Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 31
son, f. 20. nóvember 1961, d. 7. júlí
2008, framkvæmdastjóri í Barcelona.
Maki: Concepcion Pinos Lopez fram-
kvæmdastjóri; 4) Elín Marta Péturs-
dóttir, f. 14. desember 1963, húsmóðir
í New York. Maki 1 (dáinn): Ágúst
Pálsson, skipasmiður; maki 2: Sigur-
geir Örn Jónsson, framkvæmdastjóri.
Barnabörn eru Baldur Jóhannes-
son, f. 1979, maki: Ásdís María Elfars-
dóttir f. 1979; Stella Soffía Jóhann-
esdóttir, f. 1981, maki Kristján Rúnar
Kristjánsson f. 1977, dætur þeirra eru
Áslaug Edda, f. 2005, Þórdís Ólöf, f.
2007, og Una Karítas, f. 2014; Erna
Pétursdóttir Pinos, f. 1987, maki
Kunsang Tsering, f. 1987, börn þeirra
eru Stella, f. 2011, og Alexander, f.
2013; Dagur Pétursson Pinos, f. 1990,
maki: Zoe Sarsanedas f. 1990; Pétur
Þór Ágústsson, f. 1991; Unnur Ósk
Sigurgeirsdóttir, f. 1996, og Sandra
Dögg Sigurgeirsdóttir, f. 1999.
Systkini Péturs voru Vigdís Guð-
finnsdóttir, f. 8. október 1927, d. 26.
apríl 2019, bréfritari í Reykjavík; og
Þorbjörn Guðfinnsson, f. 1. apríl 1945,
d. 25. september 2008, rennismiður í
Reykjavík.
Foreldrar Péturs voru hjónin
Guðfinnur Þorbjörnsson, f. 11. janúar
1900, d. 4. apríl 1981, vélfræðingur og
framkvæmdastjóri í Reykjavík og
víðar, og Marta Pétursdóttir, f. 12.
ágúst 1901, d. 2. apríl 1992, húsmóðir
í Reykjavík.
Pétur
Guðfi nnsson
Guðrún Þorláksdóttir
húsfreyja í Reykjavík, f. í Reykjavík
Teitur Teitsson
tómthúsmaður í Reykjavík,
f. í Stóru-Vogum í Njarðvík
Vigdís Guðlaug Teitsdóttir
kaupkona í Reykjavík
Pétur Þórðarson
skipstjóri og hafnsögu-
maður í Reykjavík og víðar
Marta Pétursdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja í Gróttu,
f. í Njarðvíkursókn
Þórður Jónsson
útvegsbóndi og skipasmiður í
Gróttu á Seltjarnarnesi, frá Engey
Solveig Brandsdóttir
húsfreyja í Elliðakoti, f. á
Vatnsenda við Elliðavatn
Jón Halldórsson
bóndi í Elliðakoti í Mos-
fellssveit, f. í Elliðakoti
Jónía Jónsdóttir
húsfreyja í Víðinesi og Ártúni
Þorbjörn Finnsson
bóndi í Víðinesi á Kjalarnesi
og í Ártúni við Elliðaár
Guðrún Sigmundsdóttir
húsfreyja í Álftagróf,
f. í Reykjavík
Finnur Þorsteinsson
bóndi í Álftagróf í Mýrdal, f. á
Vatnsskarðshólum í Mýrdal
Úr frændgarði Péturs Guðfi nnssonar
Guðfi nnur Þorbjörnsson
framkvæmdastjóri í
Reykjavík
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
ULTRA
KATTASANDUR
– fyrir dýrin þín
■■■ Sporast lítið
■■■ Lyktarlaus
■■■ Frábær lyktareyðing
■■■ Náttúrulegt hráefni
■■■ 99.9% rykfrír
■■■ Klumpast vel
„VIÐ GETUM EKKI BREYTT GANGI
TÍMANS – EN HVAÐ EF VIÐ GÆTUM
HÆGT Á HONUM?”
„ÉG SKIL EKKI ORÐ AF ÞVÍ SEM HANN
SEGIR! PRÓFAÐU SPÆNSKU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að brynna stundum
músum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SVO MIKLUM MAT
ER SÓAÐ
BARA HENT TAKK!
HRÓLFUR, ÞÚ HÉLST BRJÁLAÐ TEITI
FYRIR MENN ÞÍNA MEÐ TÓNLIST,
MAGADANSI, OFÁTI, DRYKKJU OG
SLAGSMÁLUM!
ÞAKKLÆTI
ALLRA!
VEISTU HVERJAR
AFLEIÐINGARNAR
ERU?
Davíð Hjálmar í Davíðshagasagði á Leir á mánudag að nú
ætti að vera sumar en þegar rofaði
til annað slagið sæist að Vaðlaheiði
er grá hið efra, Súlur alhvítar og
Hlíðarfjall grátt niður fyrir Skíða-
staði.
Svífur Jörð í gölnum geimi,
grafast blóm í snjóafeld.
Kveður við af kattabreimi
og kýrin Skrauta orðin geld.
Samt er verra suðrí heimi
sótugum við skógareld.
Syðra í Biskupstungum skrifaði
Ólafur Stefánsson: „Það var allt á
rúi og stúi í garðinum, þegar við
komum á fætur í morgun:
Blöð og greinar út um allt,
æmta blóm og veina.
Ágústhretið hryssingskalt,
hjú og bændur reyna.
Fía á Sandi norður í Aðaldal
svaraði: „Ég toppa þetta létt“:
Drottinn sendi syndaflóð
svona er kallinn frekur.
Á ónýtan pappír yrki ég ljóð
eldhúsþakið lekur.
Óður stormur ólmast glatt
ekki er minna bölið
að tunnan fauk, það segi ég satt.
Ég syrgi ölið.
Sigrún Haraldsdóttir kom inn í
umræðurnar með athugasemdinni:
„Hef verið í fríi undanfarna daga
og ekki kíkt á Leir. Nú á ég 98
ólesna pósta þar“:
Sinadrátt og svæsinn doða
sáran fæ og kjölturhósta,
næstum ekki nenni að skoða
níutíu og átta pósta.
Fía svaraði:
Er ég líka ansi slök
inni sit með hósta
Á á leirnum enga sök
enga sendi pósta,
– á þessu sumri.
Ármann Þorgrímsson hafði ort
um pólitíkina:
Hneykslast sumir menn á mér
sem máta aldrei nýja flík
láta bara ljúga að sér
en lífið snýst um pólitík.
Fía svaraði að bragði:
Öll er tíkin eintómt frat
eða stöff í grín.
Lífið snýst um mat og mat
mat og vín.
Pétur Stefánsson yrkir:
Lipurt áfram líðum hér
á lífsins tímahjóli.
Myrkrið hörfar, morgna fer,
mjakast fólk úr bóli.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veðrabrigði fyrir
norðan og sunnan