Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Page 4

Skessuhorn - 07.01.2015, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudög- um. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáaug- lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.867 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Tinna Ósk Grímarsdóttir (vefauglýsingar) tinna@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Gengur bara betur næst Gleðilegt ár kæru lesendur nær og fjær, til sjávar og sveita. Það færir mér sanna gleði að öll höfum við komist í gegnum áramótin, allavega þau sem þetta lesa. Áramót eru jú stund þegar ástæða er til að gleðjast. Einkum yfir að hafa nú náð að bæta enn einu árinu í safnið og fengið tækifæri til að taka fagnandi á móti því sem að höndum ber. Reyndar held ég að klukkutíminn fyrir áramót hafi verið blendinn fyrir suma. Meðan aðrir glöddust óum- ræðanlega mikið. Er ég að sjálfsögðu að tala um áramótaskaupið og afleið- ingar þess fyrir hina sundurtættu þjóð sem aldrei mun verða á eitt sátt þeg- ar stjórnmál eru annars vegar. Að mínu viti eru gæði áramótaskaupa svona almennt í nokkurn veginn réttu hlutfalli við stöðu þjóðarsálarinnar hverju sinni. Ef andrúmið er lask- að, er ekki við því að búast að menn veltist um af hlátri þótt einhverjir leik- arar og handritshöfundar í Reykjavík keppist við að flytja gamanmál um gjörðir stjórnmálamanna. Enda er slíkt verkefni vandmeðfarið því ef stjórn- mál þykja 364 daga ársins almennt vera leiðinleg, af hverju í ósköpunum erum við þá að borga fyrir að verja síðustu mínútum ársins í okkar fínasta pússi við að reyna að þykja þau skemmtileg? Ég fæ það alls ekki til að koma heim og saman að allt í einu sé hægt að búa til skemmtilefni úr því sem alla hina daga ársins hefur þótt í besta falli drepleiðinlegt. En svona getum við verið, ár eftir ár. Svolítið eins og við séum haldin ólæknandi sjálfspíning- arhvöt. Hvernig er til dæmis hægt að búast við því að listamenn og þátt- argerðarfólk í Reykjavík geti verið skemmtilegt eða málefnalegt þegar öll árin frá hruni er búið að naga burtu meira og minna alla listamannastyrkina og opinberu sposlurnar sem þetta fólk fékk í gróðærinu? Lét einhver detta sér til hugar að þetta fólk þakkaði stjórnmálamönnum fyrir með því að láta þá líta út fyrir að vera skemmtilega? Nú eða gáfulega? Nei, ég held að það væri það síðasta sem þessu ágæta fólki dytti í hug. Þvert á móti er gert eins lítið úr sitjandi stjórnmálamönnum og hægt er í áramóta skaupum nú sem fyrr. Stjórnmálamenn verða því áfram, svo lengi sem RUV fær að lifa í nú- verandi mynd, smáðir og gerðir að fíflum frammi fyrir alþjóð á sjálfu gaml- árskvöldi. Reyndar getum við aumur pöpullinn sjálfum okkur um kennt. Við kjósum jú þessa stjórnmálamenn yfir okkur kosningar eftir kosning- ar, þeir kjósa síðan að láta RUV lifa áfram sínu erfiða lífi og því er þetta kannski bara mátuleg refsing þegar upp er staðið. En aftur að hinni sönnu gleðistund; Skaupinu. Vís maður tók það saman að það hafi samanstaðið af 43 atriðum. Af þeim taldi hann 20 óviðeigandi, ófyndin eða rætin. Sum voru allt þetta. Það jákvæða við það var að þá voru eftir 23 atriði sem hann taldi sýningarhæf og gætu með góðum vilja flokk- ast sem fjölskylduvænt skemmtiefni. Auðvitað er enginn lifandi maður svo húmorslaus að ekki hafi mátt finna nokkur fyndin