Fréttablaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 28
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi for-stjóri Icelandair Group, á 10 prósenta hlut í Loftleiðum Cabo Verde sem
keyptu í febrúar 51 prósents hlut í ríkis-
flugfélaginu Cabo Verde Airlines á Græn-
höfðaeyjum. Þetta kemur fram í ársreikningi.
Þá á eignarhaldsfélagið Kjálkanes, systur-
félag útgerðarfyrirtækisins Gjögurs, sem á 34
prósenta hlut í Síldarvinnslunni, 20 prósenta
hlut í Loftleiðum Cabo Verde. Systkinin Anna
og Ingi Jóhann Guðmundsbörn eru stærstu eigendur
Kjálkaness, en þau tóku sæti í stjórn Loftleiða Cabo
Verde fyrr á árinu, auk þess sem Björgólfur er einnig
á meðal hluthafa félagsins.
Loftleiðir-Icelandic, dótturfélag Ice landair
Group, fer með 70 prósenta hlut. Í ársreikningn-
um kemur fram að hlutafé félagsins skiptist í tvo
flokka – A og B – og fylgir allur atkvæðisréttur hlut-
um í A-flokki. Kjálkanes og Björgólfur fara saman-
lagt með 60 prósenta hlut bréfa í A-flokki félagsins.
Stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum samþykktu kaup-
tilboð Loftleiða Cabo Verde upp á 175 milljónir
króna auk þess sem félagið skuldbindur sig til að leggja
ríkisflugfélaginu til um 800 milljónir í viðbót. – hae
Stjórnar-
maðurinn
05.10.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 9. október 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Björgólfur
Jóhannsson.
Á 10 prósent í Loftleiðum Cabo Verde
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
2019
Verðmæti
Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði.
Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með
því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka
reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar.
Þegar gengið er um erlendar
stórborgir eru merki um breyttar
verslunarvenjur á hverju strái.
Þau augljósustu eru auð versl
unarpláss sem nú eru í hrönnum
við götur sem löngum hafa verið
meðal þeirra allra vinsælustu.
Engu máli skiptir hvort göngu
túrinn er um Soho í New York eða
samnefnt hverfi í London. Pláss
sem áður var slegist um standa
nú auð og pappaspjöld fyrir
gluggum. Sagt er til að mynda að
í New York hafi að jafnaði um
tuttugasta hvert pláss staðið autt.
Nú sé staðan sú að fimmta hvert
rými er laust til útleigu.
Það kann að koma sumum á
óvart, en ástæðan fyrir því að
hefðbundin verslun gengur verr
en áður á eftirsóttustu stöðum
veraldar er hvorki skortur á
bílastæðum, né aukin áhersla
borgaryfirvalda á gangandi eða
hjólandi.
Nei, orsökin leynist í breyttum
verslunarvenjum. Ekki bara
sækja neytendur varning sinn í
auknum mæli á internetið, heldur
leggja þeir einnig minni áherslu
en áður á magnkaup. Tískubrans
inn hefur til að mynda breyst
þannig að neytendur vilja frekar
kaupa færri f líkur og vandaðri,
en f leiri sem jafnvel eru allt að
því einnota. Slíkar áherslur ríma
líka betur við umhverfisverndar
sjónarmið, sem nú fer mikið fyrir.
Fyrir á f leti er svo húsnæðiskerfi,
sem byggist á gömlum tíma, og
þungbærar opinberar álögur. Á
tímum breyttrar neyslu er því oft
á tíðum ómögulegt fyrir rekstrar
aðila að standa undir hvoru
tveggja, himinhárri leigu og
hinum ýmsu opinberu gjöldum.
Auðvitað finnst engin galdraupp
skrift á einni nóttu. Svo virðist
hins vegar sem neytendur leggi
aukna áherslu á að einhvers
konar upplifun fylgi verslunar
ferðunum.
Á því hafa gamalgrónu risaversl
anirnar í London kveikt. Bæði
Harrods og Selfridges skila hverju
metuppgjörinu á fætur öðru. Sú
síðarnefnda skilaði metaf komu
árið 2018 og velti tæpum tveimur
milljörðum punda. Meðal nýstár
legra leiða sem farnar voru á
árinu til að laða að kúnna var
að koma upp hjólabrettarampi
innanhúss og setja upp lista
verkasýningu með Damien Hirst.
Verslun, skemmtun og upplifun
mætast. Það er kannski lykillinn.
Nýir tímar
í verslun
Við
höfum
alltaf sagt þetta.
Það er ekki hægt
að láta hús-
næðisöryggi í
hendurnar á
markaðnum.
Drífa Snædal, for-
seti Alþýðusam-
bands Íslands
0
9
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
F
8
-7
D
9
4
2
3
F
8
-7
C
5
8
2
3
F
8
-7
B
1
C
2
3
F
8
-7
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K