Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 18.10.2019, Qupperneq 80
erfiðara en að taka þátt í keppninni hér heima. Þau bjuggust við því að af því að ég kom frá Íslandi væri ég hvít. Ég er íslensk, þó að ég hafi ekki hefðbundið íslenskt útlit. Ég elska Filippseyjar en þau eru á eftir í þess- um efnum. Ég stunda mikla hreyf- ingu, fer út að hlaupa, hef hlaupið Reykjavíkurmaraþon þrjú ár í röð og lyfti lóðum. En skipuleggjendur fegurðarsamkeppninnar báðu mig að draga úr æfingum þar svo ég yrði ekki of mössuð á lokakvöldinu. Ég sagði bara nei! Enda bara gamaldags vitleysa,“ segir Donna og hlær. Erfitt að hætta í Vottum Jehóva Fjölskylda Donnu er mjög trúuð. Amma hennar og mamma eru í Vottum Jehóva. Donna tók þátt í starfinu til fimmtán ára aldurs og gekk á milli húsa á laugardögum og predikaði. „Ég ólst upp sem Vottur Jehóva og var virk í söfnuðinum frá því að ég var sex ára til fimmtán ára. Það var messa þrisvar í viku. Á laugar- dögum gengum við á milli húsa og predikuðum og aðalmessan var á sunnudögum. Þegar ég varð fimm- tán ára gömul fann ég að ég gat ekki tekið þátt í þessu lengur. Það var svo margt sem ég gat ekki verið sam- mála af öllu hjarta. Ég ákvað því að hætta og gat það af því ég var ekki skírð inn í söfnuðinn. Amma varð ekki ánægð og talaði ekki við mig í marga mánuði. Það var ofsalega erf- itt því við erum mjög nánar, reynd- ar ólst ég mikið til upp hjá henni. Að lokum tókst mér að ná til hennar. Ég sagði við hana: Guð sér allt og veit hvað er í hjarta mínu. Hann veit að ég vil ekki vera hér. Hún tók þessum rökum og skildi þau og við gátum sem betur fer náð aftur saman. Hún er mér mjög mikilvæg, er stolt af mér og kom með kærastanum mínum á frumsýninguna.“ Kærasti Donnu er Ari Steinn Skarphéðinsson. „Við keyptum okkur íbúð í Bryggjuhverfinu á síðasta ári og líkar vel þar. Og við fengum okkur kött. Ég þurfti svo- lítið að sannfæra hann um að það „Það var messa þrisvar í viku. Á laugardögum gengum við á milli húsa og predikuðum og aðalmessan var á sunnudögum,“ segir Donna um árin í Vottum Jehóva. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fjölskyldan hefur búið hér frá því stuttu fyrir síðustu aldamót. Donna og systkini hennar með foreldrum sínum, Romeo og Miriam. Systkinin voru og eru mjög náín. FÁUM SEM GLÍMA VIÐ ALVARLEGT ÞUNGLYNDI TEKST AÐ KLÁRA MENNTASKÓLA OG ÞAÐ AÐ GETA ÞAÐ EKKI EYKUR Á VANDANN. væri góð hugmynd því ég er með ofnæmi,“ segir Donna og hlær. Alvarlegt þunglyndi Donna horfir björtum augum til framtíðar og segir námið sem hún stundar í frumgreinadeild Háskól- ans í Reykjavík hafa haft góð áhrif á sjálfsmyndina. „Ég hætti í mennta- skóla þegar ég var um það bil átján ára gömul. Ég var að glíma við svo mikið þunglyndi að ég réð ekki við námið. Í HR fæ ég stuðning og sé fram á að geta klárað skólann. Nokkuð sem ég trúði ekki áður að ég gæti. Ég fór ekki að takast á við þunglyndið að ráði fyrr en fyrir fáeinum árum,“ segir hún. Þunglyndið var alvarlegt. „Fáum sem glíma við alvarlegt þunglyndi tekst að klára menntaskóla og það að geta það ekki eykur á vandann. Þegar ég var sautján ára gerði ég til- raun til sjálfsvígs. Mamma sendi mig þá til Filippseyja, henni fannst góð hugmynd að láta mig skipta um umhverfi. Það var í raun alveg rétt hjá henni. Ég var þar í þrjá mánuði og hætti að hugsa um þetta smám saman. Ég vann mikið. Svo þegar ég kom aftur til Íslands kynntist ég fyrrverandi kærastanum mínum og varð upptekin af því. Það má segja að þunglyndið hafi legið í dvala. En það kemur alltaf aftur og í sumar leitaði ég mér fyrst sálfræðihjálpar. Það er mjög erfitt að byrja í skóla eftir að hafa verið á vinnumarkaði í sjö ár. En í skólanum eru allir á sama stað, ég á til dæmis vinkonu í bekknum sem er 20 árum eldri. Og mér finnst svo dýrmætt að fá að hitta fólk sem gefst ekki upp,“ segir Donna og segist hafa áttað sig á mikilvægi þess að glíma við einn dag í einu en hafa á sama tíma góða trú á því að allt fari vel. „Ég veit að það er engin töfralausn til, ég þarf bara að reyna að lifa góðu lífi og gera hluti sem ég veit að styrkja mig. Hluti af því er að fara í skóla. Láta drauma sína rætast eins og ég gerði með því að leika í kvikmynd. Þetta er krefjandi en hefur góð áhrif,“ segir Donna. 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 B -7 8 1 4 2 4 0 B -7 6 D 8 2 4 0 B -7 5 9 C 2 4 0 B -7 4 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.