atriði af þessum 23. Pers- ónulega fannst mér t.d. hægt að brosa að atriðinu um jólamáltíðina þar sem amman fékk smáskilaboð í símann innan úr eldhúsi um að nú mætti hún setjast til borðs. Þetta var einhvern veginn svo raunsönn lýsing á hlutverki þessara smágerðu tölva, sem flestir kalla síma, í nútímasamfélagi. Þá var meinfyndið atriðið þar sem Halli Melló missti af hinni frægu morgunbæn í Ríkisútvarpinu þar sem hann var í ræktinni eldsnemma að morgni. Þetta voru svona dæmi þar sem þáttargerðarfólkið gleymdi í augnablik ætlunar- verki sínu að segja misskemmtilegar staðreyndir um stjórnmálamenn. En það kemur aftur gamlárskvöld og örugglega verður aftur áramóta- skaup. Nú er bara spurningin hvort stjórnmálamenn verði áfram góðir við RUV og leyfi stofnuninni að kaupa svona þrjátíu milljóna króna þátt einu sinni enn í þeirri von að betur takist til næst. Það er allt í lagi að halda í von- ina, jú og svo er það hvort sem er almenningur sem borgar! Magnús Magnússon. Meðal verka Kolfinnu Jóhannes- dóttur sveitarstjóra í Borgarbyggð síðustu dagana hefur verið að kveðja og heilsa embættismönnum. Um það leyti sem Stefán Skarp- héðinsson sýslumaður og lögreglu- stjóri var að láta af störfum um há- degisbil á gamlársdag var Kolfinna mætt á sýsluskrifstofuna í Borgar- nesi til að þakka Stefáni störf í þágu sveitarfélagsins og Borgfirðinga í hartnær tuttugu ár. Stefán Skarp- héðinsson tók við starfi sýslumanns í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 1. mars 1994. Hann kom í Borgar- fjörð frá Patreksfirði og þjónaði því svæðinu í liðlega tuttugu ár. Stef- án lét af stöfum nú um áramótin bæði sökum aldurs og einnig sam- hliða breytingum á sýslumanns- og lögreglustjóraumdæmum í land- inu sem tóku gildi um áramótin. Á föstudag var Kolfinna sveitarstjóri síðan mætt aftur á sömu skrifstofu sem nú er skrifstofa Lögreglustjór- ans á Vesturlandi. Í það starf var ráðinn Úlfar Lúðvíksson sem kem- ur til starfa frá Vestfjörðum þar sem hann var sýslumaður og lögreglu- stjóri. Úlfar er ekki alveg óþekkt- ur Borgfirðingum né að hann þekki ekki til svæðisins. Hann var fulltrúi hjá sýslumanninum í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu í rúmt ár frá 1990 fram á 1991 og jafnframt fulltrúi setts sýslumanns í Dalasýslu um tíma. þá Eins og kunnugt er mun aðset- ur lögreglustjórans á Vesturlandi verða í Borgarnesi. Þetta komst á hreint í desember, eftir að reglu- gerð og lög um skipan lögreglu- stjóra- og sýslumannsembætta í landinu tóku gildi. Úlfar Lúðvíks- son fyrrum sýslumaður á Patreks- firði hefur tekið við embætti lög- reglustjórans á Vesturlandi. Jón Haukur Hauksson lögmaður verð- ur fulltrúi lögreglustjórans og mun ennfremur hafa aðstöðu á aðallög- reglustöðinni í Borgarnesi auk þess sem hann verður með aðstöðu á lögreglustöðinni á Akranesi þar sem rannsóknadeild lögreglunnar á Vesturlandi er til húsa. Lögreglan á Vesturlandi varð til um áramótin þegar lögreglulið- in á Akranesi, Borgarfirði og Döl- um og á Snæfellsnesi sameinuðust í eitt öflugt 35 manna lögreglulið. Tekin var upp sameiginleg sólar- hringsvakt á Akranesi og í Borgar- nesi og munu fjórir lögreglumenn að lágmarki ganga sólarhringsvakt- ir í senn. Vaktir á Snæfellsnesi og í Búðardal munu lítið breytast til að byrja með. Yfirlögregluþjónar Lögreglunnar á Vesturlandi verða þrír. Almenna