Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 10

Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 10
8 ÚTl leita að ráðum. Ekki gátu stráklingar gengið um og leikið kennara í fánameðferð. Það eru líka, svei mjer, ekki margir, sem hafa trú á okkur, þótt við sjeum orðnir skátar, svo að ef við lögðum út i æfintýrið, þá máttum við eiga vísa flengingu, og kanske fleiri en eina, vertu viss! Glettingar okkar og gantaskapur frá fyrri tímum eru mönn- um enn í fersku minni, enda þótt við höfum síð- an gert margt, sem fullkomlega bætir fyrir það gaman. Skyldfólk okkar og nokkrir menn að auki eru farnir að treysta okkur fullkomlega. Enda sjá- um við um alla fána hjá okkar fólki. En læknir- inn, heildsalar og aðrir slikir, sem láta vinnukon- urnar sínar draga upp fánana sína og fella þá! Það er líka gert eftir því, máttu vita. Eftir að við höfðum lengi setið og »dregið frá«, eins og Frikki komst að orði, urðum við ásáttir um, að taka höggum og barsmíði, ef því væri að skifta. Þetta var þess virði. Daginn eftir var sunnudagur, og þá fórum við á kreik. Og ef við sáum fána, sem illa fór á stöng, þá fórum við inn og báðum leyfis að lagfæra hann. Flestir tóku okkur vinsamlega og þökkuðu fyrir. Og þegar við komum aftur síðar um daginn að strengja línur, er slaknað höfðu í hitanum, þá fengum við saftblöndu og fleira gott. En sumir skömmuðu okkur og ráku okkur út. Og á einum stað, þar sem Villi fór inn, var sigað á hann hundi. En þeim varð ekki kápa úr því klæðinu, því að seppi vissi, að Villi átti tik heima, og hann dinglaði bara skottinu og labbaði burt. Einn kaupsýslumaðurinn á strák, sem enginn strákur er, þó að hann sje 17 ára, heldur tepur- fífl, sem ilmvatnsþefinn leggur af langar leiðir. Þegar Nonni kom þangað, var piltur einn heima og sparkaði Nonna út. Nonni tók auðvitað ekki á móti, meðan peir voru þar innan garðs. En jafn- skjótt og garðshliðið var opið, ljet hann höggið ríða. Og pilturinn var góða stund að losa sig úr rósarunnanum, sem hann valt út i. Okkur fanst skylt að greiða aukaþóknun fyrir þetta, því að það er ekki venja, að fleygja mönn- um á dyr, þó að þeir komi og biðji hæversklega leyfis að lagfæra fána, sem fer illa. Við þóttumst of góðir til þess að berja slíka geit, sem þorir aldrei að stinga sjer út af bryggjunni, heldur veð- ur út í, og rekur tærnar í fyrst, til þess að finna, hvort kalt sje, alveg eins og stelpa. Og reyndar var hann kátlegur ásýndum, með glóðaraugað, sem Nonni gaf honum. Um kvöldið sáum við, að fáninn dinglaði, vaf- inn um snúruna, löngu eftir sólarlag. Við fórum þangað, allir í hóp, og Villi gekk inn. Enginn var heima, nema vinnukonurnar, og þær þökkuðu sín- um sæla, að losna við að fara út, þvi að þær sátu, glömruðu á gítar og sungu sálma. Við fórum þá allir inn í garðinn. Það ljet hátt i trissunni á stangarhúninum, þeg- ar Villi dró fánann niður, og hann mælti: »Þetta dugar ekki. Það getur vakið heilan kirkjugarð«. »Hlauptu heim, Palli; þú átt styst«, sagði hann við mig; »og sæktu olíu og góðan brjefpoka«. Jeg hljóp auðvitað og kom fljótlega aftur. Villi batt saman enda línunnar, svo að hún drægist ekki úr. Siðan reif hann horn af brjef- pokanum, helti í það olíu og batt fyrir. Síðan hnýtti hann því við línuna og dró það upp, svo að það kom ofan á trissuna. Svo kipti hann snögt í, svo að blaðran sprakk. Þá dró hann línuna nokkrum sinnum aftur og fram og íldi mjög í trissunni, en svo þagnaði hún alt í einu. Olían hafði gert sitt gagn. Smellið, er það ekki? »Takið þið nú eftir«, sagði Villi. »Nú förum við heim og lagfærum drauginn, sem við bjuggum til, þegar við vorum að hræða púðruðu pjattrófuna hjá Frikka«. Nú rann upp ljós fyrir okkur öllum. »Ágætt«, sagði Júlli og sló á herðar Villa. »í kvöld?« »Ekki fyr en annað kvöld«, svaraði Villi. »Ann- ars skilja þeir strax, að við höfum gert það«. Við skinnuðum »drauginn« upp, stoppuðum hann með hálmi og klæddum hann í gamlar hlífðar- buxur af Nonna. í svörtu haustmyrkrinu Iæddumst við þangað. Hægt og hljóðlega rann piltur upp eftir stönginni og Villi festi línuna eftir reglum listarinnar. Ellefu strákar gættu að um morguninn, hvort karlinn væri kyr. Jú, viti menn! Og þarna hjekk hann liðlangan daginn. Og fólk, sem fram hjá fór, skemti sjer ágætlega, það sáum við, því að við lágum lengi inni í næsta garði og horfðum á. Svo fórum við heim til höfuðsmannsins, sögðum honum, hvað við höfðum gert og báðum hann koma og sjá. Ef við hefðum ekki sjeð hann, þegar hann barð- ist við strákana, þá hefðum við ekki getað ímynd- að okkur, að hálfsjötugur karl gæti hlaupið eins og hann. Hann fór alt beint og hentist yfir girð- ingarnar, svo að jafnvel við átium fult í fangi með að fylgja honum eftir. Og þegar hann sá kariinn uppi á stönginni, þá hló hann svo, að tárin streymdu niður kinnar honum, og sagðist sjálfur ekki hefði getað hitt á neitt betra. »Nú megið þið koma um borð«, sagði hann. »Heim og fáið leyfi, allir saman. Fljótir nú!« Og við fórum um borð, máttu vita! Aldrei höf- um við skemt okkur jafn vel! Það hafa hangið karlar á nokkrum fánastöngum síðan, vertu rólegur! Enginn veit, hvernig þeir

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.