Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 17
hann einnig frægur flugmaður í Bí- afra-stríðinu í Afríku. Þorsteinn var eini Íslendingurinn til að fljúga hjá „Royal Air Force í heimsstyrjöldinni. Þorsteinn lést árið 2001, 80 ára að aldri. 4. Charles Lindberg varð frægur fyrir að fljúga fyrstur einsamall yfir Atlantshaf árið 1927. Hann var senni- lega orðinn veikur þegar ég sendi honum umslögin, en ég fékk þau end- ursend án undirskriftar. Lindbergh sem var af sænskum ættum, hann lést árið 1974. Eins og áður kom fram var Neil Armstrong stjórnandi ferjunnar. Edwin (Buzz) Aldrin var flugmaður og fóru þeir tveir saman niður á yf- irborð tunglsins meðan félagi þeirra Michael Collins stjórnaði stærri ferj- unni sem beið þeirra, reiðubúinn til heimferðar. Armstrong mælti fyrstu orðin við komuna til tunglsins, en þau eru einmitt á fyrsta dags umslaginu: That́s one small step for man, one gi- ant leap for mankind. Það má segja að lending Apollo 11 á tunglinu hafi verið lokakaflinn í geimkapphlaupi Sovétríkjanna og Bandaríkjanna í kalda stríðinu. Upp- haflegu hugmyndina að ferðinni átti John F. Kennedy Bandaríkjaforseti árið 1961 í ræðu þar sem hann sagði m.a.: „áður en þessi áratugur er allur, skal það verða takmark okkar að menn komist til tunglsins og til baka aftur, heilir á húfi“. Ég man eftir þessum orðum hans, en ég var þá rúmlega tvítugur að aldri. Kennedy forseti var boðberi nýrra hugmynda og breyttra tíma. Hann var dáður víða um heim, sérstaklega af ungu fólki, en hann lifði það ekki að sjá þennan draum sinn rætast. Hann var myrtur í nóvember 1963 eftir að hafa verið aðeins rúmlega tvö ár í embætti. Hann var þá 46 ára að aldri. Höfundur er fv. framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi og Skógarmaður KFUM. UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Í frumstæðum þjóð- félögum eru til menn sem kallast töfralækn- ar eða töframenn. Þeir skreyta sig oft með fjöðrum, skeljum og beinum og öðru þess háttar og dansa í kringum varðeld með fettum og brettum. Síðan veitast þeir að höfðingjanum og tjá honum að mikil ógn sé fram undan ef ekki verði farið að ráðum þeirra. Þeir baða jafnvel viðkomandi í dýrablóði eða bara drullu og segja honum að það geti komið í veg fyrir bölið og vilja þá einnig fá ríflega umbun fyrir þjónustuna. Í nútímaþjóðfélögum kalla staðgenglar þessara manna sig sérfræðinga og starfsaðferðir þeirra hafa lítið breyst. Flestir sérfræð- ingar gefa sig út fyrir að leysa vanda- mál en ef vandamál eru ekki fyrir hendi þarf að gefa út svartar skýrslur. Síðan er saklausum valda- mönnum sagt að ef ekki verði gripið til öfgakenndra aðgerða muni allt fara til andskotans. Til að fyrirbyggja að aðrir blandi sér í málið er sagt að það sé mjög flókið og ekki á færi annarra en fær- ustu sérfræðinga að leysa það. Sér- fræðingar hafa jafnvel fengið stjórn- málamenn til að setja í lög að þeir hafi einkarétt á að veita þá þjónustu sem um er rætt. Þeir hafa komið því þannig fyrir að ef svo ólíklega vildi til að aðrir yrðu teknir fram yfir þá hafi þeir jafnvel skaðabóta- rétt á hendur valdhafan- um, sem oftast er ríkið. Þetta eru að sjálfsögðu mannréttindabrot á þeim sem ekki hafa afl- að sér tilskilinna sér- fræðiréttinda en eru oft á tíðum miklu hæfari en umræddir sérfræð- ingar. En hvað um það, Kristján, þar sem við er- um nú einu sinni félagar og höfum svipaðar skoð- anir á frelsinu og ýms- um öðrum þáttum mannlegra sam- skipta, að mér skilst, ætla ég að veita þér ókeypis ráðgjöf um hvernig þú gætir fengið sannleikann fram með réttum spurningum. Svörin þurfa ekki að vera hárnákvæm en þurfa að vera í tölum. 1. Hver var meðalfjöldi hrogna ís- lenska þorskstofnsins árlega það tímabil sem nýliðun hans var að með- altali 200 milljónir nýliða á ári? 2. Hver var meðalfjöldi hrogna ís- lenska þorskstofnsins undanfarin 10 ár og hver var meðalnýliðafjöldinn þau ár? 3. Hversu mikið þarf að auka hrognaframleiðslu íslenska þorsk- stofnsins svo nýliðun hans verði nógu mikil að mati Hafrannsóknastofn- unar og ICES? 4. Hversu mikla fæðu (orku) þarf stofn sem hrygnir nógu mörgum hrognum til að nýliðun íslenska þorskstofnsins sé nægjanleg að mati Hafrannsóknastofnunar og ICES? 5. Hver var meðalveiði þau tímabil sem spurt er um í spurningum 1 ann- ars vegar og 2 hins vegar? Ef þú færð heiðarleg svör við ofan- greindum spurningum, Kristján, muntu komast að raun um að mest samræmi er milli afla og nýliðunar og oftast er öfugt samræmi milli hrogna og nýliðunar. Ef tölvur Hafrannsóknastofnunar ráða ekki við að svara viðkomandi spurningum innan mánaðar eða svo hljóta þær að vera bilaðar. Nú er það svo, Kristján, að ég er ellilífeyrisþegi og er að verða búinn að vinna upp í þann launakvóta sem mér er ætlaður í ár áður en ég þarf að greiða ríkinu 80% vinnulauna minna. Ég verð því að fara þess á leit við þig að þú umb- unir mér svart það lítilræði sem þér finnst ég eiga skilið ef þú vilt fá mig til að útskýra betur fyrir þér hvernig töframenn svörtu skýrslnanna höfðu af þjóðarbúinu u.þ.b. fimm milljóna tonna þorskafla á aldarfjórðungi og annað eins eða meira í hliðartegund- um og loðnu. Ég ætla ekki að reyna að reikna út verðgildi þessa tjóns því þá verður hrunið svo lítið í saman- burði og það kann að valda leiðindum hjá því fólki sem missti störfin sín á sjúkrahúsunum og annars staðar þegar Hafró fór með þorskkvótann niður fyrir 200 þúsund tonn til að byggja upp hrygningarstofninn. Nýlega sá ég eftir þér haft að hornsteinn fiskveiðistjórnunar á Ís- landi væri að fara eftir vísindalegri ráðgjöf. Mér er því ljóst að enn um sinn verður stiginn dans í kringum hinn rándýra gullkálf. Hvernig væri að fjárfesta í strápilsum fyrir Hafró til að særa ekki blygðunarkennd okk- ar sem enn nennum að horfa á aðfar- irnar? Virðingarfyllst. Opið bréf til sjávarútvegsráðherra – töfralæknar nútímans Eftir Sveinbjörn Jónsson Sveinbjörn Jónsson » Flestir sérfræðingar gefa sig út fyrir að leysa vandamál en ef vandamál eru ekki fyrir hendi þarf að gefa út svartar skýrslur. Höfundur er sjómaður og ellilífeyrisþegi. svennij@simnet.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.