Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 34

Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Undanúrslit í bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, hefj- ast í kvöld þegar KR heimsækir FH í Hafnarfjörðinn. Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli hinn 14. sept- ember næstkomandi en á morgun mætast Víkingur Reykjavík og Breiðablik á Víkingsvelli í Fossvogi. Á meðan Víkingar hafa verið að berj- ast í neðri hluta úrvalsdeildarinnar í allt sumar hafa Blikar verið í harðri toppbaráttu. Bæði lið hafa einu sinni fagnað sigri í bikarkeppninni, Vík- ingar árið 1971 en Breiðablik vann titilinn 2009, en liðið hafnaði í öðru sæti bikarkeppninnar síðasta sumar. „Það eru allir í Víkinni mjög spenntir fyrir leiknum gegn Breiða- bliki. Við spiluðum síðast til undan- úrslita í bikarkeppninni árið 2014 þegar við töpuðum í vítaspyrnu- keppni fyrir Keflavík. Við höfum ekki komist langt í bikarnum á und- anförnum árum þannig að þú getur rétt ímyndað þér hvernig stemningin í Fossvoginum er þessa dagana,“ sagði Halldór Smári Sigurðsson, næstleikjahæsti leikmaður í sögu Víkinga, í samtali við Morgunblaðið í gær. Heyrt um gullaldarárin „Eftir að Óttar Magnús Karlsson, Kári Árnason og Kwame Quee komu inn hefur leikur liðsins batnað mjög mikið og Óttar Magnús gefur liðinu þvílíkt mikið fram á við. Hann er kominn með þrjú mörk í tveimur leikjum og með hann þarna frammi á móti Breiðabliki sem dæmi líður okk- ur mjög vel og ég tel okkur eiga alveg jafn mikla möguleika og hin liðin sem eftir eru til þess að landa þeim stóra í september.“ Halldór Smári fæddist árið 1988 og var því þriggja ára þegar Víkingar unnu síðast stóran titil árið 1991 þeg- ar liðið varð Íslandsmeistari en varn- armaðurinn man lítið eftir þeim tím- um. „Ég hef bara heyrt talað um gull- aldarárin hjá gömlu körlunum niðri í Vík. Síðan ég byrjaði að æfa með fé- laginu hefur þetta verið upp og niður hjá klúbbnum. Frá árinu 1991 til árs- ins 2013 rokkaði félagið mikið á milli efstu og næstefstu deildar. Þetta var bara upp og niður og aldrei neinn möguleiki þannig á að vinna ein- hverja titla og þess vegna er kominn tími á alvörutitil í Fossvoginn.“ Tölfræðin hliðholl KR KR er sigursælasta íslenska fé- lagsliðið frá upphafi í bikarkeppninni en alls hefur liðið fjórtán sinnum orð- ið bikarmeistari. Fyrst árið 1960 og síðast árið 2014. Það ár var Rúnar Kristinsson þjálfari liðsins og hann er einnig þjálfari þess í dag. Rúnar stýrði KR á árunum 2010 til 2014 og á þeim tíma unnu Vesturbæingar fimm stóra titla; tvo Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitila. FH hefur átta sinnum orðið Ís- landsmeistari frá aldamótum en lið- inu hefur einungis tvívegis tekist að fagna sigri í bikarkeppninni, árin 2007 og 2010. Liðið hefur fjórum sinnum leikið til úrslita, síðast árið 2017, þar sem það tapaði 1:0 fyrir ÍBV í úrslitaleik. Ólafur Helgi Krist- jánsson er þjálfari FH í dag en hann hjálpaði Blikum að landa sínum fyrsta og eina bikarmeistaratitli árið 2009 þegar hann var þjálfari liðsins. Löngu kominn tími á titil í Fossvoginn  Sigursælasta bikarliðið mætir í Hafnarfjörðinn í kvöld Morgunblaðið/Ómar Víkingur Halldór Smári Sigurðsson er næst leikjahæstur í sögu Víkinga. „Þetta var orðið þægilegt í KR og einfalt fyrir mig,“ segir Pavel Er- molinskij, landsliðsmaður í körfu- bolta, sem í gær skrifaði undir samning til tveggja ára við Val. Pavel varð Íslandsmeistari sex síð- ustu ár í röð með KR. „Mitt hlutverk hefur ekki breyst mikið í Vesturbænum og það er í raun ein af ástæðum þess að ég ákvað að prófa eitthvað nýtt. Mig langar að setja meiri pressu á sjálf- an mig og gera betur og standa mig. Þetta snerist ekki um peninga og ég er mjög sáttur við samning- inn sem ég fékk á Hlíðarenda. Við- ræður við KR fóru aldrei það langt að þetta var enginn samanburður þannig séð, ég tók bara ákvörðun á ákveðnum tímapunkti að fara,“ sagði þessi 32 ára gamli leikmaður við mbl.is í gær. