Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 30
Kynferðisofbeldi 3. hluti af 5 böndum og það er líka flókið.“ Vilja þessir þolendur kæra brot sín? Verða þeir fyrir endurteknum brotum? „Þolendur lýsa auknu trausti á kerfið, bæði heilbrigðiskerfið og löggæslu, það er allavega það sem við heyrum frá þeim. Það má meðal annars þakka úrræðum Frú Ragn- heiðar, Konukots og VoR-teymisins því að þau eru í beinum tengslum við þessa einstaklinga og geta stutt við þau og frætt þau um hvert þau eiga að leita, eftir of beldið. Ég fagna þessu aukna trausti, það sýnir hvað það er mikilvægt að vera í góðri samvinnu við önnur kerfi. Ég sé mikinn mun á þeim tæplega sjö árum sem ég hef starfað hér. Það að leggja fram kæru á hendur ofbeldis- manni er jákvætt því að þolendur eru að setja ákveðin mörk. Þetta er hópur sem verður fyrir endurteknum brotum og brotin eru oft líka undanfari neyslunnar. Rannsóknir sýna það mjög skýrt að áföll í æsku tengjast neyslu. Einnig að búa við mikla streitu sem barn getur orðið til þess að þú farir að misnota vímuefni.“ Sjálfsásökunin mjög sterk Sættir fólk sem er í neyslu sig frekar við of beldissambönd en aðrir? „Þau sætta sig ekkert frekar við að vera í ofbeldissamböndum en aðrir. En sjálfsásökunin er mjög sterk og við reynum að aðstoða þau við að leiðrétta þá hugsun. Því enginn kemur sér í þessar aðstæður. Það eru gerendur sem brjóta á þeim og bera ábyrgð. Þegar þessir einstaklingar voru ungir þá voru færri úrræði og minni stuðningur í nærumhverfi þeirra til að leita sér aðstoðar eftir of beldi en í dag eru aukin úrræði fyrir þolendur. Með stuðningi og fræðslu leita þau hingað á Neyðar- móttökuna og hér eru allir jafnir. Við erum ekki að horfa á einstak- ling sem er í þessum aðstæðum vegna neyslu heldur einstakling sem varð fyrir ofbeldi og við ætlum að aðstoða hann. Við heyrum sögur af því að kynferðisofbeldið hafi komið í kjölfar greiða eða vegna þving- unar, tengt neyslu. Okkar hlutverk er að aðstoða fólk og sinna því eftir ofbeldið sem og minna þau á að kyn- ferðisofbeldi, nauðganir og þving- anir séu aldrei réttlætanlegar, sama hvaða aðstæður eru fyrir hendi.“ Þolendur í neyslu eru á öllum aldri. „Yngsti þolandinn sem hing- að hefur leitað og var í neyslu var þrettán ára. Sá elsti sem ég man Neyðarmóttakan er opin allan sólarhringinn og er þeim sem þangað leita að kostnaðarlausu. „Þær mæta ofbeldismönnum á Vogi, spítölum, í úrræðum, alls staðar“ „Ég hef enga tölu á því hversu oft það hefur verið brotið á mér,“ segir kona sem leyfir blaðamanni að skyggnast inn í tilveru sína. Hún er um fertugt og hefur verið í vímuefnaneyslu frá því hún var tæplega tvítug. Við skulum kalla konuna Maríu. Með henni er kona sem hún treystir og hefur stutt Maríu í rúmlega tvö ár með góðum árangri. María: Ég hef verið í neyslu í tuttugu ár. Það varð mjög hröð þróun hjá mér. Er oft að reyna að hætta. Það gengur upp og niður. Ég nota rítalín enn þann dag í dag, stundum morfín. Vinkona: Hún er búin að vera rosalega dugleg. Með þéttan stuðning. Hún hittir teymi frá Reykjavíkurborg á hverjum degi og hefur mörgum sinnum náð að vera edrú í svolítinn tíma. Og þá getað unnið hlutastörf. María: Ég var mörg ár á götunni. Lenti fyrst á götunni áður en Konukot var opnað og þá var mikið brotið á mér. Þetta er alltaf áfall, en ég hef bara enga tölu á þessu. Mér finnst þeir heppnir sem lenda í þessu kannski bara einu