Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Kynnum nýjan farða Ultra Le Teint Velvet ásamt haustlitunum 2019. Gréta Boða verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf Chanel kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 14.-16. ágúst 20% afsláttur af CHANEL vörum kynningardagana Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Síðustu daga hef ég fengið ótelj- andi símtöl frá konum hér í Reykjavík og víða af landinu sem gráta að við séum að loka versl- uninni. Hér hafi þær alltaf fengið fötin sem þær vanti og nú viti þær ekki hvert þær geti snúið sér,“ segir Erla Sigurðardóttir kaup- maður. Starfsemi Verðlistans, einnar elstu og þekktustu fataverslunar í Reykjavík, verður hætt eftir dag- inn í dag. Síðustu daga hefur verið útsala í búðinni og flest er farið, enda eru flíkurnar á frábæru verði. Margar konur hafa svo litið inn í þeim tilgangi að þakka fyrir þjónustu í áratugi. Fyrir fertugar og eldri Hjónin Kristján Kristjánsson og Erla Wigelund stofnuðu kvenfata- verslunina Verðlistann árið 1965. Vöruúrvalið er gott: buxur, pils, kjólar, blússur, kápur og svo mætti áfram telja. Að bjóða upp á góðan fatnað fyrir konur fertugar og eldri var jafnan leiðarljós Erlu og Þorbjargar dóttur hennar, Bobbu, eins og hún er jafnan köll- uð, en hún starfaði í Verðlistanum allt fram á síðasta ár. Mæðgurnar sóttu mikið vörusýningar í Dan- mörku og Þýskalandi og fylgdust vel með straumum og stefnum í tískuhúsum í útlöndum. „Erla, amma mín, stóð vaktina hér í Verðlistanum til 2014 en dró sig þá í hlé enda orðin þreytt. Eft- ir það kom ég meira inn í rekst- urinn með Bobbu móður minni, en ég hef annars verið viðloðandi fyrirtækið síðan á unglingsárum. Árið 2016 fluttum við verslunina af Laugalæk, þar sem hún hafði verið frá upphafi, hingað á Suður- landsbraut 30. Á síðasta ári brast svo heilsa móður minnar svo hún átti ekki afturkvæmt til starfa og þá ákvað ég að prófa að vera kaupmaður í eitt ár,“ segir Erla sem með sínu fólki þurfti því að vega og meta stöðuna og ákveða hvað gera skyldi. Búðarkonan áfram kennari „Já, aðstæður í þessum rekstri hafa breyst og niðurstaðan varð því sú að loka og hætta því enginn kaupandi fannst að búðinni. Mér finnst vissulega gaman að vera búðarkona en slíkt er þó bindandi og afkoman sveiflukennd. Ég ákvað því að halda áfram sem grunnskólakennari eins og ég hef gert síðastliðin tuttugu ár. Að vera í öruggu starfi og fá föst laun um hver mánaðamót finnst mér líka ómetanlegt,“ segir Erla sem starfar við Varmárskóla í Mos- fellsbæ og sinnir þar kennslu í yngstu bekkjunum. Erla lýsir síðustu dögum í Verð- listanum sem andlegri rússíbana- ferð. Tilfinningarnar hellist yfir sig, en ekki síður viðskiptavini sem haldið hafi tryggð við versl- unina í áratugi. Sumir frá því hún var stofnuð. Þeim vilji eigendur verslunarinnar þakka samfylgdina. „Allt hefur sinn tíma,“ segir Erla, sem lokar Verðlistanum í síðasta sinn klukkan 17 í dag. Merkum kafla í verslunarsögu Reykjavíkur sem spannar 54 ár er að ljúka. Síðasti dagurinn í Verðlistanum  Sögulok í vinsælli verslun í Reykjavík  Starfrækt frá 1965  Buxur, pils, kjólar, blússur og kápur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sögulok Erla Sigurðardóttir og dóttirin Sæunn Erla loka búðinni. Ljósmynd/Úr einkasafni Mæðgur Erla Wigelund og dóttirin Þorbjörg störfuðu saman í áratugi. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Alls höfðu í gær 27 kaupendur þekkst boð Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni um afslátt af kaupverði íbúða við Árskóga 1-3 sem lagt var fram að kvöldi fyrradags. Með tilboðinu leitar félagið eftir sáttum við kaupendurna vegna íbúðakaupanna, en FEB tilkynnti um verðhækkun á íbúðunum sem numið gat allt að 11%. Með afslætt- inum eru íbúðirnar seldar 6,9% yfir kaupsamningsverðinu. Ekki fengust um það upplýsingar hvort einhverjir hefðu hafnað sáttatilboði FEB. Sigríður Snæbjörnsdóttir, vara- formaður stjórnar FEB, segir að til- boðið hafi mælst vel fyrir hjá íbúum. „Það er aðeins einn sólarhringur frá því þetta var sett út og rætt var við einhverja kaupendur í dag. Al- mennt segja þeir sem komu í viðtal að andinn hafi batnað og fólk hafi áttað sig betur á því að það fái íbúð- irnar á góðu verði,“ segir hún. „Þetta kom auðvitað illa aftan að fólki og all- ir fóru í ákveðinn gír. Það er jákvæð- ari tónn í fólki og sumir hafa komið aftur til að skrifa undir eftir að hafa hugsað málið,“ segir Sigríður. Enn er lagalegur ágreiningur Í gærmorgun voru teknar fyrir beiðnir tveggja kaupenda um inn- setningargerðir til afhendingar lykla að íbúðum þeirra. Daði Bjarnason, lögmaður FEB, fékk frest til næsta miðvikudags til að leggja fram grein- argerð í málinu. Hann segir það vera von félagsins að hægt sé að finna lausn í málinu. „Þetta sáttatilboð sem lagt var fram hefur mælst mjög vel fyrir. Fé- lagið undirbýr sína greinargerð og mun gera það þangað til fresturinn er liðinn. Fram að því verður haldið áfram að leita lausna. Það er stað- an,“ segir hann, en varnir FEB í málinu eru m.a. þær að ómöguleiki sé fyrir afhendingu þar sem félagið hafi ekki lykla að íbúðunum. Í samtali við mbl.is í gær sagði Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, lög- maður íbúðarkaupanda, að enginn ómöguleiki væri til staðar. „Það er alveg ljóst að Félag eldri borgara var eigandi, þeir seldu eignina og það er enginn ómöguleiki að afhenda slíka eign,“ sagði hún. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður hins íbúðar- kaupandans, sagði FEB ekki eiga sér neinar varnir. Félagið „kokkaði upp varnir“ til að drepa málinu á dreif og gera stöðu þeirra sem ekki fengju íbúðir sínar afhentar erfiðari. „Ég veit ekki hvaða hagsmuna fé- lagið er að gæta með því að reyna að draga úrlausn þessarar kröfu. Ég átta mig hreinlega ekki á því hvað fé- laginu gengur til,“ sagði hann. 27 kaupendur samþykkt að greiða hærra verð  FEB segir sáttatilboðið mælast vel fyrir  Fyrirtaka í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrætuepli Blokkin sem um ræðir stendur í Seljahverfi í Breiðholti, en búið er að leggja fram tilboð til að ná sáttum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.