löggæslan mun heyra undir Jón Sigurð Ólason. Ólafur Guðmundsson verður með rann- sóknadeildina og úrvinnslu lög- gæslumyndavéla og Theodór Kr. Þórðarson verður með stoðdeild, skrifstofu og fjölmiðlamál á sinni könnu. mm Bæjarráð og bæjarstjórn Akranes- kaupstaðar samþykktu á fundum sínum skömmu fyrir hátíðarnar að hefja viðræður við Faxaflóahafn- ir um fyrirhugaða framkvæmd við landfyllingar sunnan Akraneshafn- ar. Á fundunum var starfshópi um framtíð Breiðarsvæðis og skipu- lags- og umhverfisráði þakkaðar umsagnir vegna framkvæmdarinn- ar og Regínu Ásvaldsdóttur bæjar- stjóra falið að hefja viðræðurnar af hálfu Akraneskaupstaðar. Eins og komið hefur fram í Skessuhorni er umrædd landfylling vegna mikilla uppbyggingaráforma HB Granda á Akranesi. Regína Ásvaldsdóttir bæj- arstjóri sagði í samtali við Skessu- horn að forsvarsmenn fyrirtækisins hefðu mikinn hug á að auka starf- semi og bæta aðstöðu á Akranesi. Gísli Gíslason hafnarstjóri telur mikilvægt að stækkun hafnarsvæð- isins á Akranesi verði samstarfs- verkefni Akraneskaupstaðar, Faxa- flóahafna og HB Granda. Regína bæjarstjóri segir að með- al annars séu markmið í áformum HB Grandamanna að reisa frysti- geymslu á stækkuðu athafnasvæði á Akranesi. Einnig að eiga mögu- leika á stækkun húsnæðis fyrirtæk- isins, einkum vinnsluhúsanna. Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóa- hafna telur líklegt að áformað verk- efni og breytt skipulag muni kalla á umhverfismat. Bæjaryfirvöld hafa lagt á það áherslu að skoðað verði sérstaklega áhrif breytinganna á Langasand. Umrædd landfylling er heldur minni en gert er ráð fyr- ir í gildandi deiliskipulagi. Áætlað er að hún verði 60-70 þúsund fer- metrar og muni kosta um eða yfir tvo milljarða króna. Auk áhuga HB Granda á stækk- un á athafnasvæði með landfyll- ingum hefur fyrirtækið sótt um leyfi til að stækka verksmiðjuhús- næði vegna fiskþurrkunar í Lauga- fiski. HB Grandi hefur aukið mikið starfsemi á Akranesi síðustu miss- erin sem og fjárfest í sjávarútvegs- fyrirtækum, svo sem með kaupum á hrognavinnslu Vignis G Jónssonar og Norðanfiski. Einkum er það bol- fisksvinnsla fyrirtækisins sem hef- ur aukist og starfsfólki verið fjölg- að um tugi. Bolfiskur til vinnslu á Akranesi hefur aukist á nokkrum árum frá því að vera 2000 tonn á ári upp í að verða um 6.500 á nýliðnu ári. Regína Ásvaldsdóttir segir bæj- aryfirvöld mjög jákvæð gagnvart áformum HB Granda. „Við höf- um kallað eftir því að fjölga störf- um í sjávarútvegi á Akranesi. Einn- ig hafa ýmis smærri fyrirtæki í bæn- um sérhæft sig í þjónustu við at- vinnugreinina,“ segir Regína. þá Nýr lögreglustjóri boðinn velkominn til starfa. Kolfinna Jóhannesdóttir sveitar- stjóri Borgarbyggðar mætti á lögreglustöðina í Borgarnesi síðastliðinn föstudag og færði Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra blómvönd, bauð hann velkominn á svæðið og óskaði honum velfarnaðar í starfi. Ljósm. tkþ. Skipan lögreglumála á Vesturlandi er að skýrast Kolfinna Jóhannesdóttir sveitar- stjóri í Borgarbyggð kveður Stefán Skarphéðinsson sýslumann um hádegi á gamlársdag. Ljósm. je. Hættir eftir tuttugu ár sem sýslumaður í Borgarfirði Viðræður að hefjast við Faxaflóahafnir um stækkun athafnasvæðis við Akraneshöfn Þannig líta grunnhugmyndirnar út á stækkun hafnarsvæðisins.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.