Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið 35” BREYTTUR ALVÖRU JEPPASÝNING! LAUGARDAGINN 19. OKTÓBER MILLI KL. 12-16 FRUMSÝNUM JEEP® WRANGLER OG RAM 3500 MEÐ 40” BREYTINGUM. EINNIG VERÐUR TIL SÝNIS ÚRVAL BREYTTRA JEPPA M.A. JEEP® GRAND CHEROKEE MEÐ 33” OG 35” BREYTINGUM, JEEP® WRANGLER MEÐ 35” OG 37” BREYTINGUM OG RAM PALLBÍLAR MEÐ 35-37” BREYTINGUM. ALVÖRU JEPPAR MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI. isband.is UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS OG JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ALVÖRU JEPP SÝNING! Í DAG LAUGARDAGINN 19. OKTÓBER MILLI KL. 12-16 UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS OG J EP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 270 MOSFE LSBÆR S. 534 4 3 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 37” BREYTTUR37” BREYTTUR Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálf- stæðisf lokksins spurði ráðherra hvers vegna Sjúkratrygg- ingar hefðu tekið þvagleggi af nýjustu gerð af lista yfir þá sem eru niðurgreiddir og hversu margir hefðu óskað eftir undan- þágu fyrir þvagleggjum á árinu. Simone Biles fimleikastjarna vann til fimm gullverðlauna á HM í fim- leikum í Þýska- landi og er þar með orðin sú sigur- sælasta á HM frá upphafi. Biles heillar einnig með háttvísi sinni og virðingu fyrir keppinautum. Gunnar Karl Gíslason matreiðslu- maður segir að þungur rekstur Mikk- eller & Friends og Systur hafi sligað veitingastaðinn Dill, sem opnaður verður aftur í Kjörgarði. Dill er eini veitingastaðurinn á Íslandi sem fengið hefur Michelin-stjörnu. Þrjú í fréttum Þvagleggir, fimleikar og Kjörgarður 80 prósent kvenna á Alþingi verða fyrir kyn- bundnu ofbeldi samkvæmt nýrri könnun. Hlutfallið er hærra hér á landi en í öðrum löndum Evrópu. TÖLUR VIKUNNAR 13.10.2019 TIL 18.10.2019 20 ár eru síðan Samtök at- vinnulífs- ins voru stofnuð. Ársfundur atvinnu- lífsins var haldinn í Eld- borgarsal Hörpu í vikunni. 54,5 milljarðar króna eiga að fara í nýjar byggingar Landspítalans við Hringbraut. Áætluð verklok eru árið 2024. 13.700 krónur er götuverðið á grammi af kókaíni í dag en styrkleiki eitur- lyfja á Íslandi hefur aukist töluvert að undanförnu. 1,12 milljarður manns horfði á sjón- varpsútsendingu úrslitaleiks heimsmeistara- mótsins í knatt- spyrnu kvenna í sumar. FIFA birti áhorfstölurnar í vikunni sem eru hærri en nokkru sinni fyrr. HEILBRIGÐISMÁL „Okkar markmið er að vernda klíníska þjónustu eftir því sem hægt er. Beinar aðhaldsað- gerðir snúa helst að stoðþjónust- unni og rekstrarkostnaði ýmsum. Engu að síður er meginkostnaður spítalans í launum og þar verður því miður að taka á,“ segir Páll Matthí- asson, forstjóri Landspítalans. Í gær lauk yfirferð æðstu stjórnenda spítalans yfir aðhaldsaðgerðir. „Aðhaldsaðgerðunum miðar ágætlega. Við erum búin að velta við hverjum steini. Við erum með fjölda aðgerða sem hljóða samtals upp á rúman milljarð á þessu ári. Á ársgrundvelli þýðir það aðgerðir upp á um tvo og hálfan milljarð.