Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Qupperneq 19
Baðherbergið er flísalagt með terrazzo-flísum. Innréttingin er sérhönnuð og kemur ákaflega vel út. Hjarta heimilisins skiptir mestu máli Tara Brynjarsdóttir grunnskólakennari býr ásamt Agli Þormóðssyni og dóttur þeirra Aríu í fallegu og nýlega innréttuðu heimili í Laugardalnum í Reykjavík. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Tara velur vandaða muni með notagildi. Stofan er opin og björt. Fiskibeinaparketið er sér- staklega glæsilegt. þegar ég var yngri, sem er rúmteppið hennar Aríu núna. Svo held ég fast í alla hluti sem ég hef erft og hafa tilfinningalegt gildi.“ Margir af fallegum munum heimilisins eru einmitt frá langömmum Töru og Egils. Tara er jafnframt dugleg að skoða Pinterest í leit að innblæstri. „Þá horfum við Egill mikið á The Block Australia sem eru frábærir þættir til þess að fá hugmyndir. Mamma og tengda- mamma eru líka duglegar að sýna mér fallega hluti og rými. Kolla tengdamamma er dugleg að ýta mér út fyrir þægindarammann og koma með góðar hugmyndir.“ Aðspurð hvaða rými sé í eftirlæti á heimilinu nefnir Tara eldhúsið. „Ég naut þess munaðar að fá að hanna draumaeldhúsið mitt, hluti þess var að við færðum til veggi. Við mæðgur erum duglegar í eldhúsinu og eigum margar gæða- stundir þar.“ Fjölskyldan kann ákaflega vel við sig í Laugardalnum en Egill ólst þar upp. „Allt það helsta er í göngufæri; sundlaugin, verslun, fiskbúð, bakarí og heilsurækt, að auki góðir skólar og íþróttafélög. Þegar við fórum að skoða íbúðir heillaði þessi staðsetning okkur mest! Ekki skemmir fyrir að ég vinn svo í göngufæri frá heimilinu þannig að við þurfum ekki að nota bíl eins mikið og áður.“ Tara og Egill fengu íbúðina afhenta í októ-ber 2018 og hófust þá strax handa viðframkvæmdir en þau fluttu inn í mars 2019. Parið gjörbreytti íbúðinni og fékk hönn- unarteymið HAF Studio til þess að teikna og endurskipuleggja íbúðina. „Við færðum útidyrahurðina, eldhúsið og baðherbergið ásamt því að brjóta niður veggi til þess að opna íbúðina alla, við þetta varð hún mun bjartari og skemmtilegri. Ekki skemmir heldur að við fengum þetta æðislega fjöl- skylduvæna rými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi,“ útskýrir Tara og bætir við að þau hafi fengið mikla hjálp frá fjölskyld- unni í framkvæmdunum, sem hafi verið ómet- anlegt. Aðspurð að hverju sé mikilvægast að huga í skipulagi heimilisins segir Tara hjarta heimilis- ins skipta mestu máli. „Fjölskyldan ver sem mestum tíma saman í sameiginlegu rými stofu, borðstofu og eldhúss. Annað svefnherbergið var stærra en eldhúsið og lá við stofuna, þar af leiðandi þótti okkur kjörið tækifæri að víxla þessum tveimur rýmum og brjóta vegginn á milli svo við gætum átt stærra sameiginlegt rými.“ Áhersla á gæði Tara er alin upp á heimili þar sem hlutir þurfa að hafa fallegt form og notagildi og áhersla lögð frekar á að kaupa vandaða hluti og þá sjaldan og segir hún stílinn sinn hafa mótast af því hug- arfari. „Annars er ég opin fyrir flestu. Ég nota og kaupi það sem mér finnst fallegt hverju sinni en reyni að fylgja þeim áhrifum sem uppeldið hefur haft.“ Hvað varðar nýlegri muni verslar parið helst í HAF Store, Ikea, Dimm og Snúr- unni. „Einnig er ég dugleg að kíkja á nytja- markaði, þar er stundum hægt að detta niður á góða vandaða hluti. Auðvitað spilar uppeldið inn í; kaupa frekar vandað og sjaldan.“ Spurð hver sé eftirlætishlutur hennar á heimilinu svarar Tara: „Mér þykir óskaplega vænt um teppi sem mamma heklaði handa mér Málverkið er eftir Hafstein Austmann og veggvasarnir eru frá Ker. 1.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.