin tvö eiga eftir. KR: Víkingur R. (h), KA (ú), ÍA (h), Valur (ú), FH (h), Breiðablik (ú). Breiðablik: Valur (h), FH (ú), Fylkir (h), Stjarnan (h), ÍBV (ú), KR (h). Önnur lið eiga ekki raunhæfa von um Íslandsmeistaratitil. FH, HK, Stjarnan, Valur og Fylkir eru hins vegar öll með í baráttunni um 3. sæti sem færir þátttökurétt í Evrópu- keppni. Öll vonast þessi lið svo til þess að Víkingur verði ekki bikar- meistari, því ef eitthvert af efstu þremur liðunum í deildinni verður bikarmeistari mun 4. sæti í deildinni gefa þátttökurétt í Evrópukeppni. KR, Breiðablik og FH eru einmitt í efstu þremur sætunum og með Vík- ingi í undanúrslitum bikarsins í vik- unni. HK slær hinum nýliðunum við HK hleypti nefnilega ekki bara lífi í titilbaráttuna heldur kom liðið sér af fullum krafti í baráttuna um Evr- ópusæti, og fór meðal annars upp fyrir hina nýliðana í spútnikliði fyrri hluta sumars, ÍA. HK-ingar eru var- kárir í yfirlýsingum og hafa hingað til eflaust frekar horft niður fyrir sig af ótta við fallhættuna en hún ætti að vera úr sögunni núna þegar liðið er með 24 stig í 4. sæti. HK þyrfti að missa sjö lið upp fyrir sig til að falla, og slá jafnframt met Víkings Ó. sem stigahæsta liðið til að falla úr deild- inni, en Víkingar féllu með 22 stig fyrir tveimur árum. Í ljósi sögunnar eru ÍA og Fylkir ekki hólpin, með sín 22 stig í 7.-8. sæti, en Grindavík er komin niður í fallsæti eftir að Víkingur og KA unnu um helgina. Grindavík hefur aðeins unnið einn leik síðan í 5. um- ferð, en gert mörg jafntefli. Aðeins er tímaspursmál hvenær ÍBV fellur formlega og það gæti gerst strax í næstu umferð, eftir ellefu ára sam- fellda dvöl Eyjamanna í efstu deild. Þróttarinn naut sín gegn KR  Arnþór Ari Atlason var besti leikmaður 16. umferðar að mati Morgunblaðsins. Arnþór Ari hefur látið frekar lítið fyrir sér fara á leik- tíðinni en fékk 2 M fyrir frammi- stöðu sína í 4:1-sigrinum góða á KR. Arnþór skoraði fyrsta mark leiksins og það var jafnframt fyrsta mark hans fyrir HK eftir komuna frá hinu Kópavogsliðinu, Breiðabliki, í vetur. Arnþór er 25 ára gamall, uppalinn Þróttari. Hann þreytti frumraun sína í meistaraflokki með Þrótti sumarið 2010, þá aðeins 16 ára, og lék með liðinu í 1. deild út leiktíðina 2013. Arnþór var svo einn þeirra ungu leikmanna sem fengu eldskírn undir stjórn Bjarna Guðjónssonar hjá Fram sumarið 2014 og skoraði þrjú mörk fyrsta tímabilið sitt í úr- valsdeild. Árið eftir fór hann til Breiðabliks, þar sem hann lék 82 deildarleiki og skoraði 12 mörk, áður en þessi sóknarsinnaði miðjumaður skipti yfir til HK. Hann á að baki einn leik fyrir U21-landslið Íslands og tvo fyrir U19-landsliðið. Blikar aftur á sigurbraut eftir heimkomu Alfons  Breiðablik hefur unnið fyrstu tvo leiki sína eftir heimkomu Alfons Sampsted sem er besti ungi leik- maður umferðarinnar hjá Morgun- blaðinu. Blikar áttu í vandræðum eftir að Jonathan Hendrickx var seldur í sumar og höfðu ekki unnið leik síðan í júní þar til Alfons kom í hægri bakvarðarstöðuna, hversu mikil áhrif sem koma hans hefur ná- kvæmlega haft. Alfons er 21 árs gamall og hefur verið fastamaður í U21-landsliði Ís- lands, kominn með 21 leik fyrir liðið og alls 46 leiki fyrir yngri landslið Ís- lands. Hann bíður hins vegar fyrsta tækifæris síns með A-landsliðinu. Alfons er að láni hjá Breiðabliki frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Norr- köping en hann hefur lítið sem ekk- ert fengið að spreyta sig í úrvals- deildinni eftir að hann fór til Norrköping frá Breiðabliki í árs- byrjun 2017. Hann var að láni hjá Landskrona í sænsku 1. deildinni í fyrrasumar og lék þar 12 leiki. Alf- ons lék 17 leiki með Breiðabliki sum- arið 2016, fyrsta tímabil sitt í efstu deild, en hafði sumarið áður verið á láni hjá Þór á Akureyri og spilað í 1. deild. