Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 36

Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningar hefjast í dag á nýjustu kvikmynd Quentins Tarantino, Once Upon a Time ... in Holly- wood, þeirri níundu sem hann skrifar og leikstýrir. Tarantino er einn þekktasti og vinsælasti leik- stjóri heims og er kvikmynda hans jafnan beðið með mikilli eftirvænt- ingu. Heba Þórisdóttir hefur verið yfirmaður förðunardeildar við kvikmyndir Tarantino allt frá fyrri hluta Kill Bill tvennunnar og hefur gegnt þeirri stöðu við fjölda ann- arra Hollywood-mynda og þar af nokkurra Marvel-ofurhetjumynda. Næsta verkefni hennar er hins vegar förðun við Suicide Squad 2 sem er úr smiðju helsta keppi- nautar Marvel, DC Comics. Heba segir Marvel alveg fyrirgefa henni þetta hliðarspor. „Marvel er allt öðruvísi en hin kvikmyndastúd- íóin,“ segir hún. Marvel sé vissu- lega mikil verksmiðja en ráði oftar en ekki sama fólkið í kvikmynda- verkefnin. „Það er voða mikil fjöl- skyldustemning þar,“ segir Heba um reynslu sína af tökum fyrir Marvel, en síðasta Marvel-myndin sem hún kom að var Captain Mar- vel. Hringdi sex árum seinna Hollywood-stjörnurnar eru margar í nýjustu kvikmynd Tar- antino, Brad Pitt og Leonardo DiCaprio í aðalhlutverkum og Margot Robbie leikur Sharon Tate sem myrt var af Manson-genginu árið 1969. Af öðrum stjörnum má nefna Al Pacino, Kurt Russell og Bruce Dern. „Það var rosalega gaman að hafa Leo og Brad saman í þessari mynd,“ segir Heba um stjörnustóðið en hún er alvön því að vinna með heimsþekktum kvik- myndastjörnum eins og sjá má af glæsilegri ferilskránni. Tarantino hefur Heba þekkt í ein 26 ár, kynntist honum þegar hann var að skrifa handritið að meistaraverki sínu Pulp Fiction. Hún fylgdist síðar með tökum á Jackie Brown og upplifði þar ein- staka stemningu. Hún sagði Tar- antino að hún vildi gjarnan fá að vinna fyrir hann og væri allt eins til í að sópa gólfin ef til þess kæmi. „Hann hringdi svo í mig sex árum seinna,“ segir Heba kímin. Tarantino bauð henni að stýra förðunardeild Kill Bill: Vol. 1 og var það upphafið að blómlegu sam- starfi þeirra. Mikil skipulagsvinna Heba hefur í mörg horn að líta í starfi sínu. „Ég þarf að sjá um fjárhagsáætlun, lesa handritið í gegn og finna út hversu marga starfsmenn ég þarf, þarf að láta vita fyrir fram hvað ég þarf marga og ráða fólk,“ telur hún upp. Hún segist líka þurfa að gera úttekt á því hvaða efni þurfi til verksins og hversu mikið af þeim. Starfið krefst því mikils skipulags, sem Heba segir geta reynt á, því starf- ið eigi líka að vera listrænt og hún skapandi. „Ég öfunda stundum fólkið sem ég ræð með mér því það kemur bara í vinnuna, fær að sinna förðun og situr svo úti í kaffi á meðan ég er að gera áætlanir,“ segir Heba og hlær að hlutskipti sínu. Hún ítrekar að henni þyki þó hvort tveggja skemmtilegt, að farða og skipuleggja. Langir vinnudagar Kvikmyndatökur eru engin lúxusvinna og vinnudagarnir eru oftar en ekki langir. Heba segist hafa unnið í 17-18 klst. á dag, sex daga vikunnar, við tökur á Kill Bill: Vol. 1 en nú sé vinnutíminn aðeins styttri, um 14 klst. á dag sem flestum þykir þó býsna langt enda almennur starfsdagur átta klukkustundir. Förðunarfólk og leikarar þurfa að vakna fyrir allar aldir svo að útlitið sé í lagi þegar kveikt er á myndavélunum. Heba gegndi reyndar fleiri störfum fyrir Tarantino að þessu sinni því hún fer með örlítið hlut- verk í myndinni, hlutverk förð- unarfræðings, nema hvað. Hún á í stuttum samskiptum við DiCaprio sem leikur leikarann Rick Dalton (sjá gagnrýni á næstu síðu). Með Hannah í stólnum Heba segist hafa vitað af því að hún ætti að fara með lítið hlutverk en hins vegar hafi textinn komið henni á óvart. „Ég las ekki lín- urnar fyrr en daginn áður því ég vissi ekki af þeim,“ segir Heba. Tarantino