Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Síða 13
fyrir starfi því er þessi læknir hefir unn-
ið, að þeir hafa veitt 70,000,00 kr. í
byggingarsjóðinn.
í Shanghai í Kína, er vel útbúið
heilsuhæli í útjaðri borgarinnar, þar er
alt eftir fullkomnustu gerð. íbúarnir í
Shanghai hafa sýnt áhuga sinn með því
að leggja til 100,000,00 kr. í þá bygg-
ingu og á þann hátt stutt lækninga-
starfsemi vora.
Formaðurinn fyrir starfi voru í hinum
fjarlægari Austurlöndum, I. H. Evans,
skrifar: „f Kína og öðrum hlutum svæðis
vors í Austurlöndum eru sjúkrahús vor
meir en full og það streyma til vor
hvaðanæfa beiðnir um að við byggjum
ný sjúkrahús. Við þurfum líka að fá
fleiri hjúkrunarkonur, er geti heimsótt
sjúklinga í hinum mannmörgu borgum
og á þann hátt opnað veginn fyrir ljós
fagnaðarerindisins inn til fólksins. Á-
rangurinn af slíku starfi verður aldrei
metinn í orðum. Það starf hefir kristileg
áhrif i för m'eð sjer. Á þann hátt hafa
mörg mannslífin, sem sátu í myrkri
heiðninnar, frelsast.
Önnur læknatrúboð hafin.
I Japan hefir spítali verið bygður ná-
lægt Tokio. Dr. E. E. Getzlaff, sem er
leiðandi maður þar biður um meiri hjálp
til meðala og uppskurðartækja.
Fyrir mörgum árum hefir oss borist
beiðni um að byrja læknastarfsemi á
Filippseyjunum. Þar er þörfin mjög
mikil. Dr. A. Hall og kona hans frá Kali-
forniu hafa orðið við þessari beiðni og
eru nú búin að setja á stofn litla stöð í
Manila.
Það er líka gleðilegt að geta sagt að
ný spítalabygging hefir verið vígð í
Nasapur, í Suður-Indlandi, þar sem dr.
A. E. Clarke og kona hans starfa. í
Juliaca, Peru, höfum við einnig opnað
lækningastöð, þar sem dr. B. M. Graybill
læknar fjölda Inka-Indíána kring um
Titicana-vatnið. Á öllum þessum stöðum
— sem eru margir á starfsvæðum vor-
um — eru mörg þúsund sjúklingar, sem
einu sinni á mánuði er hjúkrað af lækn-
um og hjúkrunarkonum vorum með góð-
um árangri.
Frá þessum læknastöðvum á hinum
afskektu stöðum jarðarinnar koma hinar
eftirminnilegustu frásagnir, er sýna þýð-
ingu hins starfssama hjúkrunarfólks.
i
Það grefur gröf handa barninu.
Innfædd kristin kona í Mið-Afríku
gekk dag nokkurn fram hjá heiðnu
þorpi og heyrði að verið var að syrgja
einhvern dauðan þar inni í þorpinu, og
sá að byrjað var á því að taka gröfina.
Hún gekk þá nær og spurði hvað um
væri að vera, og frjetti þá að lítill
drengur væri dáinn. Hún gekk svo inn í
kofann og sá hið torkennilega barn,
sem lá þar fölt og dáið. Hún lagði eyrað
að brjósti þess og fanst hún heyra lífs-
voti. Henni datt í hug að dýrðlegt mundi
það vera ef Guð í þessum heiðna bæ
vekti þetta barn til lífsins og á þann
hátt sýndi þessu fólki kraft sinn. Hún
bað fólkið að hætta við að grafa og hafa
Stahl kristniboði heíir sjúklinga til meðferðar í kofa Indíána eins,
sem áður heíir verið villimaður; þetta er á Amazcn-svæðinu.
Bls. 11