Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 30
Í árdaga Sjónvarpsins Pétur á skrifstofu sinni á Laugavegi 176. vík en var síðar prófdómari í frönsku á stúdentsprófum í MR og MH á meðan það fyrirkomulag var við lýði. Pétur var í stjórn Rótarýklúbbsins Reykjavík-Austurbær 1975-1980, þar af forseti 1978-1979. Hann tók mikinn þátt í evrópsku og norrænu samstarfi á sviði sjónvarpsmála og var formað- ur Nordvision, samtaka norrænna sjónvarpsstöðva, 1988-1991. Hann sat í stjórn Norræna sjónvarpssjóðsins frá stofnun hans 1987 og átti um tíma sæti í alþjóðlegri dómnefnd Jean d’Arcy-sjónvarpsverðlaunanna. byggði Pétur upp erlent tengslanet við seljendur sjónvarpsefnis. Eftir að Sjónvarpið hóf útsendingar 30. sept- ember 1966 sá Pétur einnig um dag- skrárstjórn. Í samvinnu við Lands- síma Íslands var jafnframt unnið að uppbyggingu dreifikerfis Sjónvarps- ins. Pétur var framkvæmdastjóri Sjón- varpsins allt til ársins 1996; var hann þá skipaður útvarpsstjóri en fór á eftirlaun árið 1997. Á árunum 1968-1970 kenndi Pétur frönsku í Menntaskólanum í Reykja- P étur Guðfinnsson er fædd- ur 14. ágúst 1929 á Eski- firði, þar sem foreldrar hans bjuggu tímabundið, en flutti ársgamall til Reykjavíkur og ólst þar upp síðan, fyrst í Mjóstræti 2, síðan á Hring- braut 48 og loks á Víðimel 38. Auk foreldra og systkina voru þeir jafnan til heimilis með þeim Pétur Þórðar- son, móðurafi Péturs, og Erlendur Ó. Pétursson, móðurbróðir Péturs og formaður KR. Pétur dvaldi fjögur sumur í sveit hjá frændfólki, þar sem hann komst í kynni við sveitabúskap með gamla laginu. Annars vegar dvaldi hann á Þursstöðum í Borgar- hreppi og hins vegar þrjú sumur í Álftagróf í Mýrdal. Pétur var í Miðbæjarskólanum í Reykjavík, Gagnfræðaskóla Reykvík- inga og tók stúdentspróf (stærð- fræðideild) frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1949. Hann hélt til náms í París haustið 1949 og stundaði nám í frönsku og franskri menningu og hlaut prófgráðuna Diplôme de Civilisation Française vorið 1950. Hann stundaði jafnframt nám í stjórnmálafræði við Sorbonne- háskóla í París og við háskólann í Grenoble og lauk þar námi með Dip- lôme d’Études Politiques vorið 1952. Hann stundaði nám í hagfræði og sögu við Kaupmannahafnarháskóla 1953-1954. Pétur var ritari íslensku sendi- nefndarinnar á þingi Evrópuráðsins 1953-1955 og starfaði jafnframt um tíma í sendiráði Íslands í París. Hann var starfsmaður Evrópuráðsins 1955- 1964 með aðsetur í Strassborg í Frakklandi. Fyrst starfaði hann í stjórnsýsludeild en síðan í félags- máladeild ráðsins, sem sinnti ýmsum samevrópskum verkefnum á sviði félagsmála. Hinn 1. desember 1964 var Pétur skipaður fyrsti starfsmaður fyrir- hugaðs Sjónvarps sem setja átti á laggirnar innan vébanda Ríkis- útvarpsins. Hann vann að stefnumót- un fyrir hinn nýja miðil og að því að finna starfslið og útvega því menntun við hæfi og átti Sjónvarpið þar greið- an aðgang að norrænum sjónvarps- stöðvum. Jafnframt þurfti að finna hentugt húsnæði Sjónvarpið. Þá Pétur var fulltrúi Íslands í fjölmiðla- nefnd Evrópuráðsins seinustu starfs- árin. Pétur er mikill áhugamaður um ættfræði og var formaður ritnefndar ritsins Engeyjarætt. Helsta áhuga- mál Péturs er lestur góðra bóka og þá hefur hann ávallt verið áhugasamur um heilsurækt og hefur mestalla æv- ina stundað bæði göngur og sund. Pétur verður að heiman í dag. Fjölskylda Eiginkona Péturs var Stella Sigur- leifsdóttir, f. 12. janúar 1928, d. 22. apríl 2003, fulltrúi í Kópavogi. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurleifur Vagnsson, f. 18. júlí 1897, d. 2. janúar 1950, bókhaldari á Bíldu- dal og síðar starfsmaður Háskóla Ís- lands, og Viktoría Kristjánsdóttir, f. 12. ágúst 1899, d. 21. apríl 1972, hús- freyja. Börn Péturs og Stellu: 1) Ólöf Kristín Pétursdóttir, f. 28. desember 1954, þýðandi í Frakklandi. Maki: Jóhannes Karlsson hagfræðingur; 2) Áslaug Helga Pétursdóttir, f. 3. des- ember 1957, d. 26. júlí 2002, kennari í Barcelona. Maki: Luis Pena Moreno kaupmaður; 3) Pétur Leifur Péturs- Pétur Guðfinnsson, fyrrverandi útvarps- og sjónvarpsstjóri – 90 ára Fjölskyldan Hjónin Stella Sigurleifsdóttir og Pétur Guðfinnsson með börnin sín fjögur. Efri röð frá vinstri: Elín