sinni eða tvisvar. Vinkona: Ég hef stundum upp- lifað að henni finnst ekki ofbeldi sem hún hefur orðið fyrir hafa verið nógu merkilegt til að nefna það við mig. María: Maður segir bara stundum við sig: Æi, þetta er bara svona. Hún vinkona mín minnir mig á það að ábyrgðin sé ekki mín. Ég reyndi að kæra eitt ákveð- ið mál. En það gekk ekki upp. Viltu segja mér frá því? María: Maðurinn tók mig gísla- töku og neitaði að hleypa mér út. Hann lét mig fá morfínsprautu. Ég er ekki mjög vön því, en ég var búin að segja við hann að ég vildi það ekki. Vildi bara töflur. Svo bara vakna ég í engum fötum í rúmi með hann við hliðina á mér. Ég var með mikla áverka. Hann hélt mér þarna inni í nokkra sólarhringa. En mér tókst að fá leyfi til að fara niður og taka á móti efnum og þá flúði ég. Ég hljóp út á götu og þaðan fór ég í Konukot. Þær þekktu mig vel og sáu strax að eitthvað alvarlegt hefði gerst. Þær tóku mig afsíðis á skrifstofuna sína og hringdu á sjúkrabíl. En svo ákvað ég að kæra. Ég fékk lögfræðing, ég fór í skýrslu- töku og sagði frá því sem gerðist. Vinkona: Þetta var orð gegn orði og við fengum að vita að það hefði unnið gegn henni að hafa verið undir áhrifum. Ég var með henni í Bjarkarhlíð þegar við fengum fréttirnar, að málið hefði verið fellt niður og það var henni gífurlegt áfall. Síðan þá hefur ofbeldismaðurinn orðið á vegi hennar. Hún fór á Vog einn daginn en útskrifaði sig strax þegar hún sá hann. Það var hún sem þurfti að fara. Ekki hann. Þær mæta of- beldismönnum á Vogi, spítölum, í úrræðum, alls staðar. Þú færð aðstoð frá VoR-teyminu. Hefur lífið breyst frá því að það kom þér til aðstoðar? María: Það varð mikil breyting til góðs þegar VoR-teymið kom inn. Ég hitti þau á hverjum degi og er að fara að flytja í nýtt húsnæði. Er skeptísk en ég vona að það verði til góðs. Dæmir fólk þig? María: Já. Vinkona: Fólk ætti að hafa það í huga áður en það dæmir að það er nokkuð sem við sjáum sem erum að vinna með konum eins og Maríu og það er að mjög margar þeirra hafa orðið fyrir alvarlegu kynferðisofbeldi í æsku. Fólk sem er í hennar stöðu er þar ekki af því það vill það. Þetta kýs enginn. María vildi innrita sig i meðferð á Vogi. Hún þurfti frá að hverfa því að þar mætti hún ofbeldismanni sínum sem hafði haldið henni nauðugri. ÉG VIL AÐ VIÐ SEM SAMFÉLAG EINBEITUM OKKUR FREKAR AÐ ÞEIM SEM FJÁRMAGNA OG SKIPULEGGJA FÍKNIEFNA- SÖLU FREKAR EN AÐ REFSA VEIKU FÓLKI MEÐ LITLA SKAMMTA SEM ERU ÞEIRRA LÍFÆÐ. eftir um sextugt. Aldursbilið er ögn breiðara hvað varðar þolendur í neyslu en almennt.“ Þú nefndir að konur væru stærsti hópurinn sem leitar til ykkar, en nú hafa nokkur stórmál sem varða drengi í neyslu sem voru misnotaðir verið í deiglunni. Hver er ykkar til- finning? „Ég get ekki talað um einstök tilvik en við sinnum strákum og körlum, en þeir koma síður til okkar. Við myndum gjarnan vilja fá þá til okkar og aðstoða þá eftir of beldi því við gerum það jafnt og við konur. En eins og er alls staðar í heiminum þá leita karlmenn sér ekki aðstoðar eftir kynferðisof- beldi í eins miklum mæli og konur, þeir eru að ég held ekki alveg til- búnir. Það er meira stigma og það er svona innri stimplun. Þeir loka frekar á of beldið og nota jafnvel óheilbrigðar leiðir til að takast á við of beldið sem þeir hafa orðið fyrir, eins og aukna áfengisnotkun. Karl- menn leita sér svo stundum aðstoð- ar á fullorðinsaldri vegna of beldis sem þeir urðu fyrir 14-16 ára en við myndum vilja geta aðstoðað þá sem fyrst eftir of beldisatvik.