Fréttablaðið - 09.10.2019, Síða 4
EKKERT
BRUDL
Bragðgóðir og s
ykurlausir
Orkudrykkir
Smart Power Orkudrykkur
330 ml, 3 teg.
kr./330 ml149
SAMA VERd
um land allt
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Mechtild Rössler,
aðalframkvæmdastjóri Heims-
minjaskrifstofu UNESCO, segir ráð-
gefandi stofnanir harma að endur-
nýjun Gjábakkavegar á Þingvelli
hafi ekki farið í umhverfismat.
Þetta kemur fram í bréfi Rössler
til íslenskra stjórnvalda. Segir hún
að Alþjóðaráðið um minnisvarða
og sögustaði (ICOMOS) og Alþjóð-
legu náttúruverndarsamtökin
(IUCN) harmi að ekki hafi verið
lagt mat á áhrif framkvæmdarinnar
á umhverfið og á heimsminjar. Þá
skorti heildaráætlun um umferð.
„Að auki þá gæti framkvæmdin
við Gjábakkaveg til lengri tíma litið
leitt til hættu á mengun vatnsins í
Þingvallavatni,“ skrifar Rössler.
Einar Á. E. Sæmundsen, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, segir
stækkun Gjábakkavegar einmitt
leiða til minni hættu á að mengun
berist í Þingvallavatn. Umferð í
gegn um þjóðgarðinn fari nú öll
UNESCO spyr líka um Gjábakkaveg
Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðs
vörður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
um Gjábakkaveg því veginum við
vatnið hafi verði breytt í botnlanga.
Varðandi mat á umhverfisáhrif-
um segir Einar að það hafi upphaf-
lega verið sett í lögformlegt ferli af
Vegagerðinni. „Það voru eiginlega
allar stofnanir sem sögðu þetta
þannig framkvæmd að hún þyrfti
ekki að fara í fullt umhverfismat,“
segir hann. Þetta verði útskýrt fyrir
UNESCO. „Það örlar á misskilningi í
bréfinu hjá þeim og þarna eru atriði
sem þarf að skýra betur.“
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær hefur Heimsminjaskrifstofan
nú einnig til skoðunar kvörtun
vegna starfsemi köfunarfyrirtækja
í Silfru. Einar segist ekki óttast að
þau umsvif ógni stöðu Þingvalla
á heimsminjaskrá. Hann bendir
meðal annars á að aðeins sé leyft að
kafa í tveimur gjám á Þingvöllum og
með ströngum skilyrðum. Þetta og
fleira verði útskýrt í svari til Heims-
minjaskrifstofunnar auk þess sem
ýmislegt í kvörtunarbréfinu verði
leiðrétt.
„Tilfinning mín er að það verði
hægt að skýra þessa starfsemi
ágætlega fyrir Heimsminjaskrifstof-
unni,“ segir þjóðgarðsvörður. – gar
1 Ung menni flutt á sjúkra hús eftir að hafa reykt kanna bis
vökva með raf rettu Sigvaldi Arnar
Lárusson varðstjóri varar við að
börn niður í 13 ára reyki rafrettur
og blandi kannabisvökva í annan
rafrettuvökva til að fela lyktina.
2 Sjö ára fangelsi fyrir að nauðga syni sínum: Hótað
með byssu og hníf Of beldi
mannsins gegn drengnum átti
sér yfir leitt stað á svo kölluðum
„pabba helgum“.
3 Mót mæl a því að börn séu neydd til að umgangast of
beld is menn Hreyfingunni Líf án
of beldis var hrundið af stað vegna
endur tekinna úr skurða í um
gengnis málum þar sem börn eru
skikkuð í um gengni við ger endur
sína, barna níðinga og of beldis
menn.
4 Skipstjóri sýndi snarræði í öldugangi við Þorlákshöfn
Sam kvæmt heimildum Frétta
blaðsins hafði skip stjórinn áður
hleypt Herjólfi á undan sér inn í
höfnina.
5 Stærðarinnar hvalreki í Þorlákshöfn Einar Guðbjartsson,
annar eigandi fjórhjólaleigunnar
Black Beach Tours, gekk fram á
stærðarinnar hvalreka í fjörunni.
VIÐSKIPTI Viðmælendur Frétta-
blaðsins innan viðskiptabank-
anna hafa talsverðar áhyggjur af
veru Íslands á svokölluðum gráum
lista alþjóðlega framkvæmda-
hópsins FATF. Telja þeir bankana
hafa farið í mikla vinnu og gert allt
sem í þeirra valdi stendur, einnig
gagnvart erlendum bönkum, til
að uppfylla kröfur um varnir gegn
peningaþvætti. Í skýrslu FATF frá
því í fyrra var talið upp 51 atriði
sem stæði út af.
Fram kemur í tilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu frá því á
sunnudag að sérfræðingahópur
FATF telur að enn standi út af
sex atriði sem geti leitt til þess
að umbætur Íslands varðandi
aðgerðir gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka verði ekki
taldar fullnægjandi.
