Smári - 01.10.1929, Page 3
S M Á R I
35
Frá íþróttalífinu.
Sumri hallar. Dagarnir styttast, en næturnar lengjast. „Blóm eru fölnuð í
brekkunum öll“ og. „söngvarar sumarsins" eru „svifnir af ströndum'\ Vetur
konungur er að ná völdum í norðurheimi og mun nú ætla að byggja klaka-
borgir og hjúpa land vort hvítum fannafeldi. Ei skal sumars sakna, þótt
inndælt væri, heldur vetri fagna eftir föngum, því, þrátt fyrir alt, á hann
margt gott í skauti til handa íslenskum börnum: fsinn á tjörnum og flóum,
mjúku mjallarbreiðuna í brekkum og á grundum, stjörnu- og norðurljósa-
dýrð, rýmri tíma til að iðka leiki, skóla- og fjelagsstörf o. s. frv. Iðkan
íþrótta er hreystilind æskunnar. Víða notar æskulýðutinn sjer þær lindir vel,
en ekki allstaðar. Hvatningar er þörf. Og dæmi Norðmanna ætti að vera
okkur brýning: Þar æfa unglingarnir sig hver heima hjá sjer í fýrstu, t. d. í
skfðahlaupum. Svo er haldið kappmót innansveitar. Og svo senda bygðar-
lögin þá bestu til að keppa á landsmótum. — Myndin hjer ofan við er
norsk. Hún er frá skíðakapphiaupi veturinn 1928. Skeiðið var 50 km.! Á
þeirri leið nema keppendurnir staðar einstöku sinnum, til að fá sjer hress-
ingu, sem íþróttavinir hafa þeim tilbúna. Eru það svaladrykkir, mjólk eða
ávextir. En víns og tóbaks neytir enginn sannur íþróttamaður, sem marki
cetíar sjer fyrstur að ná.
Ef „Srnári" mætti segja börnum og unglingum fyrir störfum í vetur, þá
yrði það á þessa Ieið: Stundaðu skólanámið af kappi. Vertu á skautum
eða skíðum nokkra stund daglega, þegar fœri gefst. Helgaðu barnastúk-
unni eða fjelaginu þínu dálitla stund daglega. Iðkaðu tafl og lestu íslend-
ingasögurnar, Og umfram alt: Vertu foreldrum þínum og kennurum hug-
Ijúfur — og þá mun guð blessa þig, ungur lesandi!
S-t’un3a3/w ohólanámid -íux'ppsamtcyal