Marta, Pétur Leifur, Áslaug Helga og Ólöf Kristín. Myndin er tekin 1995. Fyrsti starfsmaður Sjónvarpsins Í Strassborg 1962 Úr skírnarveislu Péturs Leifs Péturssonar. Stella heldur á Pétri yngri en sá eldri stendur hjá. 30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is FIGGJO LEIRTAU FYRIR MÖTUNEYTI OG SKÓLA Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði 60 ára Óskar er fædd- ur í Reykjavík, ólst upp í Kópavogi og býr í Grafarholti. Hann er bifreiðasmiður að mennt og er viðskipta- stjóri hjá VÍS, en hann hefur unnið þar í 22 ár. Maki: Heiða Björk Júlíusdóttir, f. 1961, viðskiptastjóri hjá Securitas. Börn: Kristján Örn, f. 1979, Fannar Andri, f. 1986, og Júlíus Orri, f. 1993. Barna- börnin eru orðin 6. Foreldrar: Kristján Halldórsson, f. 1930, d. 2017, verkstjóri hjá Osta- og smjör- sölunni og Johan Rönning, og Agatha Kristjánsdóttir, f. 1935, fyrrv. verkakona. Hún er búsett í Kópavogi. Óskar Kristjánsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stattu fast á þínu, hver sem í hlut á, öðru vísi getur þú ekki náð landi svo vel fari. Hugaðu að heilsunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Gakktu úr skugga um að bíllinn sé í lagi. Sýndu visku og velvild því áhrifum fylgir mikil ábyrgð. Gættu þín á tungulipr- um einstaklingi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Taktu þátt í umræðum en mundu að ef þú vilt ná eyrum annarra þarft þú að vanda framkomu þína og mál- far. Nú gefst tækifæri til þess að skipta al- veg um stefnu í lífinu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hristu af þér slenið og vertu já- kvæð/ur og þá fara hlutirnir að gerast hjá þér. Þú átt í einhverju basli með bílinn um þessar mundir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Stundum eru hlutirnir of góðir til þess að vera sannir. Viljirðu ná málum fram af einhverju viti þarftu að vera þolin- móð/ur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekki ljós þitt skína um of, því það þreytir bara þá sem þig umgangast. Ekki reyna að sigra heiminn á einum degi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Treystu á skapandi hæfileika þína. Reyndu að beina vini inn á nýjar brautir. Gerðu ekkert nema að vel athuguðu máli og farðu þér hægt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er yndislegt að læra. Reyndu að þjálfa hugann sem mest. Vinur kemur til þín og biður um ráð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhverjar breytingar standa fyrir dyrum sem gefa þér tækifæri til að sýna hvers þú ert megnug/ur. Lestu smáa letrið og vertu viss um hvað tilheyrir þér og hvað ekki. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert í góðu jafnvægi og átt því að vera í stakk búin/n að sýna hvað í þér býr. Þú sættir fólk með einstakri ráð- snilld. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú kannt að líta svo á að þú verðir að kaupa ákveðinn hlut í dag. Láttu það eftir þér að stinga af frá öllu saman í einn eða tvo daga ef þú mögulega getur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú glímir við meiriháttar áskoranir í vinnunni. Vertu því varkár í umgengni þinni við aðra. 50 ára Unnur er fædd í Reykjavík, ólst upp í Árbænum og býr þar. Hún er með BA-próf í uppeldis- og mennt- unarfræðum frá HÍ Hún vinnur á leikskól- anum Rauðhól í Norð- lingaholti. Maki: Tryggvi Þorvaldsson, f. 1969, lyfja- fræðingur hjá Coripharma. Börn: Gylfi, f. 1995, Þorvaldur, f. 1998, El- ín Arna, f. 2001, og Hanna Lára, f. 2007. Foreldrar: Gylfi Felixson, f. 1939, d. 2007, tannlæknir, og Jóhanna Oddgeirs- dóttir, f. 1940, fyrrv. skrifstofumaður á tannlæknadeild HÍ. Hún er búsett í Kópa- vogi. Unnur Gylfadóttir Til hamingju með daginn Vinirnir Ragnheiður Emma Einars- dóttir, Þorvarður Daníel Einarsson, Íris Anna Sigfúsdóttir, Magnús Ingi Sigfússon, Aron Elvar Stefánsson og Kristín Edda Stefánsdóttir söfn- uðu servíettum í nokkrum götum og föndruðu því næst skálar sem þau seldu svo með því að ganga í hvert einasta hús í Stykkishólmi. Þau seldu fyrir 26.264 kr. sem þau færðu Rauða krossinum í Stykkis- hólmi. Rauði krossinn á Íslandi þakkar þessum duglegu krökkum fyrir þetta frábæra framtak til mannúðarmála. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.