Fréttablaðið - 18.10.2019, Page 20

Fréttablaðið - 18.10.2019, Page 20
Auðvitað er smá þreyta eftir 21 árs atvinnumannsferil þar sem allt hefur snúist um golf en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegur tími. Birgir Leifur Hafþórsson GOLF Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Haf þórsson settist á skóla- bekk í haust eftir sérstakt tímabil á Áskorendamótaröð Evrópu þar sem hann spilaði í þremur mótum á árinu. Skagamaðurinn segist vera í toppstandi og var hissa á fáum tækifærum í sumar sem leiddi til þess að hann skráði sig í nám. Besti árangur tímabilsins hjá Birgi var 31. sæti á Bretagne-mótinu í Frakk- landi, sama móti og hann vann fyrir tveimur árum, en í hinum tveimur mótunum náði Birgir ekki niður- skurði. „Þetta er búið að vera sérstakt ár, ég átti von á því komast í mun fleiri mót, ég tók þátt í þremur mótum en var búinn að gera ráð fyrir að komast inn í 15 mót. Ég var vel undirbúinn og í toppstandi og var að spila gott golf. Þetta getur breyst svo hratt, eftir að hafa spilað vel síðustu tvö, verið með þátttökurétt á European Tour og Challenge Tour og unnið mót á Challenge Tour og komast svo aðeins inn í þrjú mót. Þetta er harður heimur og það er ekkert öruggt í þessu,“ segir Birgir Leifur í samtali við Fréttablaðið. „Ég tók þá ákvörðun að skrá mig ekki í úrtökumótin í haust, það hafði blundað í mér að fara í nám og þegar ég komst inn í MBA-námið þá ákvað ég að núna væri mögulega rétti tíminn til þess að breyta til og víkka sjóndeildarhringinn. Ég hlakka til að læra nýja hluti og tak- ast á við nýjar áskoranir sem eiga án efa eftir að styrkja mig í starfi og hjálpa mér að ná nýjum mark- miðum,“ segir kylfingurinn. „Ég er menntaður PGA-kenn- ari og starfa sem íþróttastjóri hjá Leyni samhliða náminu og finnst það mjög skemmtilegt og gefandi. Mér finnst einstaklega gaman að vinna með ungum og upprenn- andi kylfingum, einnig öllum þeim kylfingum sem vilja bæta sig. Mér finnst fátt meira gefandi en að miðla reynslu minni og ég hef verið svo heppinn að fá að vera í kringum marga af okkar bestu kylfingum í dag. Golfíþróttin verður vonandi alltaf hluti af lífi mínu.“ Aðspurður útilokar Birgir ekki að taka þátt í móti á næsta ári fái hann boð í mót á Áskorendamótaröðinni. „Ég er ekki tilbúinn að gefa það út að ég sé hættur og kylfurnar séu á leiðinni upp í hillu, alls ekki. Golf er nú þannig að það er alltaf hægt að fara af stað á ný. Hver veit nema ég skrái mig aftur í úrtökumót. Ég hef alltaf haft það á bak við eyrað að vera í toppformi fyrir Senior-móta- röðina þegar kemur að því,“ segir Birgir Leifur glottandi um mótaröð ætlaða kylfingum yfir fimmtugu sem er hluti af af European Tour og Challenge Tour mótaröðunum. Það eru komið rúmt 21 ár síðan Birgir Leifur lék á sínu fyrsta móti á Áskorendamótaröðinni, næststerk- ustu mótaröð Evrópu. Birgir varð fyrsti atvinnukylfingur Íslendinga og á að baki 68 mót á Evrópumóta- röðinni, sterkustu mótaröð Evrópu og 157 mót á Challenge Tour, næst- sterkustu mótaröð Evrópu. „Auðvitað er smá þreyta eftir 21 árs atvinnumannsferil þar sem allt hefur snúist um golf en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegur tími. Núna eru nýjar áskoranir og tæki- færi og ég er mjög spenntur að sjá hvað lífið hefur upp á að bjóða, hver veit, kannski bara eitthvað annað en golf.