Sveitarstjórnarkosningar - 01.03.1993, Síða 22

Sveitarstjórnarkosningar - 01.03.1993, Síða 22
20 Sveitarstjórnarkosningar 1990 voru 88.561 (49,9%) og konur 88.922 (50,1%), 361 fleiri. í tölu kjósenda á kjörskrá eiga ekki að vera taldir neinir, er fengu kosningarrétt eftir kjördag en áður en kjörskrá gekk úr gildi um komandi áramót, eða höfðu ekki kosningarrétt af öðrum ástæðum. Kjósendum fjölgaði um 8.445 frá síðustu sveitarstjórnar- kosningum, eða um 5,0%. Þá var tala þeirra 169.038, sem nam 69,6% afíbúatölunni. Kjósendur á aldrinum 18-21 árs, sem höfðu nú í fyrsta sinn aldur til að kjósa í sveitarstjórnar- kosningum, voru um 16.300 eða 9,2% kjósenda. Itöflu 1 ersýndtalakjósendaákjörskráíhverjusveitarfélagi og í 2. yfirliti er sýnd tala kjósenda á hvem sveitarstjórnarmann ogfjölgunkjósendafrákosningunum 1986. Þarermiðað við sömu sveitarfélög í hverjum flokki bæði árin og ræður flokkun þeirra 1990 hvar þau teljast. Norðurlandaborgarar, sem voru á kjörskrá, voru taldir sérstaklega í tvö fyrstu skiptin sem þeir höfðu kosningarrétt, 1982 og 1986. Ætlast var til þess að tala þeirra yrði einnig tilgreind á kosningarskýrslu hvers sveitarfélags við kosning- arnar 1990, en svo mikill misbrestur varð á þvi að það væri gert, að samtalning þeirra er marklaus. Kjósendatala á upphaflegum kjörskrárstofni var 180.235 en endanleg tala kjósenda á kjörskrá varð 2.742 lægri, eða 177.483 eins og fyrr segir. I Reykjavíklækkaði talan um 845 og í öðrum sveitarfélögum samtals um 1.907. Bæði kjörskrárstofn og endanleg kjörskrá eru unnin á sérstakan hátt fyrir Reykjavík og breytingar frá kjörskrárstofni ekki sambærilegar við brey tingar annars staðar. Skýrsla barst ekki um þetta úr Kópavogi, en þar voru 163 færri á kjörskrá en kjörskrárstofni. I öðrum sveitarfélögum breyttust upphaflegar tölur eftir kjörskrárstofnum, sem birtar voru í mars, sem hér segir: A kjörskrárstofni (án Reykjavíkur og Kópavogs) 97.638 Breytingar áður en kjörskrá var lögð fram: Bætt á kjörskrá +1.052 Teknir af kjörskrá -1.382 A kjörskrá þegar hún var lögðfram 97.308 Breytingar eftir að kjörskrá var lögð fram: Bætt á kjörskrá með kæru eða dómi +834 Teknir af kjörskrá með kæru eða dómi -580 Dánirfyrirkjördag -215 A kjörskrá á kjördegi 97.344 Fæddir 1972, ekki orðnir 18 ára á kjördegi -1.524 Með kosningarrétt á kjördegi 95.823 5. Kosningaþátttaka 5. Participation I sveitarstjómarkosningunum 1990 greiddu atkvæði 144.485 kjósendur í 199 sveitarfélögum, eða 82,0% af þeim 176.218 sem voru þar á kjörskrá. Er það næstum því sama þátttaka og 1986, en þá var hún 81,9%. Atkvæði greiddu 72.258 karlar og 72.227 konur, 31 færri. Var þátttaka karla 82,3% (82,3% 1986) og kvenna 81,7% (81,5% 1986). I töflu 1 er sýnd tala karla og kvenna, sem greiddu atkvæði, og kosningarþátttaka í hverju sveitarfélagi, og í töflu 2 eru sömu tölur fyrir hvern kjörstað í Reykjavík. í 2. yfirhti er sýnd skipting sveitarfélaganna eftir því hver þátttakan var. I 3. yfirliti er