Vinnumarkaður - 01.06.1995, Blaðsíða 5
Formáli
í þessu riti birtast niðurstöður heildarúrvinnslu úr vinnu-
markaðskönnunum Hagstofu Islands árið 1994 ásamt
samanburðarefni fyrir árin 1992-1993.
Hagstofa Islands hóf gerð reglubundinna kannana á
vinnumarkaðnum í aprfl 1991. Tvisvará ári er leitað símleiðis
til um 4.400 einstaklinga á aldrinum 16-74 ára sem valdir
eru af handahófí úr þjóðskrá og þeir spurðir um stöðu sína
á vinnumarkaði.
Efni þessarar skýrslu er skipt í fjóra meginflokka. Kafli 1
dregur fram helstu niðurstöður úr talnaefni því sem birt er.
I kafla 2 er gerð grein fyrir aðferðum, áreiðanleika og
hugtökum. Kafli 3 hefur að geyma enska útgáfu af þeirri
greinargerð. I köflum 4 til 6 eru myndir og töflur úr
vinnumarkaðskönnunum Hagstofu Islands 1992-1994. í
köflum 7 til 10 eru birt yfirlit yfír vinnumarkaðinn á sama
árabili sem byggjast á öðrum gögnum en vinnumarkaðs-
könnunum.
Undirbúningur, framkvæmd og úrvinnsla kannananna fór
öll fram á Hagstofunni. Margir hafa unnið við hana. Má þar
einkum nefna Einar Ólafsson, Hrönn Helgadóttur, Lárus
Blöndal og Ómar S. Harðarson. Höfundar þessarar skýrslu
eru Ómar S. Harðarson og Lárus Blöndal en Sigurborg
Steingrímsdóttir annaðist umbrot ritsins.
Við vinnumarkaðskannanirnar sex, árin 1992-1994, hafa
tæplega 9.000 manns verið spurðir af 53 spyrlum. Hagstofan
kann öllu þessu fólki bestu þakkir fyrir ágætt samstarf.
Hagstofa Islands í júní 1995
Hallgrímur Snorrason
Preface
Statistics Iceland began conducting regular labour market
surveys in April 1991. Twice a year the Bureau contacts by
telephone approximately 4,400 individuals who are picked
at random from the national register of persons and inter-
viewed about their employment status.
The present report contains an account of the results of
Iabour market surveys in the years 1992-1994 as well
selected data from other sources concerning the labour
market in the same period. The report gives an account of
the sampling, participation, participants, procedure, process-
ing and results of these surveys. Ómar S. Harðarson and
Lárus Blöndal prepared this publication.
The preparation, execution and processing of the surveys
was conducted exclusively by the Bureau's staff. In the six
surveys in 1992-1994 some 9,000 persons were interviewed
by 53 interviewers. The Bureau wishes to express its
gratitude to all these people for their excellent cooperation.
Statistics Iceland in June 1995
Hallgrímur Snorrason