Fréttablaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 78
ÉG FANN MIKIÐ FYRIR ÞVÍ
AÐ VERA ÖÐRUVÍSI OG VAR
STRÍTT MIKIÐ FYRSTU
ÁRIN OG STUNDUM LÖGÐ Í
EINELTI. ÉG KOM MEÐ
NESTI AÐ HEIMAN SEM
BÖRNUNUM FANNST
SKRÝTIÐ OG LYKTA
SKRINGILEGA.
Donna Cruz fer með eitt af aðalhlut-verkunum í nýrri íslenskri kvikmynd, Agnesi Joy, og stígur sín fyrstu skref á
hvíta tjaldinu. Hún er nýkomin
frá Busan í Suður-Kóreu, þar sem
my ndin var heimsf r umsý nd .
„Þetta er meiri háttar ævintýri, ég
naut þess að borða góðan asískan
mat og reyndi eins og ég gat að nota
frítíma til að læra undir bókfærslu-
próf,“ segir Donna sem stundar
nám í frumgreinadeild Háskólans
í Reykjavík.
Kvikmyndin Agnes Joy er nýjasta
kvikmynd Silju Hauksdóttur og
fjallar um mæðgurnar Agnesi og
Rannveigu sem eiga í útistöðum
hvor við aðra. Agnes er uppreisnar-
gjörn og krefst þess að fá að fara
eigin leiðir og lætur boð og bönn
sem vind um eyru þjóta.
„Það var skrýtið að sjá mig á hvíta
tjaldinu. Draumur sem ég hélt að
myndi ekki rætast, að minnsta
kosti ekki á Íslandi. Ég held að ég sé
fyrsta asíska konan í aðalhlutverki
í íslenskri kvikmynd. Þegar Gagga
Jónsdóttir framleiðandi hringdi í
mig og bauð mér að koma í áheyrn-
arprufu og sagði mér að um væri að
ræða aðalhlutverk þá trúði ég því
ekki. Ég hugsaði bara, ha? Er þetta
að fara að gerast? En svo lét ég af allri
vantrú og stappaði í mig stálinu. Nú
væri þetta bara fyrir framan mig.
Ég þyrfti bara að gefa allt í þetta,“
segir Donna. „Ég vona að þetta verði
öðrum hvatning og mér finnst mikil-
vægt að Íslendingar af erlendum
uppruna séu meira sýnilegir í kvik-
myndum og sjónvarpi. Við erum hér
og kvikmyndir og sjónvarp segja
sögur úr samfélaginu. Spegla það – ef
þú segir aðeins sögu af afmörkuðum
hópi þá nærðu ekki til jafn margra.
Því meiri fjölbreytileiki, því f leiri
áhorfendur,“ segir Donna ákveðin.
Henni þykir vænt um söguhetj-
una sem hún leikur. Agnesi Joy.
Engin töfralausn til
Stór hluti af lífi Donnu Cruz snerist um trúna, en hún var Vottur
Jehóva til fimmtán ára aldurs. Donna flosnaði upp úr námi vegna
þunglyndis en stundar nú nám í frumgreinadeild Háskólans í
Reykjavík og leikur aðalhlutverk í nýrri íslenskri kvikmynd.
„Ég á sterka minningu af því að sjá snjó í fyrsta skipti á ævinni, ég varð gagntekin af hrifningu,“ segir Donna um það þegar hún kom til Íslands fjögurra ára gömul. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einelti situr lengi í manni og getur
valdið hegðun sem heldur manni
í vítahring. Ég gerði það sem ég
þráði sjálf. Ég vildi nefnilega sjálf fá
afsökunarbeiðni og tækifæri til að
fyrirgefa gerendunum. Sem betur
fer er unnið markvisst gegn einelti í
skólum í dag og börnum hjálpað að
skilja og sjá í hverju það felst.“
Fáar vestrænar fyrirmyndir
Donnu hefur langað til að verða
leikkona frá því hún var lítil og leit
upp til filippseyskra leikkvenna.
Hún hafði ekki margar fyrirmyndir
í Hollywood. „Þegar við fórum til
Filippseyja þá keyptum við alltaf
mikið af kvikmyndum á dvd-
diskum. Það var líka verslun hér á
Íslandi þar sem hægt var að leigja
filippseyskar kvikmyndir sem var
dásamlegt. En fyrirmyndirnar í
Hollywood voru fáar, kannski helst
Lucy Liu, ég hélt mikið upp á hana.
Í dag er þetta svo breytt og það er
hægt að sjá fjölbreyttar kvikmyndir
og sjónvarpsþætti frá öllum heims-
hornum á Netf lix. Heimurinn er
ekki jafn stór og ókunnur. Hann er
opnari og minni í þeim skilningi að
við tengjumst betur,“ segir Donna
og segir íslenskt samfélag einnig
opnara en áður.
