Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 16

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins) - 15.06.1929, Blaðsíða 16
sem við getum sent“, svaraði hann. „Jú, við þurfum að fá kennara“. „Jeg þarf að fara til Iquitos“, sagði trúboðinn ennfremur. „Kemur þú ekki aftur“ spurði höfð- inginn. „Jú, það vona jeg“. „Hvenær?“ „Líklega eftir tvö til þrjú ár“. (Hann átti bráðum að fá frí og fara heim). „Viltu koma með kennara með þjer er þú kemur aftur?“ Hásýn: Kennaraskóli fyrir Inka-Indíána frá Peru og Bolivia í Juliaca, Peru. Stahl trúboði gat ekki lofað því. „En við bíðum og gætum að er þú kemur“, sagði höfðinginn, „og svo biðj- um við Guð að koma því þannig fyrir, að þú getir komið með kennara er þú kemur. Gleym oss ekki. Við bíðum hjer í skóginum eftir þjer“. „Hvernig get jeg fundið þorp ykkar?“ spurði Stahl. „Jeg veit ekki hvort jeg get fundið þenna stað aftur, er jeg kem til baka. En jeg skal segja ykkur hvað þið skuluð gjöra. Hengið nokkur hvít flögg í' trjágreinarnar, svo jeg geti sjeð þau er jeg kem aftur“. „Nei, það er ekki til neins“, sagði höfðinginn“. Einhver gæti tekið flöggin, og svo færir þú framhjá. Jeg kann betra ráð. Við flytjum þorpið. Við flytj- um allan þjóðflokkinn hingað að fljót- inu Við megum ekki missa þig. Við megum td að fá kennara. Við munum verða hjer og líta eftir þjer er þú kemur“. Það var hjer um bil þrem árum síðar, að> eftir að þeir höfðu ferðast sex daga eftir fljótinu, að Indíáninn, sem stýrði fyrsta bátnum rak upp hátt hróp. Hann var spurður að því hvað þetta ætti að þýða, og svaraði hann að nú nálguðust þeir þorp höfðingjans Umpacaris. Það var hann sem hafði lofað að flytja þorpið niður að fljótinu, og var Indíáninn að gefa merki um að trúboði Stahl væri á ferðinni. Hjer um bil klukkutíma síðar fóru bátarnir fyrir nes, og þar blastl við Indíánaþorp með 400 fjölskyldum. Það kváðu við há óp og Indíánarnir hlupu niður á bakkann og tóku fagnandi á móti komumönnum. Höfðinginn sem lofað hafði að flytja þorpið tók fyrst í höndina á Stahl, er hann kom í land og spurði: „Hefir þú kennara með? Þú hefir vona jeg komið með hann?“ Trúboðanum var svo boðið að koma með föruneyti inn í tvær bestu bygging- arnar í þorpinu. Umpacari höfðingi sagði: „Þessar byggingar tilheyra trú- boðinu. Við höfum kallað mennina sam- an og bygt þessar byggingar fyrir skóla og samkomuhús, og nú verðum við að fá. kennara“. Kirkjubyggingin tók um 500' manna. Meðan. þeir sátu þar, söfnuðust margar myndarlegar konur og menn I kring um þá og sögðu: „Við þurfum að fá kennara, útvega oss kennara, sem getur kent. okkur um Guð. Við getum ekki slept þjer fyr en þú lætur oss hafa kennara“. Allar þessar 400 Indíánafjöl- skyldur höfðu hætt að tyggja Coca, en það eru blöðin, sem er búið til Cocain úr. Þeir hafa líka allir hætt að nota vínanda. Enda þótt þeir gætu ekki feng- ið kennara þá, þá fögnum við nú yfir því að þeir hafa fengið kennara, sem getur vísað þeim leiðina frá heiðninni til Guðs. „Mitt orð. . . hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyr en það hefir framkvæmt það, sem mjer vel líkar, og komið því til vegar, er jeg fól því að framkvæma." Jes. 55, 11. Bls. 14

x

Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haustsöfnun til kristniboðsins (heiðingjatrúboðsins)
https://timarit.is/publication/1405

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.