Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 23
21
ÚTI
hann hugsaði með gleði til litla trjesins, sem
pabbi hans hafði smiðað fyrir mörgum árum og
altaf var notað. Einnig vissi hann, að margir
mundu fá stórar og miklar gjafir þetta kvöid.
Það olli honum engrar öfundar, þótt hann byggist
við litlum eða engum sjálfur. Verst fjell honum,
að geta ekki gefið neinum neitt. Mamma hans
hafði orðið að fá alla peningana um siðustu mán'
aðarmót.
Þau áttu heima uppi á efsta Iofti i þrílyftu húsi
og bjuggu i einu herbergi.
Þegar heyrðist til Pjeturs í stiganum, var hurð-
in opnuð.
»Ertu nú loksins orðinn laus, elsku drengurinn
minn?« sagði móðir hans um Ieið og hún faðm-
aði hann að sjer.
Það hýrnaði yfir Pjetri, þegar hann sá jólatrjeð
og heyrði öli systkini sín syngja.
Og þegar móðir hans kom með jólagjafirnar,
nýja sokka og skó, þá varð hann ekki Iítið glað-
ur. En er pabbi hans gaf honum bók, sem Pjetur
hafði lengi langað til að eignast, þá komu tárin
fram í augun á honum.
Jón H. Guðmundsson.
Þú sjerð hjerna á myndinni upphandlegg og
dálítið af framhandlegg. — Beinin sjást greinilega
og þú veist hvað þau heita. Þú sjerð líka greini-
lega »aflvöðvann« á upphandleggnum, M, þenn-
an, sem er kallaður tvíhöfði, og þú sjerð móta fyrir
báðum »höfðunum« (sinunum, U, sem ganga yfir
í vöðvann). Á myndinni vinstra megin er hand-
leggurinn útrjettur, en hægra meginn saman dreg-
inn. Þú sjerð, hvernig hann er þar styttri og digr-
■ ari. — Við innri röndina i þessum vöðva liggur
stóra slagæðin, sem fer ofan i handlegginn, og
einmitt þarna á að stöðva blóðrás frá hendi og
framhandlegg, með því að þrýsta æðinni inn að
upphandleggsbeininu.
Æfið ykkur i að gera þetta hver á öðrum.
D. Seh. Th.
Beinbrot
2. mynd.
2. mynd er af fótleggsbroti, lokuðu. Á 3. mynd
sjerðu, hvernig togað er í fótinn sínu hvoru megin
við brotstaðinn, til þess að reyna að koma bein-
unum í samt lag. Settu á þig handtökin. Á 4.
myndinni er verið að vefja um beinbrotið, búið
4. mynd.
að setja spelkur á, en er verið að vefja spelkurn-
ar fast að leggnum. Þú tekur væntanlega eftir, að
liöndur þær, sem voru að toga á 3. myndinni,
halda enn sama takinu á 4. myndinni. Til hvers
er það gert?
Á 5. myndinni sjest líka fótleggsbrot, en það er
opið. Hver er nú munurinn á þessu broti og hinu,