Fréttablaðið - 18.10.2019, Page 41

Fréttablaðið - 18.10.2019, Page 41
 RÁÐGJAFI á sviði starfsendurhæfingar VIRK Starfsendurhæfingarsjóður í samvinnu við Eflingu Stéttarfélag leitar að ráðgjafa í 100% starf með starfsstöð hjá Eflingu. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Helstu verkefni • Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu • Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum • Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK • Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði • Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar • Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum • Skipulagshæfni og kostnaðarvitund • Góð þekking á vinnumarkaði • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti • Kostur að vera pólskumælandi Ráðgjafar VIRK starfa hjá stéttarfélögum samkvæmt samningi við VIRK. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekanda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélags- legum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Nánari upplýsingar um Eflingu er að finna á efling.is og um VIRK á virk.is. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Upplýsingar veitir: Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Umsóknarfrestur er til 28. október 2019. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins. Innkaupastjóri við Menntaskólann í Kópavogi Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða innkaupastjóra í fullt starf. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Innkaupastjóri sér um innkaup, samninga við birgja, lagerhald og afgreiðslu sérvöru til faghópa. Stærsti hluti starfsins er umsjón með aðföngum til kennslu í matvælaskólanum. Um er að ræða 100% starf og ráðið í starfið sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 29. október. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðríður Eldey Arnardóttir skólameistari í síma 594 4000 Allar umsóknir fara í gegnum starfatorg.is og skal sækja um stöðuna þar. Helstu verkefni og ábyrgð • Gerð samninga við birgja • Pantanir á vörum skv. beiðni frá kennurum • Móttaka vöru og eftirlit með gæðum skv. GÁMES gæðakerfi • Rýni reikninga og pantana í samstarfi við fjármálastjóra • Eftirlit með lagerstöðu • Hreinlæti á lager og kælum • Tiltekt pantana og afhending Hæfnikröfur • Góð almenn tölvufærni er nauðsynleg • Þekking á innkaupakerfi ríkisins kostur • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Menntun • Menntun sem nýtist í starfi og gæti menntun á sviði matvælafræði verið kostur. Menntaskólinn í Kópavogi er lifandi, fjölbreyttur og umfram allt skemmtilegur vinnustaður. Rúmlega 900 hundruð nemendur skólans stunda almennt bóknám á framhaldsskólastigi eða nám í ferðamála- og matvælagreinum. Við skólann starfa 100 hressir starfsmenn á öllum aldri með fjölbreytta menntun og hæfni. Gleði, jákvæðni og góður starfsandi einkennir vinnustaðinn. Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 B -9 5 B 4 2 4 0 B -9 4 7 8 2 4 0 B -9 3 3 C 2 4 0 B -9 2 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.