Úti - 15.12.1928, Side 26
24
ÚTI
Áræði eykur
aflgjafinn sá:
Takmarkið torveldum
tindum að ná.
þeim vel fagnað af skátunum þar og foringja
þeirra, Aðalsteini Sigmundssyni. Skátarnir sýndu
hver öðram listir sínar og höfðu bæði gott og
gaman af samverunni, þótt stutt væri. Foreldrar
Eyrbekkingaskátanna veittu Væringjunum bæði
mat og kaffi.
Hálfum mánuði síðar heimsóttu Eyrbekkingarnir
aftur Væringjana hingað til bæjarins. Var þeim
sýnt hið markverðasta í höfuðstaðnum, svo sem
söfnin og fleira. Samdrykkja var þeim haldin í K.
F. U. M.-húsinu og skemtu skátarnir þar hver öðr-
um með söngvum sinum og fleiru. Eyrbekkingar
voru hinir ánægðustu yfir komunni. Slíkar heim-
sóknir ættu að vera tíðari en þær hafa verið. Þær
auka samúð og fjelagslyndi meðal skátafjelaganna.
Skátafjelagið »Ernir«.
Þótt fjelag þetta eigi ekki mörg ár að baki, hefir
það starfað ötullega að málefnum skáta. Á síðast-
liðnu sumri bygði það myndarlegan sumarbústað
skamt fyrir norðan Lögberg, hjá Nátthagavatni
svonefndu. Æfingar þess eru nú í fullum gangi
og eru þær hafðar í leikfimishúsi Barnaskólans og
flokksæfingar heima hjá flokksforingjunum. For-
maður fjelagsins er Henrik Thorarensen, en sveit-
arforingjar þeir C. H. Sveins og Axel Sveins.
Tveir erlendir skátar
komu hjer í sumar. Annar þeirra, Paul Hammer
frá Kaupmannahöfn, dvaldi hjer í rúma þrjá mán-
uði. Hann tók þátt í skátamótinu í Laugardalnum
og var þar nokkurskonar fulltrúi fyrir dönsku K.
F. U. M. skátana. Hann ferðaðist talsvert um landið
og þótti mikið til þess koma.
Hinn skátinn, sem hingað kom, er frá París og
heitir Henri Aghion. Kom hann í júlímánuði og
dvaldi hjer í rúmar þrjár vikur. Hann kyntist
nokkrum Væringjum og ferðaðist með þeim hjer
um nágrennið. Tók hann mikilli trygð við þá og
hefir sent þeim bækur og fleira síðan hann kom út.
Jamboree-nefnd
hefir stjórn B. í. S. skipað nýlega. Er henni ætl-
að að gefa skátafjelögunum ýmsar .upplýsingar
um næsta Jamboree og jafnframt að undirbúa för
ísl. skáta á mótið. í nefndinni eru þeirC. H. Sveins,
Sig. Ágústsson og Uón. Oddgeir Jónsson. Utan-
áskrift hennar et:_Jamboree-nefndin. Pósthólf 966.
Reykjavlk.
F j a 11 a 1 í f.
Það er líf, sem krafta krefur
og kyrkir fljótast lyddubrag.
Það er lif, sem guðdóm gefur
og giftu skapar sjerhvern dag.
J. H. G.
EFNISYFIRLIT:
Jól, kvæði, eftir Aðalst. Sigm.
Útilif unglinga í Reykjavík, eftir Klemens Jónsson.
Heiðin jól, eftir P. S.
Væringjafjelagið 15 ára, eftir J. O. J.
Fáninn, saga, eftir E. Lieberath. Aðalst. Sigm. þýddi.
Jamboree, 1929, eftir J. O. J.
Móðurástin, eftir Oscar Wilde. A. G. þýddi.
Ársæll Gunnarsson, minning, eftir Hjálmar Þor-
steinssou frá Hofi.
Gróandi, eftir Dr. Helga Pjeturss.
Hugrekki, eftir sjera Fr. Fr.
Gleðileg jól, eftir Axel Tulinius.
Sveitamaðurinn og skátarnir, samtal, eftir J. O. J.
Þrifni, eftir D. Sch. Th.
Varðeldar, eftir Tr. Kristjánsson.
Gillwell, eftir Sig. Ágústsson.
Druknun, eftir D. Sch. Th.
Aðfangadagur sendisveinsins, saga, eftir Jón H.
Guðmundsson.
Beinbrot, eftir D. Sch. Th.
Smávegis.
Skátabúðir i Laugardai 1928.
Úr heimi skáta.
Fjallalíf, staka.
ÚGefandi: skátafjel. Værinejar.
Kits.jóri: Jón Oddgeir Jonsson.