Fréttablaðið - 18.10.2019, Síða 90

Fréttablaðið - 18.10.2019, Síða 90
Elsta verkið á sýningu Ólafar Nordal á Kjar-valsstöðum er frá 1992. Það heitir Í rökkrinu og er eftirlíking af útskorn-um bitum en úr nútíma- legu efni. Valþjófsstaðahurðin blas- ir við þaðan, hugmyndin sótt í hina einu sönnu en þriðja hringnum bætt við ofan við hina. Ólöf K. Sigurðardóttir sýningar- stjóri tekur á móti mér á Kjarvals- stöðum. „Þetta er í þriðja sinn á jafnmörgum haustum sem við setj- um upp yfirlitssýningu á verkum starfandi listamanns, sem þegar á að baki umtalsverðan feril og ber sterk höfundareinkenni. Fyrst var það Anna Líndal, svo Haraldur Jóns- son og nú Ólöf Nordal. Við lítum á hverja sýningu og sýningarskrár þeirra sem innlegg í framtíðar- rannsóknir á íslenskri samtímalist. Í þeim eru greinar eftir ólíka fræði- menn auk viðtals við listamann- inn sjálfan. Í sýningarskrá Ólafar Nordal er líka hennar útfærsla á þjóðsögum eða vitneskju sem hefur legið hjá þjóðinni, hún veitir skemmtilega sýn á verkin.“ Meðal verka á sýningunni eru myndir sem Ólöf Nordal hefur tekið af höfuðafsteypum sem varðveittar eru á söfnum erlendis, f lestar eru á mannfræðisafni í París en ein á Kan- aríeyjum. „Þetta eru allt afsteypur af nafngreindu fólki, Íslendingar þóttu áhugaverðir á nítjándu öld fyrir að vera hrein þjóð á norðlægum slóðum. Spurning hvort við viljum samsama okkur því í dag,“ segir sýningarstjórinn og kímir. Á ferlinum hefur Ólöf Nordal leitað fanga í ýmsum söfnum, bæði þeim sem geyma náttúru- og menningarminjar en einnig gagna- söfnum eins og því sem varðveitt er af Háskóla Íslands og var byggt upp af líkamsmannfræðingi sem vann við að leita að uppruna Íslendinga. Þetta nýtir Ólöf í áhrifamikið ljós- myndaverk og  sýningarstjórinn bendir á skjá þar sem þulur Ríkis- útvarpsins les gamla frétt um mæl- ingarnar. Nýjustu verkin á sýningunni Úngl eru  torf hleðsla, meira en mannhæðarhár móhraukur og myndasería af forystufé og nú er Ólöf Nordal tekin við leiðsögninni. „Þegar forystufé er í fjárhúsi þá stendur það svolítið upp úr og horf- ir yfir hópinn. Það er óblandað öðru fé og er talið hafa varðveist frá Að fortíð skal hyggja … Ólöf Nordal myndlistarmaður sækir í íslenska þjóðmenningu og sagnir í listsköpun sem hún beinir fram á við í ljósi uppsafnaðr- ar þekkingar. Sýningin Úngl er opnuð á Kjarvalsstöðum í dag. Ólöf Nordal myndlistarkona og Ólöf K. Sigurðardóttir sýningarstjóri hafa unnið saman að uppsetningu sýningarinnar Úngl. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI TÓNLIST Sinfóníutónleikar Verk eftir Brahms og Tsjajkovskí Einleikari: Stephen Hough. Stjórnandi: Han-Na Chang. Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 10. október Brahms mun hafa verið leiðinda- karl. Hann var geðvondur og almennt óþægilegur í lund; sérvitur piparsveinn allt sitt líf. Þegar hann var að vaxa úr grasi var fjölskyldan hans mjög fátæk, svo Brahms litli þurfti að koma með einhverjar tekjur til heimilisins. Hann var því sendur til að spila á píanó á krám og hóruhúsum, og þar sá hann ýmis- legt í samskiptum kynjanna sem hafði áhrif á hann ævilangt. Fyrir bragðið er ákveðinn ein- manaleiki í tónlist hans, ekki síst í undurfögrum en angurværum hæga kaflanum í öðrum píanókon- sertinum. Hann var á dagskránni á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á f immtudagskvöldið. Stephen Hough (borið fram Hoff) var einleikarinn. Hough er frábær píanóleikari og bæði umræddur kafli, sem og hinir þrír, voru lýta- lausir tæknilega séð. Tæknilega fullkomið en kalt Slík frammistaða er ekkert smá- ræðis afrek, því þessi konsert er Everestfjall píanóleikaranna. Ein- leiksparturinn samanstendur af viðbjóðslega erfiðum stökkum upp og niður hljómborðið, ógnar- hröðum þríundahlaupum og alls- konar kúnstum. Hough spilaði þó eins og hann hefði ekkert fyrir því. Þetta eru góðu fréttirnar. Minna gaman var að píanóleikarinn spil- aði nokkuð kuldalega; tónlistin er þrungin ástríðum, en þær skiluðu sér ekki fyllilega á tónleikunum. Kannski hefur Hough leikið verkið aðeins of oft. Hann