Úti - 15.12.1928, Qupperneq 7
LITI
5
Vœringjarnir 1913.
klæðum fornmanna. Var þetta fallegur bún-
ingur og þótti drengjunum mikið til hans
koma. Væringjunum bættust brátt margir
liðsmenn, og gekk starfið ágætlega.
Haustið 1913 sigldi sjera Friðrik vestur
um haf. Tók þá A. V. Tulinius við formensku
fjelagsins, því að hann var þá þegar byrj-
aður að kenna Væringjunum ýmsar líkams-
æfingar. Um þessar mundir gerðist talsverð
breyting á starfsháttum fjelagsins. Formað-
ur þess, ásamt helstu foringjunum, gekst
fyrir því, að fjelaginu yrði breytt í skáta-
fjelag, er bygði starf sitt á grundvelli skáta-
kerfis þess, sem Sir Robert Baden Powell
er upphafsmaður að.
Jafnframt þessu voru
litklæðin lögð niður,
en í stað þeirra teknir
samskonar búningar,
er erlendir skátar
nota. Þótti hann hent-
ugri, bæði á æfing-
um og ferðalögum.
Var nú starfað af
kappi. Allskonar inni-
og útiælingar voru
haldnar á vet um, en
á sumrin var farið í
lengri og skemmri
ferðalög. Mörgum góðum foringjum átti fje-
Iagið á að skipa um þessar mundir. Ekk.i
er rúm til að rekja nöfn þeirra hjer, en
það mun gert í sögu fjelagsins, sem nú er
verið að skrifa.
Það er siður skáta, að nota sumarleyfi
sitt til að dvelja í tjöldum sínum lengur en
vant er. Hið fyrsta þvílíkt ferðalag var farið
hjer um sumarið 1916. Bjuggu þá í tjald-
búðum sínum 14 Væringjar í eina viku á
Þingvöllum. Fyrstu tilraun sína til að gefa
út blað, gerðu Væringjar 1916. Hlaut það
nafnið „Liljan“. Blaðið sómdi sjer vel. Það
varð að vísu skammlíft, en gerði þó sitt
Vœringjaskálinn að Lœkjarbotnum.