Vinnumarkaður - 01.06.1995, Blaðsíða 25

Vinnumarkaður - 01.06.1995, Blaðsíða 25
Greinargerð um aðferðir og hugtök 23 um mannaflatölur 1993 og 1994 er stuðst við sömu hlutfallslegu skiptingu eftir kyni og búsetu og niðurstöður ársins 1992 bentu til. Skráð atvinnuleysi eftir aldri og lengd atvinnuleysis. Hagstofan hefur safnað gögnum um tímalengd skráðs atvinnuleysis eftir aldri og kyni í lok febrúar, maí, ágúst og nóvember frá 1986. Fram til maí 1993 var einungis leitað eftir skýrslum frá sveitarfélögum sem höfðu samkvæmt lögum skyldu tilaðrekaopinberavinnumiðlun, þ.e. sveitarfélöpum með 500 eða fleiri íbúa. Þessir staðir voru innan við 80.1 júlí og ágúst 1993 gerði Hagstofan sérstaka könnun meðal allra sveitarfélaga í landinu á því hverjir sjá um opinbera atvinnuleysisskráningu fyrir hönd viðkomandi sveitarfélags. Frá og með ágúst 1993 hefur verið aflað skýrslna frá öllum þeim sveitarfélögum og vinnumiðlunum, um 140 að tölu, sem skráatvinnuleysi samkvæmtþessari athugun. Eftirþessa könnun hafa heimtur á skýrslum um þennan þátt atvinnuleysis verið um 100%. Aldursskipting í gögnum er miðuð við fæðingarár. I febrúar og maí er miðað við þá sem verða 16 ára og eldri í árslok. 1 ágúst og nóvember er miðað við þá sem verða 15 ára og eldri í árslok. Tölur um atvinnulausa ná til allra þeirra sem eru skráðir atvinnulausir á viðmiðunardegi, hvort sem þeir eiga rétt á bótum eða ekki. 2.2.3 Hugtök Aætlaður mannafli. Aætlaður mannafli telst vera áætlaður fjöldi ársverka eða heildarfjöldi ígilda fullra starfa. Tvö hlutastörf með 50% starfshlutfalli teljast eitt ársverk. I ársverkum eru talin töpuð ársverk vegna atvinnuleysis. Meðalatvinnuleysi í mánuði. Meðalatvinnuleysi í mánuði er fundið með því að deila meðalfjölda virkra daga í mánuði (21,67 dagur) í fjölda skráðra atvinnuleysisdaga. Tímalengd skráðs atvinnuleysis. Með tímalengd skráðs atvinnuleysis er átt við fjölda vikna sem einstaklingur hefur verið samfellt á atvinnuleysisskrá á viðmiðunardegi. Þótt einstaklingur missi rétt til atvinnuleysisbóta fellur hann þar með ekki af atvinnuleysisskrá. Ihlaupavinna eða hlutavinna hefur heldur ekki áhrif á talningu atvinnuley sisvikna nema sú vinna valdi því að einstaklingur verði tekinn af atvinnu- leysisskrá í eina viku eða lengur. 2.3 Framreikningur vinnuafls 2.3.1 Uppruni gagna Hagstofan gerir á þriggja ára fresti mannfjöldaspár sem byggðar eru á mismunandi forsendum um fæðingartíðni, dánartíðni og flutninga til og frá landinu. Þessi spá var síðast gerð 1991. I Landshögum, ársriti Hagstofunnar, er jafnan birturnýjasti framreikningur mannfjöldans miðað við tilteknar forsendur um dánar- og fæðingartíðni og flutninga að og frá landinu. Framreikningur sá á vinnuafli sem hér er birtur er annars vegar byggður á mannfjöldaspá frá árinu 1991 sem birtist í Landshögum 1993 og hins vegar á vinnumarkaðskönnununt Hagstofunnar 1991-1993. 2.3.2 Forsendur Eftirfarandi forsendur liggjatil grundvallar vinnuaflsspánni: Dánartíðni er látin minnka um 0,5% á ári fram til ársins 2000 með upphafstíðni jafngamalla árganga 1985-1989. Eftirárið 2000erdánartíðni látin veraóbreytt. Fæðingartíðni er látin minnka niður í 1,9 böm á ævi hverrar konu frá og með árinu 1997. Meðaltíðni flutninga 1986-90 er látin gilda um brottflutninga, þó þannig að flutningar til og frá landinu eru Iátnir standa á jöfnu. Meðalatvinnuþátttaka 1991-1993 á hverju fimm ára aldursbili, j 16-19 ára, 20-24 ára, 25-29 ára .. 70-74 ára), að teknu tilliti til áætlaðs fjölda með aðsetur en ekki lögheimili erlendis, er látin vera óbreytt allt tímabilið fyrir sömu aldurshópa. 2.4 Fjöldi í stéttarfélögum 2.4.1 Uppruni gagna, þekja og áreiðanleiki Vegna skýrslugerðar um vinnumarkaðinn hóf Hagstofan árið 1994 að safna skýrslum um fjölda félagsmanna í stéttar- félögum 31. desember ár hvert eftir kyni og tegund aðildar. Leitað er til heildarsamtaka og einstakra stéttarfélaga utan heildarsamtaka sem eru á skrá hjá embætti Ríkissáttasemjara. Ef ekki fást skriflegar, sundurliðaðar upplýsingar er fjöldi félagsmanna áætlaður í samráði við forsvarsmenn viðkomandi sambanda eða stéttarfélaga. Tölur um heildarfjölda í stéttarfélögum ná ekki til félagsmanna með aukaaðild. f þessari útgáfu eru birtar leiðréttar tölur fyrir fjölda í stéttarfélögum árin 1991-1993 skv. síðustu upplýsingum. 2.4.2 Hugtök Virkur félagsmaður. Með virkum félagsmanni er átt við félagsmann sem greiðir félagsgjöld ti I viðkomandi stéttarfélags og nýtur allra réttinda innan þess, þ.m.t. atkvæðisréttar og kjörgengis. Fullgildur félagsmaður. Félagsmaður sem nýtur allra réttinda innan stéttarfélags, þ.m.t. atkvæðisréttar og kjörgengis, hvort sem hann greiðir félagsgjöld eða ekki. 2.5 Samanburður við önnur lönd 2.5.1 Uppruni gagna, þekja og áreiðanleiki Meginefni töflu um atvinnuþátttöku og atvinnuleysi nokkurra OECD-landa er fengið úr skýrslunni Labour Force Statistics 1972-1992, OECD 1994. Alþjóðlegumsamanburðiættiaðtakameðvissumfyrirvara þar sem ekki er alltaf víst að hugtök, aðferðir og flokkanir á gögnum séu sambærilegar milli landa. Fyrir hvert land hefur hins vegar verið vandlega gætt að því að viðhalda innbyrðis samhengi tímaraða svo að tölur milli ára séu sambærilegar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146

x

Vinnumarkaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.