Úti - 15.12.1928, Síða 13
ÚTI
11
Arsæll Gunnarsson,
skátaforingi.
Fæddur 1895. - Dáinn 1926.
Minning.
Ennþá hef jeg átt og mtst,
eins og tíðnm gengur.
Hefir nú að Heli gist
hjartaprúður drengur.
Bil, sem fyrir brjósti uarð,
bœta fáir hinna.
Höggvíð er það höfuðskarð
i hópí vina minna.
Ekki var hann einn af þeím,
sem alla lita smáa,
utan þá, sem eiga seim,
eða stöðu háa.
Margur einn, sem úti kól,
og örlög brugðust vonum,
áttu’, er fauk í önnur skjól,
ylinn þó frá honum.
Þó ’ann hnígi á heljarslóð,
hcefir síst að kvarta.
Skálabúa og skipbrotsþjóð
skildi’ hann inn að hjarta.
Fyrir napran nornabyl
nú er slitið fundum.
Þeir, sem veita öðrum yl,
úti verða stundum.
Áhrifum þess unga manns
ekki’ er Ijett að gleyma.
Myndina og minning hans
mun jeg lengi geyma.
1926.
Hjálmar Þorstetnsson
frS Hofi.