Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.11.1995, Side 13

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.11.1995, Side 13
Utanríkisverslun 1994, Vöruflokkar og viðskiptalönd 1 1 Lönd Við skilgreiningu á löndum fy Igir Hagstofan hinum alþjóðlega staðli ISO-3166. Árið 1994 urðu þærbreytingarhelstaraðí stað þess að Júgóslavía stæði fyrir öll ríki fyrrum Júgóslavíu stendur hún nú aðeins fyrir Serbíu og Svartfjallaland en Króatía, Slóvenía, Makedónía og Bosnía-Hersegóvína hafa eigin landakóða. Öll landaskipting er miðuð við neyslulönd hvað útflutning snertirog framleiðslulönd hvað varðar innflutning. Þannig er leitast við að greina endanlegan áfangastað útfluttrar vöru og upprunaland innfluttrar vöru en ekki söluland eða það land sem útflutningurinn fer til eða innflutningurinn kemur frá. Fyrir kemur að útflytjanda eða innflytjanda er ókunnugt um endanlegt móttökuland eða upprunaland vörunnarog verður þá að skrá á skýrslu það land sem útflutningurinn fer til eða innflutningurinn kemur frá í stað notkunarlands eða uppruna- lands. Verðreikningur Verðmæti innfluttrar vöru er ýmist sýnt á cif-verði eða fob- verði en verðmæti útflutnings á eingöngu fob-verði. Með fob-verði (free on board) er átt við verð vörunnar komið um borð í flutningsfar í útflutningslandi. í cif-verði (cost, insur- ance, freight) er einnig talinn sá kostnaður sem fellur á vöruna þar til henni er skipað upp í innflutningslandi. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og vátryggingu. í hag- skýrslum um utanríkisverslun er venjan sú að innflutningur ertalinn á cif-verði en útflutningur á fob-verði. Eðli málsins samkvæmt á þó þessi regla ekki við um ferskan fisk sem seldur er í erlendum höfnum. Við verðákvörðun þessa út- flutnings er farið eftir reglum Fiskifélags Islands um út- reikning útflutningsverðmætis ísfisks og bræðslufisks þar sem frá brúttósöluverði eru dregnir tilteknir kostnaðarliðir, mismunandi eftir löndum. Hér er um að ræða löndunarkostnað og hafnargjöld, toll og sölukostnað. Tölur um verðmæti innflutnings eru fengnar með því að umreikna verðmæti vörunnar í erlendum gjaldeyri til ís- lenskra króna miðað við sölugengi viðkomandi gjaldmiðils. Aftur á móti eru útflutningstölur miðaðar við kaupgengi. Viðmiðunargengið er svokallað tollgengi sem er hið opinbera gengi skráð af Seðlabanka Islands 28. hvers mánaðar eða, sé það ekki virkur dagur, næsta rúmhelgan dag. Magn Með magni útflutnings og innflutnings er átt við nettóþyngd (þ.e. þyngd án umbúða) hans í tonnum nema annað sé tilgreintsérstaklega.Iþessuritierítöflum !9og21 tilgreindur fjöldi útfluttra hrossa í stað þyngdar þeirra í tonnum en þyngd þeirra er meðtalin í samtölu fyrir landbúnaðarvörur í töflu 19. Utanríkisverslun 1994 Vöruskiptajöfnuður I I. yfirliti er sýnd þróun utanríkisverslunar áratuginn 1985- 1994, annars vegar á gengi hvers árs og hins vegar á meðal- gengi ársins 1994. Innflutningur er hér sýndur á cif-verði en útflutningur á fob-verði. Á árinu 1994 nam verðmæti vöruútflutningsinsíheild 112,7 milljörðumkrónafobámóti 102,5 milljarða heildarvöruinnflutningi cif. Þetta þýðir að útflutningur umfram innflutning á árinu 1994 nam 10,1 milljarði. Á þennan mælikvarða hefur verið halli á utanríkis- versluninni allan þennan áratug að undanskildum árunum 1993 og 1994. Hallinn hefur verið mismikill eða frá um 0,7% af útflutningsverðmæti árið 1989, upp í 15,4% árið 1987 en tvö síðastliðin ár hefur verið afgangur á vöruviðskiptunum, 3,5% af útflutningsverðmæti árið 1993 og 9,0 árið 1994. 1. yfirlit. Utanríkisverslun 1985-1994 í mil j. kr. á gengi hvers árs í millj. kr. á gengi ársins 1994 11 Útflutt umfram innflutt í % af útflutningi Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif) Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif) 1985 33.750 37.600 -3.851 73.762 82.178 -8.416 -11,4 1986 44.968 45.905 -938 85.431 87.211 -1.781 -2,1 1987 53.053 61.232 -8.179 97.210 112.185 -14.975 -15.4 1988 61.667 68.723 -7.057 98.952 110.232 -11.280 -11.4 1989 80.072 80.599 -528 102.135 102.808 -673 -0,7 1990 92.625 96.621 -3.996 106.057 110.632 -4.575 -4,3 1991 91.560 104.129 -12.569 104.838 119.229 -14.391 - 13,7 1992 87.833 96.895 -9.063 100.069 110.394 -10.325 -10,3 1993 94.658 91.307 3.351 99.580 96.055 3.525 3,5 1994 112.654 102.541 10.113 112.654 102.541 10.113 9,0 11 Miðað við meðalgengi á viðskiptavog. Innflutningur er gerður upp á fob-verði í íslenskum þjóð- hagsreikningum. Mismunur cif-verðs og fob-verðs, aðallega farmgjöld og vátrygging, færist þá á útgjaldahlið þjónustureiknings. Niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala vöru- og þjónustureiknings) verður því hin sama óháð því hvorri aðferðinni er beitt. Tölur um vöruskipta- jöfnuð breytast hins vegar ntikið. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir vöruskiptajöfnuðinn þar sem verðmæti útflutnings og innflutnings er hvort tveggja reiknað á fob-verði. Til þess að gefa betri vísbendingu um stærð vöruskiptajöfnuðarins er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd
https://timarit.is/publication/1381

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.