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK 14 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 13 Óskar Örn Hauksson, KR 13 Kristinn Jónsson, KR 12 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 11 Sölvi Geir Ottesen, Víkingi R. 11 Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 11 Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 10 Kolbeinn Birgir Finnsson, Fylki 10 Aron Bjarnason, Breiðabliki 9 Ásgeir Marteinsson, HK 9 Birkir Valur Jónsson, HK 9 Elias Tamburini, Grindavík 9 Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðabliki 9 Leifur Andri Leifsson, HK 9 Marcus Johansson, ÍA 9 Ólafur Karl Finsen, Val 9 Andri Adolphsson, Val 8 Björn Berg Bryde, HK 8 Brandur Olsen, FH 8 Damir Muminovic, Breiðabliki 8 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 10 Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 9 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 8 Steven Lennon, FH 7 Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 7 Markahæstir KR 89 HK 88 Breiðablik 77 Stjarnan 76 Valur 75 Víkingur 73 Fylkir 72 ÍA 72 FH 69 KA 69 Grindavík 62 ÍBV 45 Lið: Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 16. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019 3-4-3 Árni Snær Ólafsson ÍA Daði Ólafsson Fylki Birnir Snær Ingason HK Davíð Þór Viðarsson FH Kwame Quee Víkingi R. Arnþór Ari Atlason HK Óttar Magnús Karlsson Víkingi R. Pétur Viðarsson FH Alexander Freyr Sindrason HK Hallgrímur Mar Steingrímsson KA Viktor Örn Margeirsson Breiðabliki Einar Logi Einarsson, ÍA 8 Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 8 Guðmundur Kristjánsson, FH 8 Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 8 Helgi Valur Daníelsson, Fylki 8 Marc McAusland, Grindavík 8 Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 8 Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 8 Víðir Þorvarðarson, ÍBV 8 2 2 Blikar þurfa frekari hjálp  Enn líf í titilbaráttunni eftir frækinn sigur HK-inga  Fimm lið í baráttu um 1-2 Evrópusæti og halda ekki með Víkingi á morgun  Arnþór og Alfons bestir Morgunblaðið/Ómar Bestur Arnþór Ari Atlason skaraði fram úr í 16. umferð deildarinnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Besti ungi Alfons Sampsted hefur komið vel inn í lið Breiðabliks. KNATTSPYRNA Inkasso-deild kvenna Fjölnir – Tindastóll ................................. 0:1 Murielle Tiernan 80. Afturelding – Haukar ............................. 2:3 Hafrún Halldórsdóttir 63., Darian Powell 90. – Sierra Lelii 44.,66., Vienna Behnke 82. ÍA – ÍR ....................................................... 1:0 Bryndís Rún Þórólfsdóttir 55. FH – Grindavík ........................................ 3:0 Birta Georgsdóttir 40., Valgerður Ósk Valsdóttir 79., Aldís Kara Lúðvíksdóttir 90. Augnablik – Þróttur R. ........................... 1:7 Ásta Árnadóttir 63. – Andrea Rut Bjarna- dóttir 1., 29., Margrét Sveinsdóttir 24., 45., Jelena Tinna Kujundzic 33., Linda Líf Boama 82., Katrín Rut Kvaran 83. Staðan: Þróttur R. 13 11 0 2 56:10 33 FH 13 10 2 1 41:15 32 Tindastóll 13 7 1 5 32:31 22 Haukar 13 7 0 6 19:15 21 Afturelding 13 6 2 5 25:17 20 ÍA 13 4 4 5 15:16 16 Grindavík 13 3 5 5 18:24 14 Augnablik 13 4 2 7 10:20 14 Fjölnir 13 3 3 7 16:30 12 ÍR 13 0 1 12 3:57 1 4. deild karla C Stokkseyri – GG ....................................... 1:2 Fenrir – Berserkir ................................... 0:4 Meistaradeild kvenna Undanriðill í Sarajevo: Sarajevo – Breiðablik ...............................1:3 Dragon – ASA Tel Aviv ............................0:7 Staðan: Breiðablik 3 3 0 0 18:2 9 Sarajevo 3 2 0 1 7:3 6 ASA Tel Aviv 3 1 0 2 8:5 3 Dragon 3 0 0 3 0:23 0 Meistaradeild karla 3. umferð, seinni leikur: Ajax – PAOK ............................................ 3:2  Sverrir Ingi Ingason sat á varamanna- bekk PAOK.  Ajax áfram, 5:4 samanlagt. Porto – Krasnodar................................... 2:3  Jón Guðni Fjóluson kom inn á hjá Kras- nodar á 65. mínútu.  Krasnodar áfram á fleiri mörkum skor- uðum á útivelli. England Deildabikar, 1. umferð: WBA – Millwall ........................................ 1:2  Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn með Millwall. Brentford – Cambridge .......................... 1:1  Patrik Sigurður Gunnarsson var vara- markvörður Brentford sem tapaði í víta- spyrnukeppni. Wycombe – Reading................................ 1:1  Jökull Andrésson var ekki í leikmanna- hópi Reading sem vann í vítaspyrnukeppni. Frakkland Deildabikar, 1. umferð: Grenoble – Rodez .................................... 1:1  Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í leikmannahópi Grenoble sem vann í víta- spyrnukeppni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.