Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 33

Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 33
FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson telur að það muni taka leikmenn smátíma að venjast nýrri myndbandsdómsgælu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessari leiktíð. Jóhann var á skot- skónum með Burnley um síðustu helgi þegar liðið vann 3:0- heimasigur gegn Southampton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeild- arinnar á Turf Moor í Burnley en Jóhann viðurkenndi í samtali við Morgunblaðið í gær að það hefði orðið ansi vandræðalegt fyrir sig ef markið hefði ekki fengið að standa enda fagnaði Íslendingurinn eins og óður maður. „Þetta var frábær byrjun hjá okkur og það er alltaf ákveðin spenna í manni þegar nýtt tímabil hefst. Þetta er aðeins öðruvísi byrjun en síðasta sumar þegar við tókum þátt í undankeppni Evr- ópudeildarinnar þar sem við vorum búnir að spila nokkra alvöruleiki áður en tímabilið í ensku úrvals- deildinni hófst. Við mættum mjög tilbúnir til leiks og fyrstu leikirnir eru alltaf ákveðin prófraun á það hvar við stöndum sem lið en það gefur augaleið að menn voru mjög jákvæðir eftir að leik lauk.“ Mikilvægt að byrja vel Tímabilið 2016-17 kom Burnley mjög á óvart og hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar og tryggði sér um leið Evrópusæti. Á síðustu leik- tíð fór liðið hins vegar illa af stað og var liðið í bullandi fallbaráttu allt tímabilið en endaði að lokum í fimmtánda sæti deildarinnar. „Það var mikið álag á mönnum á síðustu leiktíð og hópurinn kannski höndlaði það ekki nægilega vel. Við enduðum í sjöunda sæti tímabilið 2017-18, sem var ótrúlegur árang- ur, og kannski fóru menn að slaka aðeins á og halda að þeir væru betri en þeir voru eftir gott gengi. Grunnatriðin voru einfaldlega ekki nógu góð og byrjunin á síðasta tímabili var þess vegna mjög lær- dómsríkur kafli fyrir okkur. Við hrukkum í gang seinni hluta síð- asta tímabils, sem var of seint, og þess vegna var mjög mikilvægt fyrir okkur að fara vel af stað á þessari leiktíð sem við og gerðum. Þetta er auðvitað bara einn leikur en við áttum mjög gott undirbún- ingstímabil sem var að sama skapi mjög erfitt og menn eru því í frá- bæru formi. Þetta hefur verið sami leikmannakjarni hjá liðinu und- anfarin ár og við höfum ekki bætt við okkur mörgum nýjum leik- mönnum í gegnum árin. Við höfum ekki heldur misst marga þannig að við erum auðvitað farnir að þekkja hver annan mjög vel. Mér finnst líka meira hungur í leikmanna- hópnum núna en á síðustu leiktíð og menn vilja gera betur en síðast. Það sást í þessum fyrsta leik en að sama skapi erum við ekki að missa okkur í gleðinni yfir þessum úrslit- um. Þetta var bara fyrsti leikur í deildinni gegn Southampton á heimavelli sem við teljum okkur eiga að vinna en við eigum erfiðari leiki eftir en þetta, það er alveg á hreinu. Við höfum ekki sett okkur neitt sérstakt markmið sem lið fyr- ir tímabilið en við förum að sjálf- sögðu inn í hvern einasta leik til þess að vinna hann og teljum okk- ur vera með gott lið. Við vitum það hins vegar að enska úrvalsdeildin er gríðarlega erfið og það er ekk- ert grín að halda sér í þessari deild þótt okkur hafi tekist það á undanförnum árum. Við erum með ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK stærri markmið en að halda okkur í deildinni, það er alveg klárt, því við teljum okkur betri en það, en fyrsta mark- mið liðsins er að halda sér í deildinni. Persónulega tel ég okkur vel geta verið um miðja deild eða í efri hluta hennar.“ Síðasta tímabil tók á Jóhann tók virkan þátt í undir- búningstimabili Burnley og hann vonar að það muni skila sér þegar líða fer á ensku úrvalsdeildina. „Mér líður mjög vel í líkamanum og ég náði heilu undirbúnings- tímabili með liðinu, sem er mjög jákvætt fyrir mig. Ég hef haldist heill og planið er að sjálfsögðu að halda því áfram út tímabilið. Síð- asta sumar var skrítið þar sem ég var á HM í Rússlandi, maður fékk svo stutt frí eftir mótið og mætti svo beint inn í undankeppni Evr- ópudeildarinnar með Burnley. Ég fékk þess vegna ekki þennan ákveðna grunn sem undirbúnings- tímabilið gefur manni, hvorki hlaupin né styrktaræfingarnar, sem hjálpa manni í gegnum langt tímabil og ég fann fyrir því. Síð- asta tímabil var erfitt fyrir mig persónulega og markmiðið er að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að eiga gott tímabil með Burnley á þessari leiktíð.