“ Tveir Íslendingar, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús, hafa þegar tryggt sér þátttökurétt á Áskorendamóta- röðinni fyrir næsta tímabil. Þá eru Guðmundur, Haraldur og Andri Þór Björnsson úr GR, Bjarki Pétursson úr GKB og Rúnar Arnórsson úr GK allir komnir á annað stig úrtöku- mótsins fyrir Evrópumótaröðina. Þeir freista þess að komast inn á lokastig úrtökumótsins á Spáni í næsta mánuði. Með því að komast á lokastig úrtökumótsins fyrir Evr- ópumótaröðina öðlast kylfingar þátttökurétt á Áskorendamóta- röðinni og gætu Andri, Bjarki eða Rúnar því bæst í hóp Íslendinga á Áskorendamótaröðinni á næsta ári. „Það er frábært að sjá svona marga kylfinga frá Íslandi tilbúna að fara út og taka stökkið. Það er langt síðan maður var í þessum sporum. Ég var mikið einn að ryðja veginn, ég hef gert alls konar mis- tök og það eru líka fullt af sigrum að baki á þessum árum. Ég komst á Evróputúrinn og spilaði hátt í 70 mót þar og ég er rosalega stoltur af ferli mínum,“ segir Birgir Leifur sem var fyrirmynd fyrir bestu kylfinga landsins í dag og hjálpaði þeim oft á leið þeirra í atvinnumennskuna. „Ég hef alltaf reynt að miðla reynslu minni eftir bestu getu til allra þeirra sem hafa leitað til mín. Ég myndi vilja gera svo miklu meira af því og fá að vera þátttakandi í áframhaldandi uppbyggingu golfs á Íslandi. Það er gaman og gefur mér mikið að sjá mörg af þeim sem hafa leitað til mín vera í fremstu röð í dag. Það er jákvætt að sjá hvað margir eru að reyna við atvinnumennsk- una í dag enda gott að hafa sam- keppni og leikmenn drífa hver annan áfram. Auðvitað væri ég mikið til í að vera ungur og hungr- aður núna með svona samkeppni.“ segir Birgir og tekur undir orð blaðamanns að Guðmundur og Haraldur virtust vera tilbúnir fyrir Áskorendamótaröðina. „Guðmundur og Haraldur eru báðir á góðri leið og það er gaman að sjá þá mótast, þeir vita að þetta er hægt. Það er núna þeirra og f leiri að taka við kef linu og fara með það enn lengra, sýna komandi kynslóðum að það sé hægt að fara enn lengra. En á sama tíma þarf umgjörðin að halda í við þessa frá- bæru framþróun sem hefur átt sér stað síðustu 20 árin. Það var sér- staklega gaman að hafa tekið þátt í því að koma á laggirnar Forskoti, afrekssjóði kylfinga sem saman stendur af frábærum fyrirtækjum. Án þeirra aðkomu væri íslenskt golf ekki á þeim stað sem það er á í dag og mikilvægt að þessi sjóður lifi áfram.“ Að lokum spyr undirritaður Birgi Leif út í fjarveruna frá Íslandsmót- inu í golfi undanfarin þrjú ár. Birgir bætti met Úlfs Jónssonar og Björg- vins Þorsteinssonar þegar hann varð Íslandsmeistari í sjöunda sinn á ferlinum árið 2016 en hefur ekki tekið þátt síðustu ár. „Ég tók ákvörðun um að taka mér frí eftir Íslandsmótið 2016 þegar ég náði metinu. Ég þurfti að finna mér ný markmið. Það getur verið erfitt að vera í móti þegar maður er ekki með skýrt markmið. Ég er líka með svo gott vinningshlutfall í Íslands- mótinu sem er algjör óþarfi að vera að eyðileggja það, 14 mót og sjö sigrar. Ég kaus í staðinn að taka kær- komið frí með fjölskyldunni.” kristinnpall@frettabladid.is Nýjar áskoranir fram undan hjá Birgi Sigursælasti kylfingur Íslands, Birgir Leifur Hafþórsson, segir óvíst hvað framtíðin ber í skauti með sér en hann hóf nýlega MBA- nám. Hann útilokar ekki að reyna aftur að komast í atvinnumennskuna en einbeitir sér nú að námi og þjálfun yngri kylfinga. Birgir Leifur var einnig í liði Íslands á Evrópumóti atvinnukylfinga sem vann til gullverðlauna í Skotlandi síðasta sumar. NORDICPHOTOS/GETTY Birgir með sjöunda Íslandsmeistaratitilinn árið 2016. MYND/GSÍMYNDIR.NET BÍLAMERKINGAR Vel merktur bíll er ódýrasta auglýsingin Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is „ 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -5 0 9 4 2 4 0 B -4 F 5 8 2 4 0 B -4 E 1 C 2 4 0 B -4 C E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.