Úti - 15.06.1940, Page 9
Maurar slökkva eld
Prófessor nokkur segir svo frá:
í furuskógi einum í Alpafjöllunum, ná-
lægt 1000 m. yfir sjávarmál, fann ég ó-
venjustóra mauraþúfu, sem byggð var
upp við stofninn á stóru tré. Þúfan var
eins og pýramídi 1 laginu, gerð úr greni-
og furunálum, mosa og þurrum greinum.
Klukkan 9.45 lét ég tylgiskerti í maura-
þúfuna, þannig, að hérumbil þumlungur
af því stóð upp úr henni, og svo kveikti
ég á því. Stór hópur maura, sem höfðu
verið önnum kafnir að bera til blaðalýs,
mjólkurkýr mauranna, safnaðist að, og
margir fóru upp á kertisbrúnina kringum
bráðna tylgið. Sjálft var ljósið hérumbil
hálfur annar þumlungur á hæð.
Þeir maurarnir, sem næstir ljósinu voru,
tleygðu sér nú inn í það af mikilli hug-
prýði, og komu þaðan aftur skaðbrenndir.
Sex maurar drógu félaga þeirra kolbrunna
upp úr bráðna tylginu.
Nú var uppi fótur og fit í mauraþúf-
unni.
Eftir skamma stund hættu maurarnir að
'leygja sér beint inn í eldinn. í stað þess
komu nokkrir stærstu og sterkustu maur-
arnir sér fyrir á kertisbrúninni, héldu
sér fast með afturfótunum, beygðu höfuð
ag framfætur svo langt aftur á bak, sem
beir gátu, og stefndu þannig bakhluta lík-
imans að loganum. Svo sprautuðu þessir
augrökku smælingjar einhverjum vökva
að kveiknum, og heyrði ég greinilega
snarkið, þegar vökvinn kom í logann.
Það var enginn hægðarleikur, að
slökkva eldinn með þessu móti. Kertið
jaáði dálítið upp úr þúfunni, svo að maur-
irnir urðu að klifra upp á brún þess. Hit-
l'ian hlýtur að hafa verið þar lítt þol-
f
andi, og þeir áttu sífellt á hættu að
brenna af sér fálma og fætur.
Ég tóu eftir því, að stærstu maurarnir
höfðu nú tekið að sér allt slökkvistarfið.
Þeir stóðu grafkyrrir á hættustað sínum
2—3 sekúndur. Það snarkaði og gnast í
loganum, þegar vökvinn hitti hann, og ég
sá það greinilega, að hann brann daufar
en áður. Sífellt þustu nýir maurar fram að
taka við af hinum. Sumir komust óskadd-
aðir frá eldinum, aðrr voru dregnir burt,
og enn aðrir lágu eftir á glóðheitum tylg-
isvökvanum.
Meðan þessu fór fram, höfðu maurarn-
ir hlaðið upphækkun úr barri kringum
kertið, svo að þeir, sem unnu slökkvi-
ÚTI