“ Hrönn nefnir að þó að sjálfsásök- unin sér mikil hjá þolendum kyn- ferðisof beldis hafi opin umræða dregið aðeins úr henni. „Ungt fólk veit betur hvað er rétt og rangt og það hefur komið með aukinni umræðu og fræðslu. Það er meira meðvitað um hvað er rétt og rangt. En hjá eldri einstaklingum er sjálfsásökunin enn þung og mikil, kannski er það vegna þess að það er svo innprentað í til dæmis mína kynslóð að við ættum að passa okkur.“ Með sömu drauma Hrönn segir fordóma í samfélaginu gagnvart fólki í vímuefnaneyslu. „Það er stimpill á fólki í vímuefna- neyslu. En þetta er bara fólk eins og við, sem á fjölskyldur, jafnvel börn og eiga sömu drauma og væntingar til lífsins og við. Mér finnst einstakl- ingar í vímuefnaneyslu stundum dálítið ósýnilegur hópur. Starfs- fólk bráðamóttöku og Neyðarmót- töku leggur sig fram við að taka vel á móti einstaklingum í vímuefna- neyslu. Við leggjum okkur fram við að sýna þeim virðingu jafnt á við aðra sjúklingahópa og alltaf í meiri mæli, ég vona að þau finni þær jákvæðu breytingar sem hafa orðið á undanförnum árum í þjónustu til þeirra. Að því sögðu þá má alltaf bæta þjónustuna og við þurfum að fara að endurskoða til dæmis verkjalyfjagjafir einstaklinga í vímuefnaneyslu, fráhvarfsmeðferð og jafnvel hvort það sé grundvöllur fyrir því að hefja meðferð á bráða- móttökunni eins og farið er að gera í sumum fylkjum Bandaríkjanna. Í teymi Neyðarmóttökunnar eru frábærir réttargæslumenn sem sinna þolendum með tilliti til rétt- arkerfisins og styðja þá í kæruferli. Mér finnst lögreglan sinna þessum málum vel og að sama skapi er komið aukið traust á að kerfið vinni með þeim sem þolendum, jafnvel þó að þau séu í vímuefnaneyslu. Hvað dómskerfið varðar þá veit ég ekki hvort það sé nokkur munur á málum eftir einstaklingum. Það er margt sem mætti þróast þar en það er í stöðugri endurskoðun sýnist mér.“ Skaðaminnkun virkar Hvaða skoðun hefur þú á afglæpa- væðingu vímuefnaneyslu í þessu samhengi? „Ég vil hugsa þetta út frá hug- myndafræði skaðaminnkunar og tel að við verðum að mæta ein- staklingi í vímuefnaneyslu þar sem hann er staddur hverju sinni. Skaða minnkunarmódelið er að virka. Við verðum að hafa í huga að ef einstaklingur í vímuefnaneyslu er í aðstæðum sem eru ótryggar, hefur orðið fyrir árás eða of beldi og hringir á sjúkrabíl, þá kemur lög- reglan með á staðinn eða er komin á undan stundum. Við höfum heyrt að þetta hamli því að þolendur leiti sér aðstoðar viðbragðsaðila, það er að segja sjúkraflutningamanna. Af því að það er kannski einhver vímu- efnaneysla á svæðinu. Það er eitt sem má skoða í þessu. Ég held að við vitum alveg að vímuefni eru skaðleg en fyrir þennan hóp sem er í virkri vímuefnaneyslu þá verðum við að mæta fólki þar sem það er statt. Ég vil að við sem samfélag einbeitum okkur frekar að þeim sem fjár- magna og skipuleggja fíkniefnasölu frekar en að refsa veiku fólki með litla skammta sem eru þeirra lífæð. Það er leitt að fólk sem hefur orðið fyrir alvarlegu of beldi geti hræðst það að hringja á lögregluna.“ HÚN FÓR Á VOG EINN DAGINN EN ÚTSKRIFAÐI SIG STRAX ÞEGAR HÚN SÁ HANN. ÞAÐ VAR HÚN SEM ÞURFTI AÐ FARA. EKKI HANN. 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -4 B A 4 2 4 0 B -4 A 6 8 2 4 0 B -4 9 2 C 2 4 0 B -4 7 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.