Fréttablaðið - 22.10.2019, Blaðsíða 14
er ánægt með vörurnar okkar og
þjónustu. Það er auðvelt að panta
með því að senda tölvupóst á
veisla@lemon.is og við svörum um
hæl. Ef pantað er fyrir 10 manns
eða fleiri á virkum dögum er frí
heimsendingarþjónusta.“
Starfsfólkið er okkar lífæð
Jóhanna Soffía segir 80 manns
starfa nú á Lemonstöðunum enda
séu staðirnir orðnir sjö talsins.
Þrír staðir eru á höfuðborgar-
svæðinu, á Suðurlandsbraut 4,
Hjallahrauni 13 í Hafnarfirði
og í Salalauginni í Kópavogi.
„Staðurinn í Salalaug er sá nýjasti
hér á höfuðborgarsvæðinu og hafa
sundlaugargestir tekið vel í þessa
nýbreytni en þess má geta að
Lemon er eini matsölustaðurinn
sem er með rekstur í afgreiðslusal
sundlaugar hér á landi. Það er vin-
sælt í Kópavoginum í dag að skella
sér í sund og fá sér svo sólskin í
glasi og sælkerasamloku á eftir,“
segir Jóhanna.
Þá eru starfræktir þrír staðir á
Norðurlandi, einn á Ráðhústorgi
á Akureyri, annar í Glerárgötu 32
sem Jóhann Stefánsson og Katrín
Ósk Ómarsdóttir reka. Þriðji
staðurinn er á Héðinsbraut 6 á
Húsavík, sem Birkir Stefánsson og
Anný Rós Guðmundsdóttir reka.
Þá er einn Lemonstaður starf-
ræktur erlendis sem Eva Ýr Gunn-
arsdóttir rekur og er hann í fallegu
borginni París í hverfi 2, á 43 Rue
des Petits Carreaux.
„Við höfum verið einstaklega
heppin með starfsfólk og hefur
margt af okkar fólki starfað lengi
hjá fyrirtækinu. Starfsfólkið er
okkar lífæð og án þess værum við
ekki á þeim frábæra stað sem við
erum á í dag,“ segir Unnur Guð-
ríður glaðlega.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Lemon býður upp á ferskan og safaríkan mat matreiddan á staðnum úr besta mögu-
lega hráefni hverju sinni. Það er
mantran okkar hjá Lemon og við
víkjum aldrei frá henni“, segir
Unnur Guðríður Indriðadóttir,
einn af eigendum Lemon.
„Lemon er staðurinn fyrir þá
sem eru að huga að heilsunni og
vilja holla og góða næringu sem fær
bragðlaukana til að dansa. Sam-
lokurnar og djúsarnir hafa verið
okkar aðalsmerki en það er einnig
hægt að fá vefjur, salöt, hafragraut,
orkuskot og kaffi hjá okkur.“
Lemon hendir plastinu
„Við höfum skipt út plastglösum,
lokum, rörum og hnífapörum
fyrir umhverfisvæna efnið PLA
(polyactic acid) sem brotnar niður
í náttúrunni. Það efni er úr maís-
sterkju og er alveg eins og plast í
útliti. Glösin hjá okkur mega því
fara með lífrænum úrgangi og
brotna niður í náttúrunni,“ segir
Unnur Guðríður. Plastleysið er
hluti af nýjum áherslum Lemon en
nýlega urðu breytingar á eigenda-
hóp staðanna en eigendur Lemon
í dag eru þær Unnur Guðríður við-
skiptafræðingur og Jóhanna Soffía
Birgisdóttir.
Vinsælasta kombóið
„Á Lemon er vinsælt að fá sér sam-
loku og djús, svokallað kombó.
Vinsælasta kombóið frá opnun
Lemon er Spicy chicken og Nice
guy. Það er eitthvað við sterka
bragðið af kjúklingnum í bland
við sæta jarðarberjarbragðið af
djúsnum sem gerir þetta kombó að
neglu,“ segir Jóhanna.
Six pack safar
fyrir djúsdaginn
„Six pack safarnir eru sívinsælir,
bragðgóðir, ferskir og hollir,“ segir
Jóhanna. Fólk pantar hjá okkur
með því að senda tölvupóst á
veisla@lemon.is og pakkarnir
afhendast eftir klukkan 11.00
daginn eftir á þeim Lemonstað
sem hentar best.
„Fólk fær sex frábæra ávaxta- og
grænmetisdjúsa sem gera djúsdag-
inn miklu auðveldari og skemmti-
legri,“ segir Jóhanna. „Það er hollt að
taka djúsdag einstöku sinnum til að
ná jafnvægi á líkamann. Safarnir eru
litríkir og ferskir og ávallt nýkreistir
úr fyrsta flokks hráefni. Það er gott
að byrja daginn sem á að djúsa á
glasi af volgu vatni með sítrónu.“
Salöt fyrir ketómataræðið
„Hjá okkur á Lemon er hægt að
breyta öllum samlokunum í salat
eða vefju. Salat hentar vel fyrir þá
sem eru með glútenóþol og líka
fyrir þá sem eru á ketómataræðinu
en ketó nýtur mikilla vinsælda
og henta salötin okkar þeim hópi
mjög vel,“ segir Unnur Guðríður,
sem sjálf hefur verið á ketómatar-
æðinu í nokkurn tíma.
Veisluþjónusta
Lemon er sívinsæl
„Veislubakkarnir frá okkur hafa
slegið í gegn og við finnum fyrir
mikilli aukningu þar. Veislubakk-
arnir henta vel fyrir stór og smá
fyrirtæki og fyrir hvaða tilefni sem
er, s.s. afmæli, fundi, veislur, partí
og brúðkaup. Fólk velur annað-
hvort sínar uppáhaldssamlokur
eða lætur okkur sjá um að velja
þær vinsælustu á bakkana,“ segir
Jóhanna Soffía. „Nú fara jólasam-
lokurnar líka að detta inn og það
hefur alltaf verið vinsælt að panta
jólaveislubakka. Einnig hafa skotin
okkar verið vinsæl hjá fyrirtækjum
sem hafa verið að bjóða starfs-
fólkinu sínu upp á engiferskot á
morgnana. Fyrirtæki panta aftur
og aftur og það segir okkur að fólk
Hjá Lemon starfa nú 80 manns á sjö stöðum.
Lemon rekur þrjá staði á höfuðborgarsvæðinu, þrjá á Norðurlandi og einn í París.
Safarnir eru litríkir og ferskir og ávallt nýkreistir .
Lemon skipti út plastglösum, lokum, rörum og hnífa-
pörum fyrir efnið PLA sem brotnar niður í náttúrunni.
Á Lemon er vinsælt að fá sér samloku og djús, svokallað
kombó. Það vinsælasta er Spicy chicken og Nice guy
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
E
-0
7
8
8
2
4
0
E
-0
6
4
C
2
4
0
E
-0
5
1
0
2
4
0
E
-0
3
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K