Úti - 15.12.1928, Side 12

Úti - 15.12.1928, Side 12
10 ÚTI snögglega dró ský fyrir sólu. Hann var sak- aður um siðferðisbrot og dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar. Er hann hafði tekið út hegn- inguna, ferðaðist hann um ýms lönd og dó i París árið 1900. Fátt eitt af ritverkum Wiides hefir verið þýtt á íslensku. »Úr djúpunum* (De Profundis) hefir Yngvi Jóhannesson íslenskað. Þá bók reit Wilde í fangelsi. Qrein um hann birtist í »Iðunni« X. árg., 3., en þetta er sagt þeim, sem kynnast vildu skáldinu og verkum hans. Eitt af leikritum Wildes heitir »A Woman of No Importance-. Er kafli sá, sem hjer fer á eftir, þýddur úr því. Hann er valinn út úr sam- tali milli móður og sonar. Gerald Arbuthnot hefir búið með góðri og ástríkri móður sinni frá fyrstu tíð, en hvorki sjeð föður sinn nje heyrt hans getið. Þegar hann er um tvitugt, kemst hann af tilviljun að þvf, hver faðir hans er. Það er Illingworth lávarður, ljettúðugur en glæsilegur heimsmaður. Og nú heyrir Gerald af vörum móður sinnar, hvernig þessi fíni sam- kvæmisherra dró hana á tálar fyrir mörgum árum, þegar hún var ung og saklaus stúlka. Hann hafði heitið að kvongast henni, en dregið það á Ianginn og að lokum varpað henni al- veg frá sjer. Þegar Gerald heyrir þessa rauna- sögu móður sinnar, ákveður hann með sjálfuni sjer að knýja föður sinn til að eiga hana, að hann með því bæti fyrir brot sitt. Hann segir henni ætlun sína, en hún má ekki heyra það nefnt og þvertekur alveg fyrir það. Einu sinni elskaði hún þennan mann. Nú fyrirlitur hún hann. í 20 ár hefir hún lifað einmana og vfir- gefin. Það eina, sem batt hana við lífið, var barnið. Hún segir:] »Karlmenn skilja ekki hvað það er, að vera móðir. Jeg er ekki frábrugðin öðrum konum að öðru leyti en því, að jeg var ranglæti beitt og varö að þola þunga refsingu og vansæmd fyrir vfirsjón mina. En til þess að ala þig, varð jeg að horfast i augu við dauðann. Jeg varð að glfma við hann, til þess að geta sjeð þjer fyrir viður- væri. Við börðumst um þig, dauðinn og jeg. All- ar konur verða að berjast við dauðann, svo að þær fái haldið börnum sínum. Hann vill taka börnin frá okkur, því að hann er sjálfur bamlaus. Gerald, þegar þú varst nakinn, klæddi jeg þig, og þegar þú varst svangur, gaf jeg þjer að borða. .Teg annaðist þig dag og nótt, þennan langa vet- ur. Ekkert starf er of auðvirðilegt, umhyggjusemin aldrei nægileg, þegar í hlut á sá, sem við konur elskum. Og það veit guð, jeg elskaði þig heitt. Hannah hefir ekki elskað Samúel heitar. Þú þarfn- aðist ástar, þvi'að'þú' varst veiklaður, og aðeins ástin gat varðveitt líf þitt. Hún ein megnar að varðveita líf hvers og eins. Drengir eru oft hirðu- lausir og særa aðra hugsunarlaust. Við gerum okkur þó ávalt í hugarlund, að þegar þeir komist á legg og fari að þekkja okkur betur, þá muni þeir endurgjalda okkur. En það fer ekki svo. Heimurinn dregur þá frá okkur, og þeir eignast vini, sem þeir njóta lifsins betur með en með okkur. Þeir taka þátt i skemtunum, sem við erum útilokaðar frá, og eignast áhugamál, sem ekki eru okkar. Þeir eru ósanngjarnir i okkar garð, þvi að þegar á móti blæs í lífinu, skella þeir skuldinni á okkur, og hins vegar, þegar lífið leikur við þá, fáum við ekki að njóta þess með þeim. . . . Þú eignaðist marga vini og fórst heim til þeirra og varst glaður með þeim. En jeg þekti leyndarmál mitt og þorði því ekki að fara með þjer, heldur sat jeg heima fyrir luktum dyruin. Jeg lokaði sól- ina úti-og sat í myrkrinu. Hvað átti jeg að vilja inn á heiðarleg heimili? Fortíð mín fylgdi mjer stöðugt. . . . Og þú hjelst, að jeg kærði mig ekki um hið skemtilega í lífinu. Jeg skal segja þjer, jeg þráði það, en þorði ekki að snerta, því að mjer fanst jeg engan rjett hafa til þess. Þú hugðir inig vera sælli við starf mitt meðal fátæklinga. Það væri mitt hlutverk, hugsaðir þú. Svo var ekki, en hvert annað átti jeg að fara? Þeir sjúku spyrja ekki, hvort höndin, sem lagar koddann þeirra, sje hrein, og á dauðastundinni er mönnum sama, þótt varirnar, sem snerta enni þeirra, hafi þekt syndar kossinn. Það varst þú, sem jeg hugsaði um sí og æ; en jeg veitti þeim þá ást, sem þú ekki þarfn- aðist. Jeg sóaði í þá ást, sem þeim ekki bar. Þjer fanst jeg eyða of miklum tíma í kirkjugöngur og guðsþjónustu. En hvert átti jeg að snúa mjer ann- að? Guðshús er eina húsið, þar sem syndarar eru velkomnir, og þú varst altaf i hjarta mínu, Ger- ald, um of í hjarta mínu, þvi að þótt jeg hafi dag eftir dag, við morgun- eða aftansöng, kropið í húsi drottins, þá hefi jeg aldrei iðrast syndar minn- ar. Hvemig gat jeg iðrast, þar sem þú, ástvinur minn, varst ávöxtur syndarinnar! Jafnvel nú, þeg- ar þú ert beiskur við mig, get jeg ekki iðrast. Jeg geri það ekki. Þú ert fnjer meira virði en sak- leysið. leg vildi heldur vera móðir þín — langtum heldur — en hafa altaf verið hrein og saklaus. Ó, sjerðu ekki, skilurðu það ekki? Það er van- sæmd mín, sem hefir gert þíg mjer svo kæran. Það er vanheiður minn, sem hefir bundið þig mjer svo náið. Verðið, sem jeg galt fyrir þig, — sál mín og Iikami — kemur mjer til að elska þig svo sem jeg geri. Ó, bið mig ekki að gera þetta, sem mjer finst svo hræðilegt.« A. G. iLij*

x

Úti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.