Vinnumarkaður - 01.06.1995, Blaðsíða 21
Greinargerð um aðferðir og hugtök
19
Brottfallsskekkjur. f öllum rannsóknum geta niðurstöður
skekkst vegna þess að brottfall í úrtakinu dreifist misjafnlega.
Helstu ástæður brottfalls eru neitun, erfiðleikar vegna
veikinda eða fötlunar, fjarvera frá heimili meðan könnun
stendur yfir eða að ekki tekst að finna heimili eða símanúmer
þeirra sem veljast í úrtakið.
Yfirleitt reynist erfiðara að ná til karla en kvenna. Oftast
er það vegna fjarveru frá heimili eða þess að ekki tekst að
finna þátttakendur. Erfiðara er að hafa upp á ungu fólki í
síma en þeim sem eldri eru. Þá reynist fólk á höfuðborgar-
svæðinu oftar fjarverandi en fólk annars staðar á landinu.
Konur, höfuðborgarbúar og eldra fólk eru líklegri en aðrir
að neita að taka þátt í könnuninni. Hins vegar eru konur, fólk
utan höfuðborgarsvæðis og fólk á miðjum aldri að jafnaði
með hærra svarhlutfall en aðrir þátttakendur enda eru þessir
hópar oftast aðgengilegir í síma. (Tafla 2.5).
Vegna mismikilla affalla hafa niðurstöður verið vegnar
eftir kyni og aldri.
Tafla 2.5. Heimtur og afföll í hlutfalli af nettó úrtaki eftir aldri, búsetu og kyni 1992-1994
Table 2.5. Response and non-response as percentage of net sample by age group, residence and sex 1992-1994
Óvegnarhlutfallstölur Unweighted percentages Alls Total Höfuðborgars v æði Capital region Utanhöfuðborgarsvæðis Other regions
Alls Karlar Konur Alls Karlar Konur Alls Karlar Konur
Total Males Females Total Males Females Total Males Females
Svör Responses
Alls Total 88,2 87,5 89,0 86,9 85,8 88,0 90,2 89,9 90,5
16-24 ára years 89,4 89,3 89,5 89,2 89,2 89,1 89,7 89,4 90,0
25 - 54 ára years 88,8 87,5 90,2 87,4 85,7 89,2 91,0 90,2 91,9
55 - 74 ára years 85,4 85,9 85,0 83,4 83,1 83,7 88,5 89,8 87,1
Neitanir Refusals
AIls Total 4,9 4,4 5,3 5,5 5,1 5,8 4,0 3,5 4,6
16 - 24 ára years 2,6 2,5 2,6 3,0 3,0 3,1 2,0 2,1 2,0
25 - 54 ára years 4,9 4,5 5,3 5,3 5,1 5,5 4,2 3,5 5,0
55 - 74 ára years 7,0 6,1 7,9 7,9 7,0 8,8 5,6 4,9 6,3
Fjarverandi/finnast ekki
Not at home/no contact
Alls Total 5,5 6,5 4,6 6,1 7,2 5,0 4,7 5,3 3,9
16-24 ára years 7,0 7,0 7,0 6,9 6,7 7,0 7,2 7,3 7,0
25 - 54 ára years 5,5 6,8 4,1 6,3 7,7 4,9 4,2 5,5 2,8
55 - 74 ára years 4,4 5,0 3,8 5,0 6,3 3,7 3,4 3,0 3,8
Veikir lll/disabled
Alls Total 1,4 1,6 U 1,5 1,9 1,2 1,1 1,2 1,0
16 - 24 ára years 1,0 1.2 0,8 0,9 1.1 0,7 1.1 1,3 1,0
25 - 54 ára years 0,8 1,2 0,4 0,9 1.5 0,4 0,6 0,8 0,3
55 - 74 ára years 3,2 3,1 3,4 3,7 3,6 3,7 2,5 2,4 2,8
Af einstaka starfsstéttum eru það sjómenn og aðrir sem
vinna fjarri heimili sínu sem eru hlutfallslega flestir í hópi
þeirra sem annað hvort eru fjarverandi eða finnast ekki. Frá
og með nóvember 1993 hefur verið reynt að mæta þessu
sérstaklega með því að leggja spumingar fyrir maka eða
foreldra þessara þátttakenda. Fjöldi slíkra svara er þó
óverulegur eða um 0,5% af öllum svörum.
Annars konar brottfall varðar svör við einstökum
spumingum. Þótt einstaklingur sé tilbúinn að taka þátt í
könnun getur verið að hann vilji ekki svara einstökum
spumingum, annað hvort vegna þess að þær ganga honum
nærri eða hann man ekki eða veit ekki rétta svarið. Einnig
getur slíkt brottfall stafað af því að spyrlum láðist að leggja
fram spurninguna eða gleymdu að skrá svarið.
I stað þess að láta slíkt brottfall afskiptalaust hefur í
þessari skýrslu verið fyllt upp í öll ófullgerð svör með
sérstökum aðferðum. Þessar aðferðir eru aðallega tvenns
konar. Annars vegar hefur líklegt svar verið leitt af svömm
annarra líkra svarenda. Til dæmis hafa ónýt svör um
vinnutíma verið reiknuð með tilliti til dreifingar vinnutíma
eftir kyni, starfshlutfalli og starfsstétt. Hins vegar hefur
líklegt svar verið leitt af öðrum svörum sama einstaklings í
sömu könnun eða fyrri skipti sem hann hefur tekið þátt.
Mælingarskekkjur. Mælingarskekkjum má skipta í þrjá
flokka: Skekkjur vegna mistaka í viðtölum, skekkjur vegna
úrvinnslu og skekkjur vegna könnunarsniðsins.
Viðtalsskekkjur. Spyrlar geta skráð svör viðmælenda
sinna ranglega, hlaupið yfir spurningar, ruglast í röð þeirra
eða umorðað þær þannig að innihald verði annað en til stóð.
Einkum bar á slíkum vandamálum þegar notuð voru prentuð
spurningablöð.
I vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnarerreynt að vinna