Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þau óvæntutíðindi urðuum helgina,
að Mauricio Macri,
forseti Argentínu,
laut í lægra haldi
fyrir Alberto Fernández í sér-
stökum forkosningum, en kosið
verður um bæði forseta og þing í
október næstkomandi. Forkosn-
ingunum er ætlað að skera niður
fjölda frambjóðenda til embætt-
isins, en þar sem allir kosn-
ingabærir menn eru skyldaðir til
þátttöku þykja þær einnig gefa
sterka vísbendingu um hvert
stefnir í kosningunum sjálfum.
Hin óvæntu úrslit hafa eink-
um verið skýrð með því að hinn
almenni Argentínubúi sé orðinn
þreyttur á aðhaldsaðgerðum
sem ríkisstjórn Macris hefur
ráðist í, en efnahagur landsins
hefur ekki beinlínis staðið styrk-
um fótum á undanförnum árum.
Þrátt fyrir aðhaldsaðgerðirnar,
sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefur kallað eftir, er landið enn
fast á samdráttarskeiði, og
gjaldmiðillinn hefur gefið eftir
gagnvart bandaríkjadal á árinu
vegna mikillar verðbólgu.
Engu að síður hafa fjárfestar í
Argentínu talið Macri vænlegri
kost til að rétta skútuna af en
Fernández, sem er Peronisti og
sat í ríkisstjórnum þeirra Ne-
stors Kirchners heitins og síðar
eiginkonu hans, Christinu Fern-
ández de Kirchner, sem býður
sig nú fram sem varaforsetaefni
Fernández. Ríkisstjórnar henn-
ar er einkum minnst fyrir stór-
tæk og misheppnuð
inngrip ríkis-
valdsins inn í efna-
hagslíf þjóðarinnar
og urðu úrslit helg-
arinnar til þess að
koma af stað miklu áhlaupi á
hlutabréfa- og gjaldeyrismark-
aði Argentínu, og þar með var
ýtt enn undir hið alvarlega efna-
hagsástand sem landið glímir
við. Þá hefur staðan vakið ótta
um að landið muni ekki geta
staðið við skuldbindingar sínar á
næstu árum.
Enn er langt til forsetakosn-
inganna sjálfra, en bilið milli
þeirra Macris og Fernández var
um 15 prósentustig. Þá hlaut
Fernández rúm 47% atkvæða,
sem myndu duga honum til þess
að vinna embættið án þess að
kjósa þyrfti í seinni umferðinni.
Macri hefur því verk að vinna til
þess að snúa löku gengi sínu við,
og hefur því jafnvel verið velt
upp að hann muni leita til Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins um leyfi
til að létta á aðhaldsgerðunum.
Hvort það dugi til er alls óvíst,
en takist honum að tryggja sér
endurkjör gæti vel verið að efna-
hagurinn hafi hlaupið endanlega
frá honum.
Hvað Fernández snertir er
hann nú undir þrýstingi að út-
skýra frekar tillögur sínar í
efnahagsmálum, í þeirri von að
hann geti róað fjárfesta. Dugi
það ekki til gæti hann sömuleiðis
hafa unnið Pyrrhosarsigur þeg-
ar atkvæðin verða talin í októ-
ber.
Óvænt úrslit í
forkosningum
skekja Argentínu}
Pyrrhosarsigur
í vændum?
Það hefur vakiðundrun, svo
ekki sé meira sagt,
að forysta Sjálf-
stæðisflokksins
gefur til kynna að
hún muni hunsa
beiðni flokksfólks-
ins um endur-
skoðun á stórfelldri eftirgjöf
fullveldis þjóðarinnar með
gjörningnum sem kallaður er
Orkupakki 3. Formaður flokks-
ins sagði við þjóðina úr ræðu-
stól Alþingis að orkupakkaað-
gerðin væri óskiljanleg!
Beiðni flokksfólksins, sem á
að hunsa, er með hliðsjón af
þröngri reglu sem núverandi
forysta hafði frumkvæði að
2011. Ef þúsundir flokksbund-
inna óska eftir því að ákvörðun
sem gengur gegn opinberum
yfirlýsingum formannsins og
ákvörðunum Landsfundar sé
endurmetin er sjálfsagt að
verða við því, hvað sem nýrri
reglu líður. ESB blindingjar í
Íhaldsflokknum breska full-
yrtu að þjóðin sæi eftir ákvörð-
uninni í þjóðaratkvæði. Ekkert
bendir til þess. Jón
Magnússon lög-
maður og fyrrver-
andi alþingismaður
flokksins segir:
Í nýrri skoð-
anakönnun, sem
gerð var fyrir stór-
blaðið „The Daily
Telegraph“ kemur fram, að
54% kjósenda í Bretlandi
styðja áform forsætisráðherra
landsins um útgöngu Breta úr
ESB án samnings og leysa
þurfi þingið upp til að koma í
veg fyrir að þingmenn stoppi
útgöngu Breta úr því. Í þessari
sömu skoðanakönnun kom
einnig fram, að níu af hverjum
10 aðspurðra töldu að þingið
væri ekki í sambandi við al-
menning í landinu og 89% telja
að flestir þingmenn virði ekki
óskir kjósenda sinna en fari
sínu fram í Brexit málum.
