Fréttablaðið - 22.10.2019, Side 38

Fréttablaðið - 22.10.2019, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is MEIRA EN HELMINGUR ER KVENKYNS SEM KEMUR EKKI Á ÓVART. KARL- MENN HALDA AÐ ÞEIR VITI OG KUNNI ALLT NÚ ÞEGAR. 2 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð DAGSKRÁIN á Hringbraut FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut og hringbraut.is Fylgstu með! Næstu þrjú kvöld í frétta-og umræðu- þættinum 21 mun blaðamaður Hringbrautar, Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson ásamt Bjarna Svan Friðsteinssyni kvikmyndatökumanni heimsækja flóttamannabúðir í Grikklandi og fjalla um stöðu hælisleitenda á Íslandi. Bjarni Svanur og Bjartmar Oddur Þeyr heimsóttu flóttamenn í búðum í Aþenu og á eynni Lesbos. Frétta- og umræðu þátturinn 21 alla virka daga klukkan 21.00 Staða hælisleitenda á Íslandi og ástandið í flóttamannabúðum í Aþenu og á Lesbos. The Secret Cellar er fyrsti og eini uppi-s t a n d s k l ú b b u r i n n á landinu. Nú hafa aðstandendur staðar-ins ákveðið að bjóða upp á sérstök námskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á uppistandi og vill bæta sig. Vona að fleiri spreyti sig Uppselt er á fyrsta námskeiðið en boðið verður upp á annað í byrjun nóvember. Uppistand á ensku verður sífellt vinsælla hérlendis og skýrist það mögulega vegna aukins fjölda túrista. York Underwood heldur utan um dagskrá klúbbsins og er annar af kennurum nám- skeiðsins. Hann segist vonast til að námskeiðið verði til þess að f leiri reyni að spreyta sig í uppistandi. „Ég kenni námskeiðið með Bjarna töframanni Baldvinssyni. Námskeiðinu er ekki bara ætlað að kenna þátttakendum að vera fyndnari, heldur líka að auka sjálfsöryggi þeirra og hæfni til að koma fram opinberlega. Svo er líka alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Á fyrsta námskeiðinu er um helm- ingur þátttakenda Íslendingar og helmingur innflytjendur. Meira en helmingur er kvenkyns sem kemur ekki á óvart. Karlmenn halda að þeir viti og kunni allt nú þegar,“ segir York glettinn. Hann segir ljóst á þátttakendum að þeir séu ekki allir endilega í þeim erindagjörðum að ætla bæta sig í gríninu og hefja feril í uppistandi. „Mér finnst f lestir vera þarna til að bæta sig í framkomu og skora á sjálfa sig. Það var ekki það sem ég bjóst endilega við en mér finnst samt vænt um það. Ég sjálfur hef aldrei notað grín sem einhverja sáluhjálp. Ég hef ekki þurft þess, líf mitt hefur verið svo einfalt og viðburðalaust. Aldrei neitt vesen. Þegar ég hugsa út í það held ég að ég hafi ekki átt einn slæman dag yfir ævina. En að öllu gríni slepptu þá hef ég samt gaman af því að hjálpa fólki að horfast í augu við ótta sinn við að koma fram opinberlega.“ Öryggið á sviðinu eykst Uppistand er fyrst og fremst fólgið í því að vera fær í að skrifa grín og skila því svo frá sér á skemmtilegan hátt. „Ég vil ekki gefa upp of mikið. Í tímunum skoðum við ýmis málefni, en reynum að forðast persónulegar sögur og svokallaðan „sjokk“-húm- or, sem snýst bara um að ganga fram af áhorfandanum. Svo reynum við að fá þau á sviðið eins oft og hægt er. Eftir tímana er svo „open mic“, þar sem öllum er leyfilegt að prófa efni sitt fyrir framan áhorfendur. Við hvetjum nemendurna til að stíga á svið og æfa sig. Það er magnað að sjá öryggi fólks á sviði aukast bara við það að læra betur hvernig skal tala í og halda á hljóðnemanum. Þetta er stundum líkara iðn en list,“ segir York. York er fæddur og uppalinn í Sask atchewan í Kanada. Hann flutt- ist til landsins fyrir fjórum árum. En hvað finnst þér um íslenska húmorinn, eru Íslendingar fyndnir? „Þið verðið smá að vera það. Þetta er lítið samfélag. Hér er kalt og mikið myrkur. Íslendingar nota mest af þunglyndislyfjum á alheimsvísu og allir tala sama leyni- lega tungumálið. Svo virðist skorta þjónustulundina og kurteisina í genin hjá sumum. Í landi þar sem efnahagurinn treystir svona mikið á túrisma er það mjög fyndin blanda, grínið skrifar sig nánast sjálft!“ En hvernig standa Íslendingarnir sig í að grínast á ensku? „Vel, algjörlega, þó þetta sé stund- um mikil áskorun og erfitt. Hingað til hefur fólk komist upp með að taka bara brandara frá erlendum uppistöndurum, þýða þá og láta eins og þeir væru þeirra eigin. Það er alltaf smá fyndið þegar Íslendingar neyðast til að vera ekki latir, eða það er í það minnsta áhugavert.“ Hægt er að skrá þátttöku sína í næsta námskeið með því að senda póst á tölvupóstfangið york@the- secretcellar.is steingerdur@frettabladid.is Kenna  Íslendingum að vera drepfyndnir York Underwood er sýningarstjóri í uppistandsklúbbnum The Secret Cellar. Nýverið byrjaði klúbburinn að bjóða upp á námskeið í uppistandi og framkomu. Meirihluti þátttakenda er kvenkyns. York Underwood stendur nú fyrir námskeiðum í uppistandi á ensku ásamt Bjarna töframanni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 2 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 D -F 8 B 8 2 4 0 D -F 7 7 C 2 4 0 D -F 6 4 0 2 4 0 D -F 5 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.