sýnd kosningarþátttaka karla og kvenna eftir flokkum s veitarfélaga og í sveitarfélögum með 1.000 íbúa og fleiri. Kosningarþátttaka er jafnan minni í óbundnum kosningum en listakosningum. Þar sem hlutbundin kosning var, varð þátttakan 82,7%, en 72,5% þar sem hún var óbundin. Mest kosningarþátttaka í sveitarfélögum með 1.000 íbua og fleiri var á Ólafsfirði, 94,7%, í Ólafsvík, 92,9% og á Blönduósi, 92,4%, en minnst á Akureyri, 71,7%, á Höfn, 77,5%, og á Egilsstöðum, 80,0%. í sveitarfélögum með 300-999 íbúa þar sem kosning var hlutbundin var þátttaka mest í Búlandshreppi, 95,1%. Eyrarsveit, 94,9%, og Breiðdalshreppi, 94,3%, en minnst í Patrekshreppi, 78,7%, Hvammstangahreppi, 82,6%, og Raufarhafnarhreppi, 83,0%. I sveitarfélögum með 300-999 íbúa þar sem kosning var óbundin var þátttaka mest í Gnúpverjahreppi, 83,8%, og Svalbarðsstrandarhreppi, 80,6%, en minnst í Aðaldælahreppi. 52,1%, og Grýtubakkahreppi, 60,6%. I sveitarfélögum með færri en 300 íbúa þar sem kosning var hlutbundin var þátttaka mest í Skarðshreppi í Skagafirði, 98,7%,ogNorðfjarðarhreppi,98,2%,enminnstíSúðavíkur- hreppi, 89,0%, og Grímsneshreppi, 89,1%. I sveitarfélögum með færri en 300 íbúa þar sem kosning var óbundin var þátttaka mest í Torfalækjarhreppi, 92,5%, Laugardalshreppi, 91,6%, og Austur-Eyjafjallahreppi, 90,1 %, en minnst í Geithellnahreppi, 40,7%, Miðdalahreppi, 47,2%, og Skagahreppi, 47,4%. I fimm sveitarfélögum greiddu allar konur á kjörskrá atkvæði. Þau voru Norðfjarðarhreppur, Skarðshreppur í Skagafirði, Snæfjallahreppur (3 konur á kjörskrá), Sveins- staðahreppur og Torfalækj arhreppur. Þátttaka karla var mest í Vestur-Landeyjahreppi, 98,4%, Eyrarsveit, 98,3%, og Hafnahreppi, 98,1%. Minnst var þátttaka karla í Geithellnahreppi, 36,4%, Skagahreppi, 48,6%, og Skorradalshreppi og Miðdalahreppi, 50%. Þátttaka kvenna var minnst, minni en 50%, í Fjalla- hreppi, 40,0% (5 konur á kjörskrá), Kirkjuhvammshreppi, 43,8%, Miðdalahreppi, 43,9%, Skagahreppi, 45,0% og Geithellnahreppi, 47,6%. 6. Atkvæði greidd utan kjörfundar 6. Absentee votes Kjósandi, sem gerir ráð fyrir því að hann geti ekki vegna fjarveru eða af öðrum ástæðum sótt kjörfund á kjördegi á þeim stað þar sem hann er á kjörskrá, hefur heimild til þess að greiða atkvæði utan kjörfundar. Með alþingiskosninga- lögunum frá 1987 var þessi heimild rýmkuð þannig að ekki þurfti lengur að tilgreina sérstaklega ástæðu fyrir atkvæða- greiðslu utan kjörfundar. Aður þurftu kjósendur að tilgreina tiltekna ástæðu fyrir því að vilja kjósa utan kjörfundar og vera staddir utan þess sveitarfélags, þar sem þeir stóðu á kjörskrá, eða gera ráð fyrir að verða það. Sömu heimild höfðu þeir, sem samkvæmt læknisvottorði var gert ráð fyrir að dveldust á sjúkrahúsi á kjördegi, barnshafandi konur sem ætla mátti að

x

Sveitarstjórnarkosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarkosningar
https://timarit.is/publication/1386

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.