Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Page 19
Baðherbergið er flísalagt með terrazzo-flísum. Innréttingin er sérhönnuð og kemur ákaflega vel út.
Hjarta heimilisins
skiptir mestu máli
Tara Brynjarsdóttir grunnskólakennari býr ásamt Agli
Þormóðssyni og dóttur þeirra Aríu í fallegu og nýlega
innréttuðu heimili í Laugardalnum í Reykjavík.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Tara velur vandaða muni með notagildi.
Stofan er opin og björt.
Fiskibeinaparketið er sér-
staklega glæsilegt.
þegar ég var yngri, sem er rúmteppið hennar
Aríu núna. Svo held ég fast í alla hluti sem ég
hef erft og hafa tilfinningalegt gildi.“ Margir af
fallegum munum heimilisins eru einmitt frá
langömmum Töru og Egils.
Tara er jafnframt dugleg að skoða Pinterest í
leit að innblæstri. „Þá horfum við Egill mikið á
The Block Australia sem eru frábærir þættir til
þess að fá hugmyndir. Mamma og tengda-
mamma eru líka duglegar að sýna mér fallega
hluti og rými. Kolla tengdamamma er dugleg
að ýta mér út fyrir þægindarammann og koma
með góðar hugmyndir.“
Aðspurð hvaða rými sé í eftirlæti á heimilinu
nefnir Tara eldhúsið. „Ég naut þess munaðar
að fá að hanna draumaeldhúsið mitt, hluti þess
var að við færðum til veggi. Við mæðgur erum
duglegar í eldhúsinu og eigum margar gæða-
stundir þar.“
Fjölskyldan kann ákaflega vel við sig í
Laugardalnum en Egill ólst þar upp.
„Allt það helsta er í göngufæri; sundlaugin,
verslun, fiskbúð, bakarí og heilsurækt, að auki
góðir skólar og íþróttafélög. Þegar við fórum að
skoða íbúðir heillaði þessi staðsetning okkur
mest! Ekki skemmir fyrir að ég vinn svo í
göngufæri frá heimilinu þannig að við þurfum
ekki að nota bíl eins mikið og áður.“
Tara og Egill fengu íbúðina afhenta í októ-ber 2018 og hófust þá strax handa viðframkvæmdir en þau fluttu inn í mars
2019. Parið gjörbreytti íbúðinni og fékk hönn-
unarteymið HAF Studio til þess að teikna og
endurskipuleggja íbúðina.
„Við færðum útidyrahurðina, eldhúsið og
baðherbergið ásamt því að brjóta niður veggi til
þess að opna íbúðina alla, við þetta varð hún
mun bjartari og skemmtilegri. Ekki skemmir
heldur að við fengum þetta æðislega fjöl-
skylduvæna rými sem samanstendur af stofu,
borðstofu og eldhúsi,“ útskýrir Tara og bætir
við að þau hafi fengið mikla hjálp frá fjölskyld-
unni í framkvæmdunum, sem hafi verið ómet-
anlegt.
Aðspurð að hverju sé mikilvægast að huga í
skipulagi heimilisins segir Tara hjarta heimilis-
ins skipta mestu máli. „Fjölskyldan ver sem
mestum tíma saman í sameiginlegu rými stofu,
borðstofu og eldhúss. Annað svefnherbergið
var stærra en eldhúsið og lá við stofuna, þar af
leiðandi þótti okkur kjörið tækifæri að víxla
þessum tveimur rýmum og brjóta vegginn á
milli svo við gætum átt stærra sameiginlegt
rými.“
Áhersla á gæði
Tara er alin upp á heimili þar sem hlutir þurfa
að hafa fallegt form og notagildi og áhersla lögð
frekar á að kaupa vandaða hluti og þá sjaldan
og segir hún stílinn sinn hafa mótast af því hug-
arfari. „Annars er ég opin fyrir flestu. Ég nota
og kaupi það sem mér finnst fallegt hverju sinni
en reyni að fylgja þeim áhrifum sem uppeldið
hefur haft.“ Hvað varðar nýlegri muni verslar
parið helst í HAF Store, Ikea, Dimm og Snúr-
unni. „Einnig er ég dugleg að kíkja á nytja-
markaði, þar er stundum hægt að detta niður á
góða vandaða hluti. Auðvitað spilar uppeldið
inn í; kaupa frekar vandað og sjaldan.“
Spurð hver sé eftirlætishlutur hennar á
heimilinu svarar Tara: „Mér þykir óskaplega
vænt um teppi sem mamma heklaði handa mér
Málverkið er eftir Hafstein Austmann og veggvasarnir eru frá Ker.
1.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19