Fréttablaðið - 18.10.2019, Side 2

Fréttablaðið - 18.10.2019, Side 2
Veður Suðvestanátt í dag, víða 3-8 m/s. Bjart veður á A-verðu landinu, ann- ars skýjað og smáskúrir fram eftir degi. Hiti 1 til 8 stig, en næturfrost N- og A-til á landinu. SJÁ SÍÐU 42 Landsfundur VG settur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, f lutti stefnuræðu sína á landsfundi f lokksins á Grand Hóteli í gær. Katrín lagði mikla áherslu á loftslagsmálin í ræðu sinni og benti á að undir forystu Vinstri grænna hefðu fyrstu lög um loftslagsmál verið sett, árið 2012. „Vegna þess að ég var á staðnum veit ég að það var við lítinn áhuga annarra flokka,“ sagði hún. Landsfundi lýkur á morgun, sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UMHVERFISMÁL Reykjavíkurborg hefur brett upp ermar og hafist handa við endurbætur á grenndar­ stöðvum borgarinnar. Úttekt hefur verið gerð á staðsetningu og umhverfi grenndarstöðvanna sem meðal annars fólst í greiningu á staðsetningu þeirra, endurnýjunar­ þörf og stöðu skipulagsmála. Fyrstu útboð vegna verkefnisins eru að bresta á og verður þeim framhaldið á næsta ári. Það er ungu fólki á Kjalarnesi að þakka að hreyfing er komin á verk­ efnið. Tillagan um endurbæturnar er komin frá ungmennaráði svæðis­ ins og var hún lögð fram á árlegum fundi ungmennaráða og borgar­ stjórnar Reykjavíkur. Sá sem bar tillöguna fram er hinn 15 ára gamli Gabríel Smári Hermannsson. „Ég fékk það hlutverk að leggja tillöguna fram á fundinum en hún er sprottin af vinnu okkar allra í ungmennaráði Kjalarness,“ segir Gabríel af aðdáunarverðri póli­ tískri hógværð. Að sögn Gabríels varð fljúgandi rusl á víð og dreif til þess að hugmyndin að tillögunni kviknaði. „Við í ungmennaráðinu höfðum öll orðið vör við fjúkandi rusl á Kjalarnesi sem kom frá grenndar­ stöðinni. Þar var einfaldlega allt troðfullt og tæmt of sjaldan með tilheyrandi sóðaskap. Aðstæður á Kjalarnesi eru til dæmis þannig að svæðið er ekki mjög skjólsælt sem skapar ýmis vandamál. Það sama gildir um aðrar staðsetningar á höfuðborgarsvæðinu. Við vorum því öll sammála um að brýnt væri að ráðast í endurbætur, skipuleggja svæði þeirra betur og auka tíðni sorphirðu,“ segir Gabríel. Hann hafi því fyrir hönd ung­ Borgarráð hlustaði á ungt fólk á Kjalarnesi Ungmennaráð Kjalarness lagði fram tillögu um endurbætur á grenndarstöðv- um Reykjavíkurborgar í mars. Verkefnið var sett í gang og stendur fram á næsta ár. Fulltrúi ráðsins er ánægður með að Reykjavíkurborg hlusti á ungt fólk. Gabríel segir Kjalnesinga meðvitaða um umhverfi sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við í ungmennaráð- inu höfðum öll orðið vör við fjúkandi rusl á Kjalarnesi sem kom frá grenndarstöðinni. Gabríel Smári Hermannsson, 15 ára íbúi á Kjalarnesi mennaráðs Kjalarness borið upp tillöguna á þessum árlega fundi borgarstjórnar Reykjavíkur og ungmennaráða borgarinnar. „Það er mjög hvetjandi fyrir okkur að sjá að það sem við ræðum innan ungmennaráðsins sé raunverulega tekið fyrir hjá borgaryfirvöldum og sett í framkvæmd. Ungmennaráð Kjalarness hittist tvisvar í mánuði á fundum og þetta gefur okkur auk­ inn kraft. Það er hlustað á okkur,“ segir Gabríel. Hann tekur þó fram að það sé þó ekki svo að Kjalarness sé allt í rusli. „Íbúar Kjalarness eru mjög meðvit­ aðir um umhverfi sitt. Maður verð­ ur var við að íbúar, ungir sem aldnir, tína rusl upp í göngutúrum og vilja halda nærumhverfi sínu hreinu. Það er gott að Reykjavíkurborg ætli að hjálpa til í þessari baráttu,“ segir Gabríel. bjornth@frettabladid.is SKOÐUN Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, birti í morgun grein þess efnis að á morgun yrðu liðin sjö ár frá því að tillögur stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá voru samþykktar í þjóðaratkvæða­ greiðslu. „Þjóðin hefur nú verið svikin af stjórnvöldum um þessa nýju stjórn­ arskrá í sjö ár. Núverandi ríkisstjórn virðist ekki ætla að færa þjóðinni þá heilsteyptu stjórnarskrá sem fólkið bíður enn eftir,“ segir Jóhanna. – atv Sjö ár liðin frá stjórnarskránni Jóhanna Sigurðardóttir. Millimál í fernu VÍTAMÍN & STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Meira á frettabladid.is STJÓRNMÁL Á fundi borgarráðs í vikunni kvartaði Kolbrún Baldurs­ dóttir, borgarfulltrúi Flokks fólks­ ins, yfir þeirri staðreynd að flokkur hennar hefði lagt fram, eða verið aðili að, 145 tillögum fyrir borgar­ stjórn. Aðeins sex tillögur hefðu verið samþykktar sem gera rúmlega fjögur prósent. Lét Kolbrún bóka að margir málaflokkar sem sneru að grunn­ þjónustu við borgarbúa hefðu mætt afgangi hjá meirihlutanum og að það væru þessi mál sem hún væri að reyna að vekja athygli á. Ályktaði hún að meirihlutinn hefði gert að venju sinni að kjósa eftir f lokkslínum en ekki mál­ efnum. Aðeins 4% mála Kolbrúnar í gegn Kolbrún Baldurs- dóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins. 6 af 145 tillögum Flokks fólksins hafa verið sam- þykktar. Fulltrúar meirihlutans létu bóka að fjöldi mála endurspeglaði ekki endilega gæði mála. Það væri af og frá að meirihlutinn samþykkti ein­ göngu mál eftir f lokkslínum. Þegar góð mál kæmu fram sem tónuðu við áherslur meirihlutans hefði verið tekið vel í það enda sýndi það sig að meirihlutinn hefði samþykkt ýmis mál sem komið hefðu frá minni­ hlutanum og stundum gert breyt­ ingar á hnökrum tillagna minni­ hlutans til að geta samþykkt þær. Ef hugmyndir væru ekki vel útfærðar væri þó ekki hægt að sam­ þykkja þær þó að hugurinn væri góður. – bþ 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -3 2 F 4 2 4 0 B -3 1 B 8 2 4 0 B -3 0 7 C 2 4 0 B -2 F 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.