hafi breytt handritinu. Mikil leynd hvílir jafnan yfir tökum Hollywood-mynda á borð við Once Upon a Time ... in Holly- wood og tökulið er bundið þagn- arskyldu, má ekki tjá sig um stjörnurnar og kvikmyndirnar al- mennt. Heba má því ekki segja lesendum Morgunblaðsins krass- andi sögur af stjörnunum, því mið- ur. Hins vegar má spyrja hvort hún hafi aldrei orðið „star struck“, verið slegin stjörnublindu, við að hitta einhverja stórstjörnuna í fyrsta sinn, t.d. Al Pacino. „Það var auðvitað geggjað að fá Pacino í stólinn,“ svarar Heba og segir Pacino hafa strítt henni örlítið í stólnum. Hún hafi aftur á móti verið slegin stjörnublindu þegar hún hitti leikkonuna Daryl Hannah. „Ég elska Blade Runner og þegar Daryl Hannah kom í stólinn hjá mér áttaði ég mig á því, í miðri förðunarvinnu, að ég væri með Pris í stólnum og hnén á mér gáfu aðeins eftir,“ segir Heba og hlær við, en Pris er persónan sem Hannah leikur í hinni sígildu kvikmynd Ridley Scott. Ekki vinir Heba segist hoppa á milli þess að vera förðunarfræðingur stakra leikara og yfirmaður förðunar- deildar kvikmynda. Í fyrrnefnda starfinu segir hún mikilvægt fyrir förðunarfólk að muna að leikar- arnir séu ekki vinir þess. Nándin geti verið mikil í starfinu og þá sérstaklega á tökustað þegar töku- lið fer saman út að borða, í bíó eða á tónleika. „Svo þegar myndin er búin heyrir maður kannski ekki í neinum í marga mánuði,“ útskýrir Heba. „Ég man þetta alltaf og fer aldrei yfir þessa línu,“ segir hún og að starfið krefjist þess líka að hún lesi í fólk, hvort það vilji tala eða ekki, svo dæmi sé tekið. Stundum vilji leikarar fá að vera í friði og lesa. „Maður þarf að vera jafnmikill sálfræðingur og förð- unarmeistari.“ Eins og brimbrettakappi Once Upon a Time ... in Holly- wood var tekin í Los Angeles og nágrenni og eru leikararnir í henni mjög sólbrúnir. Heba er spurð að því hvort þetta hafi verið raun- veruleg brúnka og segir hún svo ekki vera. „Þetta er allt gervi- brúnka. Við fórum í gegnum margar gerðir af brúnkukremum. Það var mikið stöðutákn að eiga sundlaug í Los Angeles á sjöunda áratugnum og konurnar fóru til dæmis í lagningu á hverjum föstu- degi og létu hárgreiðslufólkið taka hárið aðeins niður aftast og bleyta það þannig að þær litu út fyrir að vera nýkomnar upp úr sundlaug- inni. Helmingur þessara kvenna átti ekkert sundlaug,“ segir Heba og hlær. Tarantino vildi að Brad Pitt væri með hár eins og brim- brettakappi og blásið líkt og hann hefði verið að keyra blæjubíl. „Hann er alltaf með hárið aðeins upp að aftan,“ bendir Heba á, en Pitt er mikið undir stýri í mynd- inni. Hrottalegt ofbeldi Eins og í flestum kvikmyndum Tarantino kemur ofbeldi við sögu í þeirri nýjustu og er eitt atriði sér- staklega blóðugt og hrottalegt. Heba segir brellumeistara sjá að mestu um slík atriði þar sem dúkkur þurfi m.a. til en allt sem snúi að andlitum leikaranna heyri undir förðunardeild, m.a. að sjá til þess að leikararnir séu eins í framan milli takna. Heba segist ekki hafa verið viðstödd tökur á fyrrnefndu atriði enda hafi það ekki krafist nærveru hennar og hún ekki haft lyst á því. „Ég sagð- ist bara ætla að snúa mér að skrif- stofustörfunum,“ segir hún glettin. Ljósmynd/Kyle Christy Á tökustað Heba með leikkonunni Maríu Birtu Bjarnadóttur sem fer með aukahlutverk í kvikmyndinni. Sólbrúnka og sundlaugarhár  Once Upon a Time ... in Hollywood verður frumsýnd hér á landi í dag  Heba Þórisdóttir var yfir- maður förðunardeildar  Sjötta kvikmyndin sem hún gerir með leikstjóranum Quentin Tarantino AFP Stjörnur Leikstjórinn Quentin Tarantino með aðalleikurum Once Upon A Time ... In Hollywood, þeim Brad Pitt, Margot Robbie og Leonardo DiCaprio, á frumsýningu myndarinnar í Los Angeles 22. júlí síðastliðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.