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hefur Valur einnig gert tveimur öðrum goðsögnum úr DHL-höllinni í Vesturbæ, Jóni Arnóri Stefánssyni og Helga Má Magnússyni, tilboð um að koma á Hlíðarenda. Óvíst er með framtíð þeirra beggja. bjarnih@mbl.is Morgunblaðið/Bjarni Valsari Pavel Ermolinskij er kominn í Val sem endaði í 9. sæti í vor. Var orðið þægilegt og einfalt í KR EM U16 karla B-deild í Svartfjallalandi: C-riðill: Ísland – Úkraína....................................65:64 Hvíta-Rússland – Sviss.........................67:39 Svartfjallaland – Danmörk...................62:71  Lokastaða: Danmörk 10, Svartfjallaland 8, Ísland 8, Úkraína 6, Hvíta-Rússland 6, Sviss 4. Ísland leikur um sæti 9-16 og hefst sú keppni á morgun.  Almar Orri Atla- son, drengja- landsliðsmaður í körfuknattleik úr KR, hefur skrifað undir samning við Stella Azzurra í Róm á Ítalíu. Al- mar vakti athygli á móti í Dan- mörku þar sem U15 ára landsliðin léku og var einn- ig valinn besti leikmaðurinn í IMG Academy körfuboltabúðum í Bandaríkjunum. Almar Orri heldur utan í lok mánaðarins og flytur ásamt for- eldrum sínum, samkvæmt frétta- tilkynningu frá KR. Þess má geta að Almar er yngri bróðir Darra Freys Atlasonar, þjálfara meist- araliðs kvenna hjá Val. sport@mbl.is Almar samdi við ítalskt lið Almar Orri Atlason KNATTSPYRNA Bikarkeppni karla, Mjólkurbikar: Kaplakrikavöllur: FH – KR ......................18 2. deild kvenna: Vivaldivöllurinn: Grótta – Leiknir R. ..19.15 4. deild karla: Víkingsvöllur: Mídas – Ýmir .....................20 Leiknisvöllur: KB – Úlfarnir.....................19 HANDKNATTLEIKUR UMSK-mót kvenna: Kórinn: Afturelding – Grótta ....................18 Kórinn: HK – Stjarnan ..............................20 UMSK-mót karla: Kórinn: HK – Stjarnan ..............................18 Kórinn: Afturelding – Grótta ....................20 Ragnarsmót karla: Hleðsluhöllin: ÍBV – Fram...................17.45 Hleðsluhöllin: Selfoss – Valur ..............19.30 Í KVÖLD! Knattspyrnu- maðurinn Kol- beinn Birgir Finnsson mun ganga í raðir þýska stórliðsins Borussia Dort- mund á næstu dögum, sam- kvæmt frétt á netmiðlinum 433.is. Mun hann skrifa undir þriggja ára samning, að því er fram kemur í fréttinni. Kolbeinn er 19 ára og samnings- bundinn Brentford á Englandi. Hann lék þrettán leiki með Fylki í sumar og skoraði í þeim tvö mörk er hann var að láni frá Brentford en þar hefur hann enn ekki leikið með aðalliðinu. Kolbeinn hefur leikið tvo A-landsleiki en hann var áður hjá Groningen í Hollandi. Langt er síðan Íslendingur lék með Dortmund en Atli Eðvaldsson og Magnús Bergs gerðu það snemma á níunda áratugnum. sport@mbl.is Kolbeinn til Dortmund? Kolbeinn Birgir Finnsson Þór Akureyri hefur neyðst til þess að draga meistaraflokk kvenna úr keppni í 1. deildinni í körfuknattleik fyrir næsta tímabil. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs. Þar segir að þessi staða sé mikil vonbrigði þar sem liðið hafi séð á eftir mörgum leikmönnum og hópurinn því orðinn mjög fámennur. Frá síð- asta tímabili hefur liðið misst a.m.k. fimm lykilleikmenn úr litlum leik- mannahópi. Horfa skuli til framtíðar. „Í yngri flokkum kvenna er að finna margar efnilegar stúlkur sem í framtíðinni eiga eftir að taka við kefl- inu en eru enn fullungar til að taka á sig þá ábyrgð sem því fylgir að spila í meistaraflokki. Því hefur körfuknatt- leiksdeild Þórs ákveðið að fara af stað með stúlknaflokk og þannig horfa til framtíðar með uppbyggingu yngri flokka kvenna að leiðarljósi. Búið er að ráða Jón Inga Baldvinsson til að stýra því verkefni,“ segir í tilkynning- unni. Þór dregur lið sitt úr keppni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.