“ Sóknarmaðurinn hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og spilaði stórt hlut- verk með liðinu bæði á EM í Frakklandi 2016 og HM í Rúss- landi 2018. Jóhann viðurkennir að álagið sem fylgir því að spila á stórmóti hafi haft áhrif á feril hans með Burnley. „Seinni hluti síðasta tímabils var erfiður fyrir mig en tímabilið þar á undan spilaði ég í raun flestalla leiki. Ég hef tekið eftir því að þeg- ar ég hef farið á stórmót hefur það setið aðeins í mér. Tímabilið eftir EM 2016 var smá ströggl fyrir mig, alveg eins og tímabilið eftir HM 2018. Maður veit aldrei í þess- um blessaða bolta og það er ekki hægt að ganga að neinu vísu en meiðslalega séð hafa tímabilin eftir síðustu stórmót verið mér erfið. Það er ákveðið álag og það kemur kannski meira niður á manni þegar aðrir leikmenn liðsins fá fulla hvíld. Auðvitað vill maður samt sem áður spila á þessum stórmót- um fyrir Ísland og maður þarf kannski aðeins að læra það, eftir þessi mót, hvernig maður nær sér aftur líkamlega.“ Jákvæð þróun á Englandi Í ár munu dómarar í ensku úr- valsdeildinni styðjast við mynd- bandsdómsgæslu eða VAR í fyrsta sinn. Jóhann fékk sjálfur smörþef- inn af því hvernig VAR virkar í ensku úrvalsdeildinni en Graham Scott, dómarinn í leik Burnley og Southampton um síðustu helgi, tók sér góðan tíma í að skoða mark Jó- hanns í leiknum áður en hann dæmdi það löglegt. „Það var tekinn góður dómara- fundur fyrir tímabilið og það mun taka einhvern smá tíma að venjast þessu. Við munum sjá einhverjar tafir á leikjunum til að byrja með þar sem er verið að skoða einhvern ákveðin atvik. Ég lenti í þessu sjálfur um helgina þegar dómarinn tékkaði sérstaklega hvort tækl- ingin hjá mér, í aðdraganda marksins sem ég skoraði, hefði verið lögleg. Ég fagnaði náttúrlega eins og óður maður og það hefði þess vegna verið mjög vandræða- legt ef þetta hefði verið tekið af mér en sem betur fer gerðist það ekki. Þetta er nýtt fyrir manni og maður þarf að passa sig, sér- staklega ef maður skorar, því það eru meiri líkur nú en áður á að markið verði tekið af manni. Þetta er nýtt fyrir öllum en markmiðið er að gera þetta mun betur en á HM kvenna sem dæmi, þar sem allt tók mjög langan tíma, og dómara- sam- tökin á Englandi hafa lagt mikla áherslu á að þetta hægi ekki á leiknum og taki sem minnstan tíma.“ Þrátt fyrir að VAR hægi á leiknum telur Jóhann að þetta sé fótboltanum til góðs og þegar tæknin verður orðin fullmótuð verði þetta jákvæð þróun fyrir knattspyrnuna. „Þetta er glæný tækni og það eru kostir og gallar í þessu eins og öllu öðru. Ef þú skorar mark er strax hægt að sjá hvort markið hafi verið löglegt eða ekki þannig að það er ekki hægt að tuða neitt yfir því eftir á. Það er ekki hægt að setja neitt út á dómgæsluna eftir leik, þar sem öll vafaatriði eru skoðuð, sem er jákvætt en auðvitað er þetta skrítið líka því maður er ekki alveg viss hvort maður hafi skorað þeg- ar maður kemur boltanum í netið. Þegar allt kemur til alls á ég samt von á því að þetta verði jákvæð þróun fyrir fótboltann, sér- staklega ef þetta tekur skjótt af og tekur ekki taktinn og hraðann úr leiknum sjálfum,“ sagði Jóhann Berg í samtali við Morgunblaðið. Mark Jóhann Berg Guðmundsson fagn- ar fyrsta marki sínu á leiktíð- inni, sem jafn- framt var þriðja mark Burnley í sigri á Southamp- ton í 1. umferð. Stórmótin haft mikil áhrif á meiðslasöguna með Burnley  Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði sitt fjórða tímabil með Burnley á marki AFP Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, tók leikmann út af fyr- ir hlé á dögunum. Segist hafa viljað breyta leikskipulagi. Sagð- ist ætla að biðja leikmanninn af- sökunar vegna þessa Hvers vegna er þjálfari að biðja leikmann afsökunar á því að hann ætli að gera breytingar? Jú vegna þess að í knattspyrn- unni er löngu búið „að ákveða“ að ekki skuli skipta mönnum út af fyrir hlé nema um meiðsli eða veikindi sé að ræða. Fyrir því er að sjálfsögðu eng- inn vitsmunalegur rökstuðn- ingur. Þetta er bara dæmi um dellu sem getur orðið til í íþrótt- unum og venjan er orðin sú að leikmenn eru ekki teknir út af fyrr en eftir hlé. Fréttamaður RÚV sagði í hlaðvarpi að þetta hafi verið nið- urlægjandi fyrir leikmanninn. Það kann vel að vera. Einmitt vegna þess að þessu eiga menn ekki að venjast. Knattspyrnu- heimurinn er íhaldssamari en lá- varðadeild breska þingsins. Ég hef enga trú á öðru en að snjallir þjálfarar sjái eftir 25 mín- útur í leikjum hvort leikmenn séu vel upplagðir eða ekki. Ef einhver er það ekki, eða ræður ekki við andstæðinginn sem hann á að stöðva, hvers vegna að bíða með skiptinguna? Svo framarlega sem þjálfarinn hefur trú á vara- mönnum sínum. Þjálfari á að grípa inn í ef útlit- ið er slæmt. Hann fer með valdið en ekki leikmennirnir. Þjálfarinn þarf svo að vera starfi sínu vax- inn og gæta þess að leikmenn missi ekki sjálfstraustið þótt þeim sé skipt af leikvelli. Hvort sem það er á 30. mínútu eða 60. mínútu. Á hinn bóginn ætti það að kveikja í varamönnum að þeim sé treyst. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.