„Ísland hefur líka breyst mjög
mikið og í rétta átt. Þótt það sé ekki
að gerast jafn hratt og ég myndi
óska mér.“
Donna bjó ekki yf ir mikilli
reynslu af leiklist þegar hún tók að
sér hlutverkið. „Þannig að þegar ég
fékk hlutverkið varð ég stressuð. Ég
átti að leika á móti reynslumiklum
leikurum. En ég fékk einkatíma hjá
Þorsteini Bachmann og það hjálp-
aði mér mikið, ég er þakklát fyrir að
hafa fengið þá kennslu.“
Hún hefur þó reynslu af því
að koma fram fyrir stóran hóp
fólks. Hún tók þátt í fegurðarsam-
keppninni Ungfrú Ísland og vann
þar titilinn vinsælasta stúlkan. Í
kjölfarið fór hún til Filippseyja og
keppti í Miss Asia Pacific Interna-
tional fyrir hönd Íslands. „Það var
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
„Mér þykir mjög vænt um aðal-
söguhetjuna, ég man að þegar ég
var ung og týnd þá bjó ég ekki yfir
sama hugrekki og Agnes Joy sem fer
á móti fólki til þess að elta draum-
inn. Hún er djörf og skemmtileg og
ákveðin,“ segir Donna.
Kvikmyndin fjallar um Rann-
veigu, sem Katla Margrét leikur.
Hún hefur að undanförnu upplifað
kulnun í bæði starfi og einkalífi.
Rannveig á í stöðugum útistöðum
við dóttur sína Agnesi sem Donna
Cruz leikur. Hún er uppreisnar-
gjörn og krefst þess að fá að fara
sínar eigin leiðir þrátt fyrir boð,
bönn og móðurlegar ráðleggingar.
En með aðalhlutverk auk hennar
og Kötlu fara þeir Þorsteinn Bach-
mann, Björn Hlynur Haraldsson og
rapparinn Kristinn Óli Haraldsson,
betur þekktur sem Króli.
Úti í snjónum á nærfötunum
Donna er 25 ára gömul og f luttist
hingað til lands frá Filippseyjum
með foreldrum sínum þegar hún
var fjögurra ára gömul. Það var í
janúarmánuði árið 1999 og landið
snævi þakið.
„Ég á sterka minningu af því að sjá
snjó í fyrsta skipti á ævinni, ég varð
gagntekin af hrifningu og fylltist
eins konar lotningu. Það er til mynd
af mér úti í snjónum á nærfötunum í
gúmmístígvélum að kynnast þessu
framandi fyrirbæri. Ég trúði ekki
mömmu sem sagði mér að snjórinn
væri kaldur,“ segir Donna.
Donna flutti f ljótlega í Fellahverf-
ið með foreldrum sínum, Miriam
og Romeo, og tveimur yngri systk-
inum. „Við erum afskaplega náin
systkini. Systir mín er einu ári yngri,
bróðir minn þremur árum yngri.
Amma hafði f lutt nokkrum árum
áður til Íslands og vann í þvotta-
húsi. Nú búa öll börnin hennar og
barnabörn hér.
Ég byrjaði í grunnskóla, Fella-
skóla. Þá var ég ein af fáum börnum
í skólanum af erlendum uppruna.
Við vorum held ég tvær sem vorum
asískar í árgangnum. Nú skilst mér
að meira en helmingur nemenda
skólans sé af erlendum uppruna.
Ég fann mikið fyrir því að vera
öðruvísi og var strítt mikið fyrstu
árin og stundum lögð í einelti. Ég
kom með nesti að heiman sem
börnunum fannst skrýtið og lykta
skringilega. Ég kom oft með sér-
stakan filippseyskan kjúklinga-
rétt með grænmeti, chicken adobo.
En bekkjarsystkini mín voru hins
vegar hrifin af því þegar ég kom
með Lumbia, sem eru vorrúllur,“
segir hún og hlær og segir að svo
virðist sem þau hafi helst kannast
við þann rétt.
Donna segist hafa fundið til van-
líðanar þegar hún var lítil vegna
stríðninnar. Vanlíðanin hafi því
miður fengið útrás með neikvæðum
hætti þegar hún varð eldri. „Mér
þykir leitt að segja frá því en ég
lagði aðra stelpu í einelti nokkrum
árum seinna. Ég vissi ekki að ég væri
að gera það og áttaði mig ekki á því
fyrr en ég var orðin átján ára gömul
og sat í uppeldisfræðitíma í mennta-
skóla. Ég sá skýrt samhengi á milli
eineltisins sem ég varð fyrir og þess
hvernig ég hagaði mér seinna. En
það er engin afsökun og um tvítugt
fann ég hana og bað hana afsökun-
ar. Hún sagðist vera búin að gleyma
sumu af þessi. En það hafði ég ekki
gert. Ég vildi ekki að hún tæki með
sér þessa vanlíðan eins og ég gerði. Framhald á síðu 36
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
9
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
B
-6
4
5
4
2
4
0
B
-6
3
1
8
2
4
0
B
-6
1
D
C
2
4
0
B
-6
0
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K