Það er skaðlegt þegar full-
trúalýðræðið er komið á það
stig, að meirihluti kjósenda
telur að fulltrúar sínir taki
ekki lengur tillit til skoðana
sinna.“
Í Bretlandi hafði
myndast gjá á milli
forystu Íhalds-
flokksins og
kjósenda hans.}
Gjá á milli flokks og forystu
N
ú þegar hillir undir lokaátök
um 3ja Orkupakkann grípa
meðmælendur hans til
þekktra vopna í baráttu
sinni fyrir erlenda hags-
muni. Nú sem fyrr er klifað á því sem
gert var eða ekki gert fyrir 6 árum eins
og það skipti sköpum um ákvarðanir
dagsins í dag. Enn sem fyrr er hræðslu-
áróðurinn dreginn fram um að EES samn-
ingurinn sé fyrir bí verði OP 3 hafnað.
Hvort tveggja er alrangt. Forystumenn
Sjálfstæðisflokksins eru í keppni um hver
þeirra getur niðurlægt grasrót sína mest.
Sjálfstæðismenn eru boðaðir til fundar til
þess eins að formaður flokksins geti sagt
þeim að þeim komi þetta mál ekkert við
og að undirskriftir þeirra, þúsundir, skipti
ekki máli. Þingflokkurinn sé með málið. Bætt er um
betur og sagt að þingflokkurinn geti ekki sveiflast
eftir óánægjuröddum í flokknum enda er „alltaf
þægilegast að vera svoleiðis stjórnmálamaður að
hlusta bara á sjálfan sig og taka tillit til eigin sam-
visku í þessu málum“. (SÁA) Engum sögum fer af
því í hvers umboði þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
situr. Það mun samt á endanum koma í ljós. Ritari
flokksins lætur ekki sitt eftir liggja og afneitar öll-
um varnaðarorðum sem fram hafa komið af höndum
færustu lögspekinga um áður óþekkt valdaafsal, um
að stjórnarskráin sé þanin til hins ýtrasta og að s.k.
lagalegir fyrirvarar séu ekki pappírsins virði. Enda
„er það fyrst nú upp á síðkastið sem andstaða við
það hefur sprottið upp og stórar full-
yrðingar sett-ar fram um meintar skelfi-
legar afleiðingar þess.“ (ÁAS) Utanrík-
isráðherrann og „wannabe“ formaður
Sjálfstæðisflokksins hefur þó kannski
komið sterkastur inn með stærstu frétt-
irnar. Hér á Íslandi eiga að hafa verið
flokkar norskra flugumanna (m.a. úr
norska Miðflokknum) til að stunda hér
undirróður. „Við Íslendingar eigum sjálf-
ir að ráða okkar málum“ segir utanrík-
isráðherrann „og þess vegna skulum við
samþykkja OP3 frá Brüssel.“ RUV kran-
inn lekur þessu gagnrýnislaust en með
athyglisverðum myndskreytingum.
Norskir stjórnmálamenn og samtök hafa
rekið mál vegna hluta innleiðingar OP3 í
Noregi. Það verður tekið fyrir eftir
nokkrar vikur fyrir stjórnlagadómstóli í Noregi en
hví getum við ekki beðið niðurstöðu hans áður en
við undirgöngumst OP3? Hví getum við ekki staldr-
að við og gaumgæft þau málaferli vegna meintrar
rangrar innleiðingar sem í gangi eru? Við gætum
örugglega margt lært af þeirri lesningu en í staðinn
gengur ríkisstjórnin ákveðin í spori að bjargbrún-
inni og mun ekki láta þar staðar numið. Lokaspurn-
ingunum er þó enn ósvarað! Hví liggur svo á að inn-
leiða OP3? Hverra hagsmunir kalla á innleiðingu
pakkans?
Þorsteinn
Sæmundsson
Pistill
Hroki og hleypidómar
Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi suður. thorsteinns@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Þjónustan sem Trappa ráð-gjöf á Akureyri veitir erfyrst og fremst sér-fræðiþjónusta til starfs-
fólks, kennara, skólastjóra og sveit-
arstjórnarmanna. Við sinnum
einnig fjarkennslu fyrir sjötta til tí-
unda bekk og í Reykjavík sinnir
Trappa talþjálfun í fjarþjónustu,“
segir Kristrún Lind Birgisdóttir,
framkvæmdastjóri Tröppu ráð-
gjafar, en 15 manns starfa undir
merkjum fyrirtækisins.