minnti dálítið á afgreiðslumann í matvöruverslun sem er renna matvörum í gegnum skanna í milljónasta skipti. Það var eins og tónlistin kæmi honum ekki beinlínis við; hún væri bara eitt- hvað sem hann gerði. Hefði mátt spila betur Verra var að hljómsveitin spilaði ekki vel í fyrsta kaf lanum. Við- kvæmt hornsóló í byrjun klúðraðist gersamlega, og á öðrum stað spilaði sveit tréblásara verulega ómark- visst. Þetta kann að hljóma eins og sparðatíningur, en það er það ekki; svona smáatriði skipta máli. Hápunkturinn í leik hljómsveitar- innar var sellósóló sem Sigurgeir Agnarsson lék í þriðja kaf lanum, það var reglulega fallegt. Verstu fréttirnar eru hitt verkið á dagskránni, sjötta sinfónían eftir Tsjajkovskí. Túlkun hljóm- sveitarstjórans, Han-Na Chang, einkenndist af yfirborðsmennsku, að mati undirritaðs. Hún baðaði vissulega út öllum öngum eins og teiknimyndafígúra, en það skilaði sér ekki í listrænni upplifun. Hljóm- sveitin spilaði þó mjög vel tækni- lega séð, en það var ekki nóg. Hvorki hraði hlutinn í fyrsta kaflanum, né þriðji kaflinn í heild, komu vel út. Tónlistin var svo yfirspennt og hröð að útkoman var ruddaskapur sem pínlegt var að upplifa. Mann lang- aði mest til að halda fyrir eyrun. Hægu hlutar sinfóníunnar voru líka f latneskjulegir og litlausir; valskenndi annar kaflinn, í fimm- skiptum takti, náði aldrei neinu risi, og sorglegur lokakaflinn var bara dauf legt andvarp eftir yfirkeyrt, manískt brjálæðið þar á undan. Sinfónían eftir Tsjajkovskí er svo sannarlega stórkostlegt tónverk, en það sem hér heyrðist var ekki sann- færandi og olli miklu vonbrigðum. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Tæknilega fullkominn, en fremur kuldalegur einleikur, og hljóm- sveitin hefur átt betri daga. Everest kom manni ekki við Það var eins og tónlistin kæmi honum ekki beinlínis við, segir gagnrýnandi. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is landnámi. Sú sögn er líka til að það sé komið af hulduhrúti í Þingeyjar- sýslu í árdaga. Forystufé hafði mikið gildi þegar vetrarbeit var notuð, það fann á sér veðrabreytingar og virtist hafa ófreskigáfu sem bjargaði bæði fé og mönnum. En kindurnar voru misjaf nlega samv innu f úsar í myndatökunni. Þær þurftu að vera með framlappirnar uppi á palli og það voru alls ekki allar sem létu það yfir sig ganga en aðrar gerðu það eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þegar ég kom í fjárhúsið á einum bæ var ær sem horfði á mig eins og hún vildi segja: Loksins ertu komin, ég er búin að bíða eftir þér lengi. Hún fór beint upp í króna, steig með fram- fæturna á pallinn og var mynduð. Algerlega sallaróleg en nokkrar í sama fjárhúsi þýddust mig ekki. Það var bara stríð.“ Þá snúum við okkur að mónum sem Ólöf hefur hlaðið upp í holan turn. „Mórinn er dæmi um efni sem tíminn liggur í. Hann er sex til tíu þúsund ára gamlar jurtaleifar og var notaður sem eldiviður á Íslandi því við höfðum hvorki kol né skóg,“ útskýrir Ólöf. „Ég gróf þetta sjálf og þurrkaði og það var voða auðvelt að hlaða þennan hrauk. En mór er eitthvað sem mann langar ekki að taka úr jörðu. Þessi var í barði sem skagaði út í f læðarmál og hækkandi sjórinn var að vinna á honum.“ Tvíhöfða lömb, uppstoppuð, eru bak við gler. „Lömbin fædd- ust svona en fá táknmynd í sam- tímanum því þau horfa bæði aftur til bændasamfélagsins og fram til genabreytinga,“ útskýrir listakonan og segir sýninguna snúast um brot. „Þessi brot gefa okkur færi á að horfa aftur í tímann, túlka okkar tíma og gefa rými fyrir ímyndunar- af lið. Þetta á við allar sögulegar leifar. Þær segja okkur svo margt því hver tími túlkar brotin á sinn hátt. Ég hef áhuga á því hvernig við höfum byggt upp okkar sjálfsmynd sem þjóð og hvað við höfum valið sem áhugavert til þeirrar uppbygg- ingar.“ 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 9 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :5 9 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 B -3 2 F 4 2 4 0 B -3 1 B 8 2 4 0 B -3 0 7 C 2 4 0 B -2 F 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.