Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 18

Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 18
16 ÚTl drengurinn þeirra kemur aftur heim til bæj- arins með nýja krafta og ánægður. Þau eru nú í þann veginn að búa út aðra skemtun fyrir ykkur, jólagleðina, og þá er um að gera, að þið sýnið þeim í verkinu, að þið eruð sannir skátar. Þið vitið vel, hvernig þið eigið að fara að því, að launa foreldrum ykkar, svo að jólin einnig verði gleðihátíð fyrir þau. Gerið það. Þá verða jólin eins og jeg óska ykkur þau. Gleðileg jól! Skátakveðja. Axel Tulinius. Sveitamaðurinn og skátarnir. (Samtal, sem skátar t. d. gætu leikið á sam- koraum sínum). (Sveinn skáti hefir reist tjaid sitt í skógarrunna. Hann situr í tjalddyrunum og er að tálga tjald- hæl. Kemur þá til hans sveitamaður. Sveinn stend- ur upp). Sveitam.: Góða kvöldið! Hver er maðurinn? Sveirai: Sveinn heiti jeg og er úr Reykjavík. En hvaðan ert þú? Sveitam.: Jeg er frá bænum, sem þú sjerð þarna Fyrir ofan og gekk hingað til að sjá, hver væri kominn hjer á beit. Sveinn: Já, þú sjerð að ekki er það grasbítur, en annars fjekk jeg leyfi hjá bóndanum þarna fyrir neðan til að tjalda hjer Sveitam.: Mikið rjett. Og hvert er nú ferðinni heitið? Sveinn: Hingað og ekki lengra. Jeg á von á 2 fjelögum mínum, sem Iosnuðu seinna frá vinnu sinni en jeg, og við erum vanir að fara á hverju laugardagskvöldi upp um sveitir á sumrin og dvelja þar um helgar. Sveitam.: Mikið rjett. Þið eigið kanske slægjur hjer um slóðir? Sveinn: Nei, við förurn ekki upp í sveit um helgar til að vinna, þvi að það gerum við alla virka daga í bænum, en notum helgidagafríið til að njóta fjallaloftsins og losna við ryk og strit Reykjavíkur. Sveitam.: Svo er nú það. En skrítið finst mjer þetta þó, og ekki hefði okkur unglingunum í minu ungdæmi verið látið það liðast, að slæpast um sláttinn. En þú ert víst einn af þessum státum. (Sveinn grípur fram í og leiðrjettir: skátum). Já, eða skátum. Einhverntíma hefi jeg heyrt þeirra getið. Sveinn: Já, það er trúlegt, því að þetta er þekt- ur fjelagsskapur. (Þeir setjast). Sveitam.: Mikið rjett. Mig minnir að hafa heyrt, að þetta væri komið frá Englandi, svo að ekki er það víst mikið þjóðlegt. Sveinn: Þetta er fyrst og fremst alheimsfjelags- skapur, en hagað eins og best á við í hverju landi. Sveitam.: Svo er nú það. En jeg hefi litla trú á öllum þessum alheimsfjelögum. Jeg hefi nú alið allan aldur minn í þessari sömu sveit og þarf ekki neina alheimssveit til að geta lifað. Sveinn: Má vel vera. En skátafjelagsskapurinn vinnur fyrst og frenrst að þvi, að þroska æskulýð- inn, bæði andlega og líkamlega, og við skátar er- um alls ekki óþjóðlegri en aðrir. Sveitam.: Mikið rjett. Og hvað kunnið þið þá, sem þjóðlegt er? Sveinn: Margir okkar iðka glímu og okkur þykir garnan að kveðast á. Svo er það lika gert að skil- yrði í prófum okkar, að hafa lesið og kynt sjer helstu íslendingasögurnar. Sveitam.: Nú jæja. (Nú heyrist blásið i skátaflautu skamt frá. Þeir rísa báðir upp). Sveinn: Bravó! Nú koma fjelagar mínir. Sveitam.: Ætli það sje þá ekki best, að jeg hypji mig? Sveinn: Nei, blessaður vertu. Heilsaðu upp á fjelaga mína. (Tveir drengir, Halli og Jói, báðir i skátabún- ingi og með malpoka á bakinu, koma hlaupandi til þeirra). Halli og Jói: Komið þið sælir! Sveinn: Sælir og velkomnir á staðinn! Þessi maður er hjeðan frá næsta bæ. Við vorum að rabba saman og jeg bað hann að bíða og heilsa upp á ykkur. (Þeir Halli og Jói ganga báðir til sveitamanns- ins og heilsa honum með handabandi. Síðan ganga þeir inn i tjaldið og leggja þar af sjer farangur sinn, en koma að vörmu spori út aftur og er þá Halli með bijefpoka í höndunum). Halli: Húsbóndi minn gaf mjer nokkur epli i nestið. Við skulum gæða okkur á þeim strax. (Hann rjettir þeim öllum sitthvert eplið. Þeir sitj- ast allir niður). Sveitam.: Þið komið færandi hendi úr kaup- staðnum, drengir, og ekki bjóst jeg við að bragða epli fyr en á næstu jólum. Er annars nokkuð títt? Halli: Það er lítið um það. Og þegar blöðin berast svo að segja daglega upp um sveitirnar, þá er litið hægt að segja i frjettum.

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.