Tinna Sigurðardóttir, tal-
meinafræðingur og framkvæmda-
stjóri Tröppu í Reykjavík segir
fyrirtækið stofnað 2014.
„Við byrjuðum með einn tal-
meinafræðing en nú eru þeir fimm.
Skjólstæðingum okkar sem
skiptast jafnt milli landsbyggðar og
höfuðborgarsvæðis hefur fjölgað
um 76% frá stofnun Tröppu og nú
þjónustum við 10% af markaðnum,“
segir Tinna sem bætir við fjarþjón-
usta frá sérfræðingum fari fram í
gegnum Köru connect sem er fjar-
fundarbúnaður fyrir sérfræðinga
vottaður af landlækni.
Tinna segir að skortur á tal-
meinafræðingum og flókið samspil
greiðsluþátttöku ríkisins og sveit-
arfélaga hafi komið í veg fyrir
ásættanlega þjónustu sérstaklega í
dreifðari byggðum. Nú sé hins veg-
ar talmeinafræðingum að fjölga eft-
ir að námið hófst hér á landi. Tinna
segir Tröppu einblína fyrst og
fremst á að veita hjálp sem allra
fyrst í stað þess að horfa á biðlista.
„Á síðasta ári var þjónusta tal-
meinafræðinga, námsráðgjafa og
atferlisráðgjafa að meðaltali 266
tímar á mánuði hjá Tröppu.
Tinna segir að í þjónustu-
könnunum sem sé hluti af gæða-
mati hafi komið fram að 84% þjón-
ustuþega Tröppu telji sig læra
aðferðir sem þeir geti nýtt í starfi,
72% hafi nýtt efni sem þeim hefur
verið bent á. 94% telji gott eða
mjög gott að eiga samskipti við
sérfræðing og 100% vilji halda
þjónustunni áfram. Tinna segir
tíðni afboðana í fjarþjónustu á
einkareknum stofum vera almennt
25% en hjá Köru sé hún 6%.
Bæta þarf almenna kennslu
„Við sjáum um fjarkennslu í
sjötta til tíunda bekk í þremur fá-
mennum skólum. Öll kennsla fer
fram í gegnum vefinn. Kennarinn
er aldrei á staðnum en hittir nem-
endur einu sinni til tvisvar á ári,“
segir Kristrún og bætir við að
Trappa ráðgjöf hafi þróað starfs-
hætti í kennslu sem geri nem-
endum kleift að stunda fjarnám án
aðstoðar á staðnum. Kristrún segir
Tröppu ráðgjöf leggja áhersluna á
að styðja og fræða þá sem koma að
kennslu og einblína á að koma til
móts við fjölbreyttar þarfir nem-
enda á öllum skólastigum. 15 sveit-
arfélög nýta sér nú þjónustu
Tröppu á öllum skólastigum. Krist-
rún segir að fram komi í skýrslunni
„Menntun fyrir alla á Íslandi“ að
meirihluti fjármagns fari í sér-
kennslu í stað þess að styðja þá
sem koma að kennslunni í því skyni
að auka gæði kennslunnar. Sér-
kennslu þurfi að minnka og al-
menna kennslu þurfi að bæta.
Kristrún telur að foreldrar eiga að
fá að taka markvissari þátt í skóla-
starfi. Að mati Kristrúnar þarf
nám að breytast frá því að fara
fram eingöngu í gegnum skólabæk-
ur í ljósi þess að í dag geti nem-
endur náð sér í fræðslu alls staðar.
Styðja og fræða þá
sem koma að kennslu
Sérfræðingar Tinna Sigurðardóttir og Kristrún Lind Birgisdóttir, fram-
kvæmdastjórar Tröppu, sinna bæði fjarþjálfum og sérfræðiþjónustu.
„Við eigum að breyta starfs-
háttum úr eyðufyllingum og
kaflaskilum yfir í skapandi
starfshætti. Það þýðir að
kennsla á að byggjast á því sem
nemandinn kann, getur og hefur
áhuga á. Við þurfum að koma
okkur inn í starfshætti nútímans
og nota öll tæki og tól til að
byggja upp einstaklingsmiðaðra
nám þar sem horft er á vöxt
hvers barns frekar en að bera
þau saman,“ segir Kristrún Lind
Birgisdóttir, sem bendir á að við-
miðun í námi ætti að vera líkari
vaxtarkúrfu ungbarna þar sem
eðlilegt þyki að börn geti bæði
verið yfir henni eða undir, en það
eina sem skipti máli sé hvort
vaxtarlína barnsins sé samfelld
og ef ekki þá sé gripið til að-
gerða. Kristrún segir að sömu
viðmið eigi að vera í skólastarfi.
Nám eigi að vera náttúrulegt og
skemmtilegt samstarfsverkefni
þar sem barnið þekki markmið
sín og kennarinn leiðbeini.
Náttúrulegt og
skemmtilegt
NÝIR KENNSLUHÆTTIR