Úti - 15.12.1928, Síða 20
18
ÚTl
lækni þeim, sem hefir kent ykkur »hjálp í við-
lögum«.
Annað verkefni í ritgerö gæti vel verið hrein-
leiki í hugsunum, — í hverju hann er fólginn og
hvernig hann lýsir sjer. —
D. Sch. Th.
Varðeldar.
Varðeldarnir eru hámark fegurðar og hrifning-
ar útileganna. í þeim brennur — í óeiginlegri
merkingu — sá andi, er einkennir skátalífið. Þar
er hreyfing og breytilegar myndir, hiti, ljós og líf.
Drengirnír umhverfis eldinn og hinir breytilegu
staðhættir skapa þessar áhrifaríku myndir. Sá skát-
inn, sem fróðastur er, skýrir hinum frá stað og
nágrenni skátabúðanna. Landið verður drengjun-
um lifandi fyrir hugskotssjónum, sem kærkominn
vinur, og minningar fornrar fiægðar rísa upp og
skýrast. Ef til vill geymir þessi staður sögulegar
endurminningar löngu liðinna daga, þar sem hetj-
ur með ósveigjanlegum kjarki og afburða vopn-
fimi áttu á móti ofurefli að etja. Og skátarnir fyll-
ast löngun til að verða hetjur vorra daga, þótt á
annan hátt sje, og strengja þess heit, að vera
ávalt viðbúnir. í huga þeirra risa minningar far-
inna skátaferða, er veittu þeim fræðslu og kæti.
í faðmi náttúrunnar nutu þeir fegurðarinnar, og
af háum hnjúkum hins dýrðlegasta útsýnis. En
mótlæti höfðu þeir einnig reynt. í misjöfnu veðri
og vondri færð fóru þeir margar ferðir, en ávalt
glaðir og fjelagslyndir, ákveðnir að ná settu tak-
marki. Margar slíkar minningar eru gimsteinar
hinnar listrænu og næmustu fegurðartilfinningar.
— Við yl og bjarta geisla, er varðeldurinn varp-
ar frá sjer, skýrast þannig myndir minninganna,
frá mörgum og glæsilegum skátaferðum.
Tr. Kristjánsson.
ílílíí
G i 11 w e 11.
Foringjaskóli skáta.
Gillwell Park heitir blómleg landspilda
skamt frá London. Árið 1920 keypti maður
nokkur, Mc. Laren að nafni, sem er skáti,
land þetta og gaf það ensku skátunum.
Bandalag ensku skátanna ákvað þegar,
að koma þar á stofn fullkomnum skóla fyrir
enska skátaforingja, en bráðlega var því
breytt þannig, að foringjar frá skátafjelög-
um úti í heimi, sem viðurkend væru af
Alþjóðabandalagi skáta, mættu sækja skól-
ann. Það hefir líka óspart verið notað, þvi
að nú hafa um 3000 skátaforingjar viðs-
vegar að lokið aðalprófinu á skólanum.
Þessi »Skátaháskóli«, eins og hann er
stundum nefndur, veitir mjög fullkomna
kenslu í ýmsu því, er skáta varðar, og fer
hún fram í námskeiðum, sem taka misjafn-
lega langan tíma. í ýmsum löndum, þar
sem skátar eru, hefir nú verið stofnað til
slíkra námskeiða og eru þau nefnd »Gill-
well-námskeið«, eftir því enska, enda háð
sömu reglum um próf og þvílíkt.
Sjerstakt próf fyrir sveitaforingja er haft
á öllum Gillwell-námskeiðum. Er það nefnt
»Wood Badge« og er aðalprófið. Er því
hagað sem hjer segir:
Fyrsti hluti þess er skriflegur. Eru þar
bornar fram ótal margar spurningar, sem
snerta skátana, er viðkomandi á að svara.
Annar hluti er að öllu leyti verklegur, en
þriðji hluti er innifalinn í því, að viðkom-
andi verður að hafa verið sveitarforingi í
4 mánuði undir eftirliti æðri foringja (deild-
arforingja) og verður auðvitað áð hafa leyst
það hlutverk af hendi með sóma. Þeir, sem
ljúka þessu prófi, gerast um leið meðlimir
I. Gillwell-sveitar, og er Sir R. B. Powell
sjálfur foringi hennar. Þeir fá og ýms merki,
svo sem »Wood Badge«-merkið og sjer-
stakan skátaklút, ljósgráan að lit.
Að vera skátaforingi er ábyrgðarmikil
staða og grípur inn í margt. Slík námskeið
sem þessi, er gefa alhliða fræðslu um starfið,
eru þvi alstaðar bráðnauðsynleg, og von-
andi verður þess ekki langt að bíða, að
Gillwell-námskeið verði stofnað hjer á
íslandi. Sig. Ág.
Druknun
og lífgun druknaðra.
Sorglegt er að vita, hve mörg mannslífin farast
hjer á landi i sjó og vötnum, — náttúrlega miklu
fleiri i sjó, — og oftast svo, að engin leið er að
bjarga. — En það kemur líka stundum fyrir, að
mönnum, sem falla i sjó eða vötn, er bjargað í
land svo að segja strax, og tekst þá oft að lífga
þá, ef rjett er að farið.
En kunnáttan i að lífga druknaða (og kafnaða)