Ef það verður niðurstaðan fer
Ísland á lista yfir svokölluð áhættu-
söm þriðju lönd þar sem aðgerða-
áætlun er í farvegi. Á listanum má
finna lönd á borð við Afganistan,
Jemen, Írak og Úganda. Hyggjast
stjórnvöld kappkosta að það verði
aðeins til skamms tíma, þá fram á
næsta ár. Hafa bankar nú þegar rætt
við erlenda banka sem telja áhrifin
óveruleg á núverandi viðskipti, en
það gæti aukið f lækju við að stofna
til nýrra viðskipta ef Ísland er á
listanum. Þá sé ótímabært að ræða
hvað slíkt gæti á endanum kostað.
Stjórnvöld og ráðgjafar þeirra
telja möguleg áhrif óveruleg og
er talið að veran á listanum hafi
hvorki bein áhrif á almenning né
fjármálastöðugleika á Íslandi. Fjár-
málaeftirlitið deilir þeirri skoðun
ráðuneytisins að unnið hafi verið
vel að því að leysa úr öllum atrið-
unum.
Í bréfi stjórnvalda til banka-
stjóra viðskiptabankanna sem
sent var á f immtudag í síðustu
viku segir að taldar séu verulegar
líkur á því að Ísland lendi á listan-
um. Bankarnir eigi því að búa sig
undir þá niðurstöðu og haga undir-
búningi sínum í samræmi við það.
Unnið sé hins vegar að því á öllum
stöðum innan stjórnkerfisins að
koma í veg fyrir þessa niðurstöðu.
Mælt var fyrir tveimur frum-
vörpum á Alþingi í gær sem koma
eiga til móts við athugasemdir
FATF. Er þar annars vegar um að
ræða frumvarp sem snýr að sölu
haldlagðra kyrrsettra eigna og
muna en hins vegar frumvarp
um skráningarskyldu félaga til
almannaheilla sem starfa yf ir
landamæri.
Þing menn stjór narandstöð-
unnar gagnrýndu málsmeðferð
ríkisstjórnarinnar og þann mikla
f lýti sem einkenndi málin. Vonir
ríkisstjórnarinnar standa til að
frumvörpin verði afgreidd með
hraði. Samk væmt heimildum
Fréttablaðsins er gert ráð fyrir því
að frumvörpin tvö verði að lögum
í dag eða á morgun.
arib@frettabladid.is
Bankamenn hafa áhyggjur af
veru Íslands á gráum lista
Líkur eru á því að Ísland lendi á gráum lista þar sem ekki hafi verið gripið til fullnægjandi aðgerða gegn
peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Á síðasta ári var bent á 51 ágalla hér á landi þegar kemur að
þessum málum en sex þeirra eru enn þá til staðar. Lagfæringum er nú hraðað í gegnum Alþingi.
Ísland gæti endað á lista FATF yfir áhættusöm þriðju lönd þar sem ríki á borð við Afghanistan, Írak, Jemen og Úganda eru. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sex atriði sem þarf að laga:
1. Stjórnvöld hafa ekki tímanlegan aðgang að áreiðanlegum upp
lýsingum um raunverulega eigendur.
2. Ljúka þarf innleiðingu á nýju upplýsingakerfi hjá skrifstofu fjár
málagreininga lögreglu til að taka á móti tilkynningum um grunsam
legar færslur.
3. Starfsmannafjöldi miðað við umfang tilkynninga hjá skrifstofu fjár
málagreininga lögreglu er ófullnægjandi.
4. Ljúka þarf reglugerð, sem Alþingi þarf að veita lagastoð, um með
höndlun og vörslu haldlagðra, kyrrsettra og upptekinna fjármuna.
5. Eftirlitsaðilar þurfa að tryggja með vettvangsathugunum að til
kynningarskyldir aðilar fari að lögum um frystingu fjármuna.
6. Innleiða þarf í lög skilvirka yfirsýn yfir starfsemi almannaheilla
félaga, sér í lagi hvað varðar þau almannaheillafélög sem geta verið
viðkvæm fyrir misnotkun í tengslum við fjármögnun hryðjuverka.
STJÓRNMÁL Una Hildar dóttir hefur
á kveðið að bjóða sig fram í em bætti
ritara Vinstri grænna á komandi
lands fundi f lokksins. Una hefur
síðast liðin fjögur ár gegnt em bætti
gjald kera og er í dag for maður
Lands sam bands ung menna fé laga.
„Mér hefur alltaf fundist það
mikil vægt að við sem störfum í
stjórn málunum festum okkur ekki í
ein stöku hlut verki í of langan tíma,“
segir Una í tilkynningu á vef VG.
Á mánudag tilkynnti Guðmund-
ur Ingi Guðbrandsson umhverfis-
ráðherra að hann hygðist gefa kost
á sér í varaformannsstöðuna. – fbl
Una í ritara
Vinstri grænna
9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
8
-7
8
A
4
2
3
F
8
-7
7
6
8
2
3
F
8
-7
6
2
C
2
3
F
8
-7
4
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K