Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2019, Qupperneq 29
11.8. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
MÁLMUR Núna, sex árum síðar,
viðurkennir gítarleikarinn Jim Ro-
ot að rétt hafi verið að reka hann úr
Stone Sour, þar sem hann starfaði
ásamt félaga sínum úr Slipknot,
söngvaranum Corey Taylor, og
fleiri mönnum. Root blótaði Stone
Sour í sand og ösku lengi á eftir en
játar nú, í viðtali við Metal Ham-
mer, að hefði hann verið um kyrrt í
sveitinni hefðu þeir Taylor líklega
drepið hvor annan. Þeir eru báðir
enn þá í Slipknot og kemur mun
betur saman í dag, að sögn Roots.
Hefðu drepið hvor annan
Corey Taylor í ham með Slipknot.
AFP
BÓKSALA 31.7. - 6. 8.
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sapiens Yuval Noah Harari
2 Svört perla Liza Marklund
3 Annabelle Lina Bengtsdotter
4 Feilspor Maria Adolfsdotter
5 Independent People Halldór Laxness
6 Qaanaaq Mo Malø
7 Sagas of The Icelanders
8 Allt hold er hey Þorgrímur Þráinsson
9
Iceland – Visual Explorer
Guide
Chris McNab
10 Iceland in a Bag
1
Í alvöru ekki opna
þessa bók
Andy Lee
2 Gagn og gaman, 2. hefti Helgi Elíasson/Ísak Jónsson
3 Litli prinsinn Antoine de Saint-Exupéry
4 Barist í Barcelona Gunnar Helgason
5 Gagn og gaman Helgi Elíasson/Ísak Jónsson
6
Þín eigin saga
– Piparkökuhúsið
Ævar Þór Benediktsson
7 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson
8 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
9 Orri óstöðvandi Bjarni Fritzson
10 Risastóri krókódíllinn Roald Dahl
Allar bækur
Barnabækur
Í seinni tíð hef ég verið því marki
brennd að byrja á bókum og
hætta við þær og því lítið um
línulega framvindu í bóklestri.
Fyrst má nefna
Fire and Fury: In-
side the Trump
White House eftir
Michael Wolff og
Trump in the
White House eftir
Bob Woodward.
Hvorug þeirra telst
nokkur skemmtilesning og önnur
sýnu umdeildari en hin sakir óná-
kvæmni. Má segja að þær hafi
báðar lent á lestrarlistanum sak-
ir forvitni og af skyldurækni við
líðandi stund.
Af bókum sem
hafa ratað til mín
óvænt að und-
anförnu má
nefna ljóðabók-
ina Hryggdýr eft-
ir Sigurbjörgu
Þrastardóttur,
sem er einstaklega sniðug og
áhrifamikil eins og við var að bú-
ast og segja má að dragi fram
ýmsa forvitnilega
fleti á hlutskipti
manneskjunnar.
Einnig fékk ég ný-
lega gefins bókina
Women and Po-
wer: A Manifesto
eftir menning-
arrýninn Mary Be-
ard, sem rekur slóð kvenfyrirlitn-
ingar aftur til daga
Ódysseifskviðu Hómers og fram
til vorra daga og Elizabethar
Warren, Angelu Merkel og The-
resu May, svo dæmi séu nefnd, og
er bæði snjöll og skemmtilega
kaldhæðin.
Undanfarin misseri hef ég ver-
ið búsett í Brussel og hef oft
furðað mig á hversu hátt Leo-
pold II. Belgakon-
ungi 1865-1909 er
enn gert undir
höfði, þrátt fyrir
blóði drifna fortíð
sína sem drottnara
yfir Fríríkinu
Kongó. Því er alltaf
á stefnuskránni að lesa King Leo-
pold‘s Ghost eftir Adam Hochsc-
hild, sem gerir þessu hryllilega
tímabili í sögu Belgíu skil.
Nú í sumarfríinu er ég einkum
með tvær bækur í
farteskinu, annars
vegar 1913: The
Year Before the
Storm eftir Florian
Illies, og hins vegar
Glæpur við fæð-
ingu eftir Trevor
Noah, í þýðingu
Helgu Soffíu Ein-
arsdóttur. Sú fyrri
dregur upp svip-
myndir af árinu fyr-
ir upphaf fyrri
heimsstyrjald-
arinnar, mánuð fyr-
ir mánuð, og fléttar
saman merkum
augnablikum í listum, vísindum
og stjórnmálum á frumlegan
hátt. Í bókinni Glæpur við fæð-
ingu lýsir Trevor Noah á kóm-
ískan en áhrifamikinn máta upp-
vaxtarárum sínum á tímum
aðskilnaðarstefnunnar í Suður-
Afríku og vísar titillinn til þess að
samneyti foreldra hans var ólög-
legt þar sem þau voru ekki með
sama húðlit.
HELGA ER AÐ LESA
Úr einu í annað
Helga Kristín
Einarsdóttir
starfar hjá
EFTA í Brussel.
Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber fyllti Kórinn ekki bara einu
sinni heldur tvisvar árið 2016. Talið er að um 19.000 manns hafi
verið á fyrri tónleikunum og upp undir annað eins á þeim síðari.
Morgunblaðið/Ófeigur
Tónleikar bandaríska þrassbandsins Metallica í Egilshöll sumarið 2004
voru langfjölmennustu rokktónleikar Íslandssögunnar á þeim tíma en Metallica
lék fyrir tæplega 18.000 manns. Sem þykir þó fámennt á þeim bænum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Um 16.000 gestir sóttu tónleika þýsku rokksveitarinnar Rammstein í Kórn-
um vorið 2017. Mikið var lagt í tónleikana sem þóttu sjónarspil hið mesta.
Morgunblaðið/Ófeigur
ALLTAF KLÁRT
Í ÞRIFINAJAX
NÚ FÆRÐU
AJAX með
matarsóda og sítrónu
og AJAX
með ediki og eplum
Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi
hreint