Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 71

Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 71
Bindin eru sér- hönnuð fyrir þvagleka eru rakadræg og læsa lyktina inni. Þvagleki getur byrjað hvenær sem er en líkurnar fara vaxandi með aldri og of þyngd að sögn Hildar Sól- veigar Ragnarsdóttur, hjúkrunar- fræðings og ljósmóður. „Þvagleka er skipt niður í þrjár tegundir; áreynsluþvagleka, bráðaþvagleka og blandaðan þvagleka. Áreynslu- þvagleki er algengastur og lýsir sér þannig að viðkomandi missir þvag við áreynslu eins og hnerra, hósta eða líkamlega áreynslu,“ segir Hildur. „Helsta ástæða þess er slappir grindarbotnsvöðvar og er með- ganga og fæðing algengasta ástæða slappra grindarbotns- vöðva.“ Hildur segir að tíðni áreynsluþvagleka aukist þegar kona hefur fætt mörg börn en einnig hefur aldur og offita áhrif á þvagleka. Bráðaþvagleki lýsir sér þann- ig, að sögn Hildar, að það mikil og sterk þvaglátsþörf verður að viðkomandi nær ekki að fara á salerni í tæka tíð. „Talað er um að í þessum tilvikum sé blaðran ofvirk eða óróleg. Ekki er alveg vitað um orsökina og er þetta vandamál að finna hjá öllum aldurshópum.“ Þriðja tegundin af þvagleka, blandaður þvagleki, er blanda af áreynslu- og bráðaþvagleka. Þvagleka er hægt að með- höndla á ýmsa vegu. Hildur nefnir að grindarbotnsæfingar styrki vöðvana í grindarbotninum og því ættu allar konur að huga að því að gera grindarbotnsæfingar reglu- lega. Bæði til að fyrirbyggja þvag- leka og meðhöndla hann. Einnig er hægt að meðhöndla þvagleka með blöðrustjórnun, raförvun, lyfjum og aðgerð. Meðhöndlunin fer eftir tegund og alvarleika að sögn Hildar. Þvagleki er mikið feimnismál á meðal kvenna og oft ekki eitt- hvað sem rætt er um í vinkvenna- hópum. „Svo virðist einnig vera að konur eigi erfitt með að bera þetta vandamál upp við heilbrigðis- starfsfólk. Allt of fáar konur ræða um þetta vandamál sem leiðir til þess að þær fá ekki rétta með- ferð,“ segir Hildur og bætir við að þvagleki geti skert lífsgæði verulega. „Þvagleki hefur mis- mikil áhrif á daglegt líf kvenna og andlega líðan. Hjá sumum konum er þvagleki meiri háttar vandamál á meðan aðrar takast á við hann Þvagleki er falið vandamál Þvagleki er nokkuð algengt vandamál og talið er að um 30% kvenna glími við hann á einhverjum tíma. Þvaglekinn getur verið frá því að vera í dropatali til þess að einstaklingurinn rennblotnar. Hildur Sólveig Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur segir þvagleka geta byrjað hvenær sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK með lítilli fyrirhöfn.“ Það getur verið mikil hjálp í því að þvaglekavörur fáist sem víðast og aðgengið sé sem best. „Always Discreet vörurnar eru í svipuðum pakkningum og venjuleg dömu- bindi en eru sérstaklega hönnuð til að taka við þvagi,“ segir Hildur. „Þannig eru þær ekki aðgreindar frá öðrum vörum og ætti aukið aðgengi að hjálpa til við að opna umræðuna um þetta vandamál. Þvaglekavörur geta stuðlað að betri lífsgæðum hjá konum sem glíma við þvagleka.“ Sérhannað fyrir þvagleka Always vörumerkið þekkja f lestir sem leiðandi merki í dömubind- um. Always hefur sett á markað nýja vörulínu Always Discreet sem samanstendur af bindum og buxum sérhönnuðum fyrir konur með þvaglekavandamál. Þessi vörulína er fáanleg í helstu apótekum og stórmörkuðum landsins. Við framleiðslu á vörunum voru þvaglekavandamál skoðuð til hlítar til að koma með vöru sem uppfyllti kröfur og bætti við því sem vantaði í það úrval af vörum sem þegar voru fáanlegar. Helstu kostirnir við Discreet: n Tvöföld hliðarvörn n Lyktin læsist inni n Extra rakadræg miðja breytir vökva í gel n Fyrirferðarminni þvaglekavörur n Gott aðgengi að vörunum Hvað er Always Discreet? n Bindi og buxur sérstaklega hannaðar fyrir konur með þvaglekavandamál n Bindi og buxur með nýja tækni, þorna fyrr og læsta lykt Af hverju Always Discreet? n Stór og vaxandi markaður n Opnari umræða um vandamálið minna tabú n Fólk leitar frekari lausna n Konur þekkja Always og treysta því merki Always hefur sett á markað nýja vöru- línu Always Discreet sem samanstendur af bindum og buxum sérhönnuðum fyrir konur með þvagleka- vandamál. Það er mikilvægt að hafa gott aðgengi að þvaglekavörum. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 B -8 1 F 4 2 4 0 B -8 0 B 8 2 4 0 B -7 F 7 C 2 4 0 B -7 E 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.