Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Síða 6

Skessuhorn - 07.01.2015, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 Minjaskráning í Einkunnum BORGARBYGGÐ: Umsjónar- nefnd fólkvangsins Einkunna hélt sinn fimmtugasta fund 22. des- ember sl. Þar var lagt fram verð- tilboð frá Fornleifastofnun Ís- lands í fornleifaskráningu innan fólkvangsins. Fornleifastofnun vann skráningu fyrir valin svæði í Borgarbyggð árið 2009 og í þeirri skýrslu má finna nokkrar minjar í nágrenni fólkvangsins en á þeim tíma var ekki unnin sérstök skrán- ing fyrir svæðið í heild. Verkið er talið mun umfangsmeira en áætl- að var í fyrstu og er nauðsynlegt til að hægt sé að ljúka deiliskipu- lagi fyrir fólkvanginn. Á fundin- um samþykkti umsjónarnefndin að taka tilboðinu og fer verkið af stað með vorinu. –grþ Náttúrupassinn kynntur BORGARNES: Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, mun fara víða um landið næstu daga til að kynna frumvarp um náttúrupassa á opnum fundum. Ragnheiður Elín mun heimsækja Borgarnes þriðjudaginn 13. janúar og verð- ur fundurinn á Landnámssetr- inu kl. 16:30. Fundarstjóri verð- ur Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst. Yfirskriftin á fundunum er „Af hverju nátt- úrupassi?“ Á þeim fundi mun Ragnheiður Elín fara yfir helstu atriði varðandi náttúrupassann, kynna hugmyndafræðina og praktísk útfærsluatriði, svo sem verð, gildistíma og þess háttar. Svo taka við líflegar umræður og skoðanaskipti. Fundirnir eru öll- um opnir og er fólk hvatt til að mæta. –grþ Þjónustusamn- ingi sagt upp DALABYGGÐ: Í nóvember síðastliðnum tilkynnti Vinnu- málastofnun um uppsögn þjón- ustusamnings við Dalabyggð, varðandi móttöku umsókna um atvinnuleysistryggingar. Upp- sögnin tók gildi 1. janúar síðast- liðinn. Umsækjendur geta nú einungis staðfest umsóknir sínar með rafrænum hætti. Þá óskaði stofnunin eftir að Dalabyggð útvegaði aðgengi að fundarsal þar sem ráðgjafar stofnunar- innar geti hitt atvinnuleitend- ur endrum og sinnum. Þetta kemur fram í fundargerð sveit- arstjórnar frá 16. desember sl. Sveitarstjórn Dalabyggðar ótt- ast að þjónusta við umsækjend- ur versni við breytinguna og geldur varhug við því að gert sé ráð fyrir að allir hafi aðgang að tölvu. Dalabyggð mun eftir sem áður ljá ráðgjöfum Vinnumála- stofnunar aðgengi að fundarsal endrum og sinnum. –grþ Afturelding fékk styrk frá Orkubúinu REYKHÓLAR: Við úthlut- un samfélagsstyrkja Orkubús Vestfjarða 2014, sem tilkynnt var um skömmu fyrir áramót- in, fékk Ungmennafélagið Aft- urelding í Reykhólahreppi kr. 100.000 til stuðnings við barna- og unglingastarf félagsins. Alls bárust 58 umsóknir og voru veittir 19 styrkir að þessu sinni, samtals að fjárhæð 3,5 milljónir króna. Frá þessu er greint á vef Reykhólahrepps. –þá Tvær í úrvalslið STYKK: Í hádeginu í gær voru veitt verðlaun fyrir bestu frammi- stöðu í Domino’s deildum karla og kvenna á fyrri hluta keppnistíma- bilsins. Í úrvalslið kvennadeildar- innar voru valdar tvær úr topp- liði Snæfells, þær Hildur Sigurð- ardóttir og Gunnhildur Gunnars- dóttir. Aðrar sem valdar voru í liðið eru Sara Rún Hinriksdóttir Kefla- vík, Ragna Margrét Brynjarsdótt- ir Val og Lele Hardy Haukum, sem jafnframt var valin besti leik- maður deildarinnar. Besti þjálfar- inn í kvennadeildinni var valinn Ingi Þór Steinþórsson Snæfelli. Dugnaðarforkurinn í kvennadeild- inni var Ragnheiður Benónýsdóttir Val. Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómarinn í báð- um deildum. KR átti þrjá leikmenn í úrvalsliði karla og að auki besta þjálfarann, Finn Frey Stefánsson. Besti leikmaðurinn var: Michael Craion KR og dugnaðarforkurinn Sveinbjörn Claessen ÍR. þá Vilja flýta gerð Guðlaugar AKRANES: Áhugafólk á Akranesi um sjóböð, sjósund og almenna eflingu Langasands sem útivistar- svæði hafa skorað á bæjaryfirvöld á Akranesi að flýta fyrirhuguðum framkvæmdum við heitan pott á Jaðarsbökkum við Aggapall. Í vik- unni fyrir jól var Regínu Ásvalds- dóttur bæjarstjóra á Akranesi af- hentur undirskriftalisti vegna Guð- laugar, sem er nafnið á heita pott- inum sem áformað er að staðsett- ur verði við Langasand. Hátt í 200 manns höfðu skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda þar sem þau voru hvött til að sjá til þess að pottur- inn verði kominn á sinn stað vorið 2015. Á vef Akraneskaupstaðar er sagt frá því að vel hafi verið tekið á móti áskoruninni og skipaður hafi verið starfshópur um framkvæmd- ina á Langasandi sem skilar skýrslu til bæjarráðs um málið síðar í þess- um mánuði. Að sögn Regínu vilja bæjaryfirvöld vanda sig við hönn- un og gerð laugarinnar þar sem heit laug á þessum stað geti haft mikið aðdráttarafl fyrir bæjarbúa og ferðamenn. –grþ Afli skipa HB Granda var 152.500 tonn á nýliðnu ári og aflaverðmæt- ið var tæpir 15,2 milljarðar króna. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að þetta sé nokkur samdráttur frá árinu á undan en þá var aflinn rúmlega 188.200 tonn að verðmæti rúmlega 16,8 milljarða króna. Skýr- inganna á minni afla og lægra afla- verðmæti er fyrst og fremst að leita í samdrætti í kvóta á helstu upp- sjávarfisktegundum. Loðnuvertíðin var vart svipur hjá sjón miðað við árið á undan og þá voru aflaheim- ildir í norsk-íslensku síldinni skert- ar töluvert á milli ára. Þá var frysti- togurum fækkað um tvo; Venus HF var seldur úr landi og Helgu Maríu AK var breytt í ísfisktogara. Afli og aflaverðmæti frystitogaranna dróst því saman á meðan aukning varð hjá ísfisktogurunum. mm Upp úr hádegi mánudaginn 29. desember rofnaði allt ljósleiðara- samband við Snæfellsnes þegar ljósleiðarinn fór í sundur í Kaldá í Kolbeinsstaðarhreppi. Af þess- um sökum urðu verulegar trufl- anir á símasambandi, útsending- um útvarps, sjónvarps og ekki síst var ómögulegt að ná nokkru net- sambandi í tölvum. Netsamband komst ekki aftur á fyrr en langt var liðið á morgun daginn eftir. Bæjar- ráð Grundarfjarðar ályktaði vegna þessa rofs á þjónustunni að rof af þessum toga valdi gríðarlegum óþægindum fyrir einstaklinga og ekki síður fyrirtæki, sem eru meira og minna háð góðu netsambandi í starfsemi sinni. „Ekki verður hjá því komist við atvik eins og þetta að minna á mikilvægi þess að leit- að verði leiða til þess að lágmarka möguleika á því að óhöpp af þess- um toga geti átt sér stað. Í því sam- bandi er mikilvægt að unnið verði að því að tenging Snæfellsness með ljósleiðara verði gerð örugg- ari, m.a. með tengingu frá norðan- verðu nesinu yfir í Dali og þannig komið á hringtengingu ljósleiðara- tengingar.“ mm Ingunn AK við bryggju á Akranesi. Skipið aflaði mest í tonnum talið á liðnu ári, eða tæplega 37 þúsund tonn. Þerney RE 101 kom hins vegar með mest verðmæti að landi, eða fyrir vel yfir 2,4 milljarða króna. Ljósm. mþh. Aflaverðmæti skipa HB Granda var 15,2 milljarðar króna Bæjarráð vill hringtengingu ljósleiðara við Snæfellsnes Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð- arsveitar var klukkan 15 í gær kallað út vegna elds í húsnæði Jökulstáls við Hafnargötu 16 á Akranesi. Þar reka tveir ungir menn vélsmiðju. Nokkurn reyk lagði út um dyr verk- stæðishússins og fóru slökkviliðs- menn fljótlega inn og réðu niður- lögðum eldsins. Verið var að kanna eldsupptök og reykræsta húsið þeg- ar Skessuhorn var sent í prentun. Enginn slasaðist. Ljóst er að ein- hverjar skemmdir voru vegna sóts og reyks innandyra. mþh Eldur í húsnæði Jötunstáls á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.