“ „Við erum að tala um frestun ýmissa viðhaldsverkefna þó það verði áfram vinna í gangi. Það er verið að draga úr aðkeyptri þjón- ustu,“ segir Páll. Þá verður hætt með svokallað Hekluverkefni með nýjum kjarasamningum, en það verkefni var útfærsla á launahækk- un til að hvetja til hærra starfshlut- falls. Auk þess verður hætt að greiða vaktaálagsauka til hjúkrunarfræð- inga sem og annarra stétta í vakta- þjónustu. „Við erum að setja háa aðhalds- kröfu á stoðsviðin okkar, það eru svið sem lúta ekki að klínískri þjón- ustu,“ segir Páll. Þá sé búið að fækka og lækka laun framkvæmdastjóra ásamt því að aðhald í lyfjakostnaði hefur verið aukið og hægt á endur- nýjun á tölvubúnaði. Mikið hefur verið rætt um álag á starfsfólki spítalans síðustu ár og eru veikindi starfsmanna Land- spítalans heilt yfir frekar algeng. Í fyrra var hlutfallið á bilinu 5,5 og 8,6 prósent. Metið er í hverju tilfelli fyrir sig hvort kallað er á annan starfsmann á aukavakt og segir Páll að það verði reynt að hafa meira aðhald í því. Aðspurður hvaða áhrif aðhaldsaðgerðirnar komi til með að hafa á starfsfólkið segir Páll það verða áskorun að halda vinnu- staðnum góðum og öflugum. „Okkar kjarnamarkmið, okkar hlutverk, er að halda úti þjónustu við sjúklinga. Við ætlum að vernda hana eins og við getum,“ segir Páll. Ekki verður þó allt skorið niður. Til dæmis fær samgöngupakki starfsmanna að halda sér. „Vegna samfélagslegrar ábyrgðar og auð- vitað sem stuðning við starfsfólk þá töldum við rétt að halda samgöngu- pakkanum inni og samningnum við Strætó bs. um að starfsmenn fái ódýrari strætókort, samningur sem hefur gefið góða raun,“ segir Páll. „Við veltum við þessum steini, en honum var velt aftur á réttuna.“ Páll segir óvíst hversu lengi aðhaldið mun standa yfir. Fram undan eru viðræður við Alþingi, f járlaganefnd og fjármálaráðu- neytið um launabætur. „Við teljum vanta launabætur fyrir ýmsa kjara- samninga. Það er eins og dulin hag- ræðingarkrafa þegar við fáum ekki bætur fyrir launin sem við greiðum sannarlega. Við fáum fjármagn til að greiða laun frá Fjársýslu ríkis- ins,“ segir Páll. „Þetta er tæknilegt mál um hvernig þessar kjarabætur eru reiknaðar í samningum. Oft eru þetta f lóknir samningar og gerðir með nýjum hætti eins og læknasamningarnir árið 2015 svo dæmi sé tekið. Þetta er samtal sem við eigum í núna við fjárveitingar- valdið,“ bætir hann við. arib@frettabladid.is Vanda þarf aðhaldsaðgerðir til að þær bitni ekki á starfsfólki Spara á milljarð króna á þessu ári og tvo og hálf- an milljarð á því næsta með aðhaldsaðgerðum á Landspítala. Forstjóri segir alla áherslu lagða á að vernda klíníska þjónustu á kostnað stoðþjónustu. Mikið álag er á starfsfólki spítalans og er mikið um veikindi. Páll segir að vanda þurfi til verka ef ekki eigi að auka álagið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Okkar kjarnamark- mið, okkar hlut- verk, er að halda úti klín- ískri þjónustu. Við ætlum að vernda hana eins og við getum. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans Aðhaldsaðgerðir á Landspítalanum • Há aðhaldskrafa á stoðsvið • Frestun ýmissa viðhaldsverk- efna • Dregið úr aðkeyptri þjónustu • Hætt með Hekluverkefni • Hætt að greiða vaktaálags- auka hjúkrunarfræðinga • Frí verði tekin, ekki greidd út • Aðhald í lyfjakostnaði • Hægt á endurnýjun tölvu- búnaðar • Starfsmannavelta notuð til að fækka starfsfólki • Dregið úr greiddri yfirvinnu • Dregið úr ferðakostnaði • Aðhald í innkaupum • Hagrætt í vinnuskipulagi lækna • Dregið úr ferðakostnaði • Laun framkvæmdastjóra lækkuð • Föst yfirvinna endurskoðuð 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -4 6 B 4 2 4 0 B -4 5 7 8 2 4 0 B -4 4 3 C 2 4 0 B -4 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.