Sveitarstjórnarkosningar - 01.04.1998, Blaðsíða 9

Sveitarstjórnarkosningar - 01.04.1998, Blaðsíða 9
Inngangur Introduction 1. Lög um sveitarstjórnarkosningar 1. Legislation concerning local government elections Um kosningar til sveitarstjóma gilda lög um kosningar til Alþingis frá árinu 19871, með þeim frávikum sem kveðið er á um í sveitarstjómarlögum sem sett vom árið 1986.2 Samkvæmt þeim er kjörtímabil sveitarstjóma fjögur ár og fara almennar sveitarstjómarkosningar fram síðasta laugardag í maímánuði sem ekki ber upp á laugardag fyrir hvítasunnu. Heimilt er, að ósk sveitarstjóma, að fresta kosningum í sveitarfélögum, þar sem færri en 3A hlutar íbúanna em búsettir í kauptúnum, til annars laugardags í júní. Ósk um frestun kosninga skal hafa borist félagsmálaráðuneytinu fyrir 1. apríl kosningaársins.3 Fulltrúar í sveitarstjómum skulu kjömir í leynilegum almennum kosningum sem era með tvennu móti: a. Bundnar hlutfallskosningar þar sem kosning er bundin við framboð á listum og fulltrúar á hverjum lista ná kjöri í hlutfalli við það atkvæðamagn sem listinn fær. b. Óbundnar kosningar þar sem kosning er ekki bundin við framboð en allir kjósendur era í kjöri nema þeir sem löglega era undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir ffam skorast undan því.4 I sveitarfélögum, þar sem íbúar eru fleiri en 300, skal kjósa bundinni hlutfallskosningu. í öðram sveitarfélögum skulu kosningar vera óbundnar. Þó skal einnig þar kjósa bundinni hlutfallskosningu ef 20 kjósendur eða einn tíundi hluti kjósenda krefjast þess í bréfi stíluðu til oddvita yfirkjörstjómar eigi síðar en sex vikum fyrir kjördag. Nú kemur enginn framboðslisti fr am áður en fr amboðsfresti lýkur eða svo fá nöfn eru á ffamboðslistum að sveitarstjóm verður ekki fullskipuð í bundinni kosningu og skal þá kosning verða óbundin. Nú kemur aðeins ffam einn ffamboðslisti og skal þá yfirkjörstjóm ffamlengja ffamboðsffest um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr ffamboðslisti áður en þeim ffesti lýkur verður ffam kominn ffamboðslisti sjálfkjörinn.5 Þegar almennar sveitarstjómarkosningar eiga að fara fram skulu öll ffamboð tilkynnt skriflega yfirkjörstjóm þeirri sem í hlut á eigi síðar en kl. 12 á hádegi þann dag þegar fj órar vikur eru til kjördags.6 1 Lög um kosningar til Alþingis nr. 80 16. október 1987, sbr. lög nr. 10/1991 og lög nr. 92/1991. 2 12. gr. sveitarstjómarlaga nr. 8 18. apríl 1986. 3 1. mgr. 13. gr. laga nr. 8/1986. 4 14. gr. laga nr. 8/1986. 5 15. gr. laga nr. 8/1986. 6 1. mgr. 27. gr. laga nr. 8/1986, sbr. 4. gr. laga nr. 19/1994. Sveitarstjómarlögin 1986 komu í stað sveitarstjómarlaga ffá árinu 19617, laga um sveitarstjómarkosningar ffá 1962* og laga um sameiningu sveitarfélaga frá 1970.9 Kosningartíminn er meðal þeirra atriða sem þessi lög breyta. Eftir sveitarstjómarlögunum ffá 1961 var kosið til sveitarstj ómar í kaupstöðum og þeim hreppum, þar sem fullir 3A íbúanna bjuggu í kauptúni (,,kauptúnahreppum“), síðasta sunnudag í maímánuði, sem ekki bar upp á hvítasunnu, en í öðrum hreppum síðasta sunnudag í júní. Með breytingu á lögunum árið 198210, sem kom til framkvæmda þá um vorið, var kosningardagur færður frá sunnudegi til laugardags á sama tíma, og skyldi hann á sama hátt ekki bera upp á aðfangadag hvítasunnu. Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða varðandi kosningamar 1986" gilti fyrri skipan á kosninga- tímanum að öðm leyti en því, að þar sem annars hefði verið kosið síðasta laugardag í júní var kosið annan laugardag í júní. Samkvæmt eldri lögum var ákveðið að í kaupstöðum og kauptúnahreppum skyldi kosning vera hlutbundin, nema enginn listi kæmi ffam, þá yrði hún óhlutbundin. í þeim hreppum, sem kosið var í i júní, skyldi kosning vera óbundin, nema l/w hluti kjósenda eða 25 þeirra hið fæsta krefðust hlutbundinnar kosningar.12 Til þess að ffamboðslisti teljist réttilega borinn fram þarf tiltekinn fjöldi kjósenda að mæla með listanum. Lágmarks- fjöldi meðmælenda er 10 í sveitarfélagi með færri en 500 ibúa, 20 í sveitarfélagi með 501-2.000 íbúa, 40 í sveitarfélagi með 2.001-16.000 íbúa og 100 í sveitarfélagi með 16.001 íbúa og fleiri. Hámarkstala meðmælenda er tvöfold tilskilin lágmarkstala.13 Samkvæmt núgildandi sveitarstjórnarlögum nefnast sveitarfélög hreppar, bæir eða kaupstaðir.14 Þar sem meiri hluti íbúa hrepps býr í þéttbýli og íbúafjöldi hefur náð að minnsta kosti 1.000 í þrjú ár samfellt, getur hreppsnefnd ákveðið í samþykkt um stjóm sveitarfélagsins að það nefnist kaupstaður eða bær, og nýtur það þá þeirrar stöðu sem kaupstaðirhafahaft.15 Meðal þess sem breyttistmeð sveitar- stj ómarlögunum 1986 var skipan sveitarfélaga í kaupstaði og sýslur. Áður urðu hreppar að kaupstað með lagasetningu og fengu þá sérstöðu og voru utan sýslufélaga.16 Sýslufélög hurfu úr sögunni og urðu ekki lengur hin lögbundnu samtök 7 Lögnr. 58/1961, sbr. lögnr. 28/1968, lögnr. 52/1972, lögnr. 41/1976, lög nr. 19/1978, lög nr. 9/1982 og lög nr. 12/1983. 8 Lög nr. 5/1962, sbr. lög nr. 5/1966, lög nr. 7/1978, lög nr. 8/1982, lög nr. 10/1982 og lög nr. 64/1984. 9 Lögnr. 70/1970. 10 1. mgr. 17. gr. laganr. 58/1961, sbr. 1. gr. laganr. 9/1982. 11 Ákvæði til bráðabirgða II við lög nr. 8/1986. 12 2.-4. mgr. 15. gr. laganr. 58/1961. 13 2.-4. mgr. 27. gr. laga nr. 8/1986. 14 2. mgr. 1. gr. laga nr. 8/1986. 15 2. mgr. 10. gr. laga nr. 8/1986, sbr 1. gr. laga nr. 26/1988. 16 1. mgr. 3. gr. og 92. gr. laga nr. 58/1961.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Sveitarstjórnarkosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarkosningar
https://timarit.is/publication/1386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.