Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 70
Smaronia
– Náttúrulegt gel við þurrki í leggöngum
Njóttu þess að vera kona!
• Byggir upp heilbrigðan vef og dregur úr þynningu slímhúðar
• Minnkar kláða, sviða, þurrk og særindi í leggöngum
• Náttúruleg innihaldsefni án viðbættra hormóna
15%
af sölu
fer til LÍF
15% af hverri seldri vöru á tímabilinu 15.09.19 – 15.10.19 renna til styrktar LÍF styrktarfélags
Arna Sigrún Haraldsdóttir, skipuleggjandi viðburðar-ins, segist hætt að geta talið
hversu oft markaðurinn hefur
verið haldinn, þrátt fyrir að þetta
hafi farið af stað fyrir aðeins rétt
rúmu ári, eða sumarið 2018. „Ég
er eiginlega búin að missa töluna
á því hvað við höfum haldið þetta
oft,“ segir hún og hlær. „Við höfum
haldið þetta nokkrum sinnum á
ári, einn dag, annaðhvort laugar-
dag eða sunnudag.
Fyrst vorum við bara sjö versl-
anir saman í húsi úti á Granda, svo
hefur alltaf bæst aðeins í og við
höfum verið víðs vegar, við höfum
verið á Kex nokkrum sinnum, á
Hótel Sögu og Firði í Hafnarfirði,“
útskýrir Arna. „Þetta er orðið
svolítið þéttur hópur sem kemur
saman á þessa markaði þó svo að
ég skipuleggi það.“
Betri tenging við kaupendur
Kveikjan að markaðinum var
löngun eigenda netverslana til að
tengjast viðskiptavinum í raun-
heimum. „Við erum svo mörg sem
rekum netverslanir og vantar
meiri tengsl við viðskiptavinina.
Markmiðið er í rauninni bara að
geta veitt viðskiptavinunum betri
þjónustu, að við sem erum með
netverslanir fáum tækifæri til
þess að hitta viðskiptavinina eða
viðskiptavinirnir okkur og
fái tækifæri til þess að spjalla
eða fræðast um vöru eða læra.“
Vörurnar séu þess eðlis að
áhugasamir vilji oft sjá þær með
eigin augum og ræða við seljendur.
„Við erum mörg með vörur sem
viðskiptavinir vilja þreifa á eða
skoða eða fá ráðleggingar sem er
aðeins erfiðara í netverslun, þann-
ig að þetta var dálítið til þess að
bæta við þessum snertifleti sem
vantaði.“
Þá er félagslega hliðin einnig
mikilvæg. „Svo náttúrlega sækjum
við styrk í það að vera saman, ég
myndi ekkert vilja vera með svona
markað ein en af því að við erum
kannski 10-15 verslanir saman þá
er það svona öðruvísi.
Svipað þenkjandi samfélag
Við eigum bara það allt sam-
eiginlegt að vera öll með eitthvað
umhverfisvænt,“ segir Arna. „Það
er kannski undirliggjandi í öllu
sem við gerum, við sem erum að
vinna með umhverfisvænar vörur
erum að gera það af einhvers konar
hugsjón.
Ég hafði samband við þær versl-
anir sem mér fannst eiga erindi, og
svo stofnuðum við Facebook-hóp
sem samanstendur af stjórnendum
umhverfisvænna netverslana, þar
sem við getum skipst á ráðum og
spjallað um þessa markaði.“
Þátttakendur markaðarins
koma úr ýmsum áttum. „Ég er
menntaður fatahönnuður og með
MBA-gráðu í viðskiptafræði,“ segir
Arna en vörurnar sem hún selur
eru svokallaðar túrnærbuxur.
„Verandi menntaður fatahönn-
uður þá fylgist ég með þróuninni
í tísku og textíl þannig að þegar
túrbuxur komu á markaðinn var
ég með puttann á púlsinum.“
Kærleiksríkt andrúmsloft
Arna segir kjarnann í hópnum
orðinn náinn og að andrúmsloftið
sé vingjarnlegt. „Þetta er alltaf
sami hópurinn aftur og aftur, svo
bætist í og dettur úr svona eftir
atvikum en þetta er orðinn hópur
sem þekkist vel.“ Hún er ekki frá
því að fólk í þessum pælingum
hafi sterka tilhneigingu til þess
að vera almennilegt og vanda sig
í samskiptum. „Þetta er allt mjög
vinalegt og mér sýnist að fólk sem
starfar í þessum geira, við eitthvað
umhverfisvænt, sé alveg sérstak-
lega kurteist og öll samvinna
gengur rosalega vel.“
Þegar Arna er spurð hvort þetta
séu allt konur svarar hún játandi
en tekur fram að hún hafi þó ekki
velt því fyrir sér áður. „Allir eig-
endur þessara verslana eru konur,
það er einn þátttakandi sem hefur
verið með en ekki alltaf sem eru
þá tvenn hjón, karlar og konur, en
annars eru þetta allt konur sem
eru að reka þessar verslanir,“ segir
hún hugsi. „Svo koma karlarnir
alltaf að hjálpa við að bera, stilla
upp og ganga frá og svona, en
svo fara þeir bara heim að passa
börnin á meðan við erum að vinna
á markaðinum.“
Vörur netverslana á einum stað
Arna Sigrún Haraldsdóttir, skipuleggjandi markaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í dag verður
mikið um að vera
á Eiðistorgi en þar
verður haldinn
Umhverfisvæni
markaðurinn frá
klukkan 11-17.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
F
3
-8
9
E
0
2
3
F
3
-8
8
A
4
2
3
F
3
-8
7
6
8
2
3
F
3
-8
6
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K