Fréttablaðið - 18.10.2019, Page 16

Fréttablaðið - 18.10.2019, Page 16
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. EyeSight er staðalbúnaður í öllum Subaru Forester. www.subaru.is Komdu til okkar og reynsluaktu nýjum Subaru Forester Subaru Forester Gerður til að kanna ætlaður til að ferðast E N N E M M / S ÍA / N M 9 6 1 4 9 S u b a ru F o re s te r 5 x 2 0 o k t BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16 TÆKNI Gervigreind og hreyfanleiki vélmenna eru komin á þann stað að ein vélhönd getur nú leyst Rubiks- kubb. Fyrir utan flókna þraut fyrir marga þá er um að ræða fínhreyf- ingar sem f lest fólk hefur mikið fyrir að ná. Hreyfingarnar eru þó nokkuð klunnalegar, má jafnvel kalla þær ónáttúrulegar. Vélhöndin sem getur þetta er framleidd af Shadow Robot Comp- any og er komin í almenna sölu. Getur höndin meðal annars hand- leikið egg án þess að brjóta það. Hugbúnaðurinn er forritaður af OpenAI, forritunarhúsi sem hefur meðal annars hannað gervigreind sem hefur betur en mannfólk í tölvuleiknum Dota 2. Teymi OpenAI notaði tækni sem grundvallast á því að kenna vélhendinni með jákvæðri styrk- ingu. „Til að byrja með veit höndin ekki hvernig hún á að hreyfast eða hvernig kubburinn bregst við þegar það er ýtt við honum,“ segir Peter Welinder, einn rannsakenda í sam- tali við tímaritið New Scientist. Vélar hafa áður verið forritaðar til að leysa Rubikskubba, metið eiga verkfræðingar hjá MIT-háskóla sem hönnuðu vél sem leysir kubbinn á Gervigreind vélhönd leysir Rubikskubb Með gervigreind var notuð jákvæð styrking til að kenna vélhendi með fingra- nema að leysa Rubikskubb. Gervigreind lærir mun hraðar en hugur manns. Ef sama aðferð yrði notuð á manneskju myndi það taka rúmlega 13.000 ár. Fínhreyfingar þarf svo vélhöndin geti handleikið kubbinn. MYND/OPENAI 0,38 sekúndum. Munurinn er að nú er verið að nota vél sem getur gert f leiri hluti en að leysa Rubikskubba auk þess að vera með fingur í líki mannsfingra. Notast var við jákvæða styrkingu með því að forrita höndina til að vilja stig og gefa hendinni stig í hvert skipti sem hún leysti nýtt verkefni á borð við að snúa kubbnum við. Gervigreind lærir mun hraðar en mannshugurinn, ef sama aðferð yrði notuð á manneskju myndi það taka rúmlega 13.000 ár. Vélhöndin er ekki með nein augu þannig að notast er við þar til gerða nema í fingrunum. Gat hún svo lært af mistökum sínum, til dæmis ef hún sneri kubbnum of langt. Welinder segir það allt velta á hversu ruglaður kubburinn er hversu lengi vélhöndin er að leysa þrautina. Besta tilraunin tók um þrjár mínútur. Næsta verkefni er að kenna hendinni að mála og brjóta saman pappír. arib@frettabladid.is Gervigreind og hreyfan- leiki vélmenna eru komin á þann stað að ein vélhönd getur nú leyst Rubikskubb. TÆKNI Fyrstu rafmagnsmótorhjólin frá hinu sögufræga fyrirtæki Harley Davidson, voru seld í september. Vandræði komu upp með hleðslu þeirra en talsmenn fyrirtækisins segja nú að eigendur geti óhræddir hlaðið þau heima hjá sér. Harley Davidson tilkynnti árið 2014 að þeir hygðust koma raf- magnsmótorhjóli á markað innan fimm ára og það tókst. Vandamálið sem þeir þurftu að komast yfir var drægnin en talið var að hjólin þyrftu að komast að minnsta kosti 160 kílómetra á einni hleðslu. Hjólið fékk nafnið LiveWire og á sjónvarpsstöðinni Fox var það titlað „mesta fráhvarf frá hefðinni í 111 ára sögu fyrirtækisins.“ Sala hófst í haust en hvert hjól kostar tæpar fjórar milljónir króna. Fljótt komu upp vandamál með hleðsluna sem erfitt hefur verið að greina. Til að byrja með ráðlögðu Harley Davidson kaupendum að hlaða aðeins hjá umboði á hverjum stað. Nýlega gaf fyrirtækið út yfir- lýsingu um að vandamálið hefði verið bundið við eitt hjól og að óhætt væri að nota þau. - khg Fyrstu Harley Davidson rafmagnsmótorhjólin Fyrirtækið kynnti LiveWire til sögunnar í sumar. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrirtækið hóf þróun LiveWire árið 2014. Hvert hjól kostar tæpar fjórar milljónir króna. 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -2 E 0 4 2 4 0 B -2 C C 8 2 4 0 B -2 B 8 C 2 4 0 B -2 A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.