Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2015, Síða 12

Skessuhorn - 07.01.2015, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2015 Nú þegar árið 2014 er á enda runn- ið er vel við hæfi að líta aðeins um öxl. Skessuhorn leitaði til nokkurra valin- kunnra Vestlendinga og spurði þá hvað þeim þótti standa upp úr á árinu sem leið. Einnig var fólkið spurt að því hvaða væntingar það hefði til nýja ársins. Svör- in létu ekki á sér standa og af eftirminni- legum atburðum má nefna nýja vináttu, barnsfæðingar, eldgosið í Holuhrauni og sitthvað fleira. Veðurfar ársins situr greinilega í Vestlendingum, enda rigndi meira og minna allt sumarið frá og með þjóðhátíðardeginum. Myndlistasýningar, ný vinátta og garðyrkja „Ég tók þátt í tveimur samsýningum í Boston á árinu og var viðstödd opnunina á þeim. Þar gisti ég hjá nýrri franskri vinkonu sem ég kynntist í sumar. Hún er listakona og það var mikið ævintýri. Ég hef aldrei áður komið til borgarinnar og þetta var mjög fín ferð. Það var gaman að komast inn í listalífið þar og kynnast fólki úr listageiranum,“ segir Anna Guðrún Torfadóttir myndlistarkona í Hval- fjarðarsveit. „Ég missti föður minn á árinu og það var erfitt. Hann var orðinn fullorð- inn en var við góða heilsu og því var þetta áfall og ég er enn að vinna úr því. Ég er að fara í gegnum dótið hans núna og var ein- mitt að gera jólakortin um daginn þar sem ég notaði útskurðarverk sem hann gerði. Það er lok á gömlum saumakassa sem sómir sér vel sem jólakort.“ Anna varð sextug á árinu og hélt heilmikla veislu í Fannahlíð af því tilefni. „Þar var heilmikill glaumur og gleði. Veislan var eins og barnaafmæli en það voru aldrei haldin barnaafmæli fyrir mig þegar ég var lít- il. Ég á afmæli um mitt sumar og ég var allt- af í sveit á afmælisdaginn,“ útskýrir Anna. Þá nefnir hún að garðvinnan hafi verið ofarlega á baugi í sumar. „Það var mikið unnið í garð- inum en þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem ég hef stóran garð. Ég plantaði niður ávaxta- trjám og berjarunnum í fyrsta sinn. Þá hitti ég Jón Guðmundsson garðyrkjugúru á Akra- nesi á árinu, fékk góð ráð og keypti bókina hans. Það er eitt af því sem stendur uppúr,“ rifjar hún upp. Anna segist hafa vorkennt hjólreiðamönnum í sumar enda rigndi mik- ið. „Eitt sinn var ég á leiðinni á Korpúlfs- staði með nýfenginn kettling sem var í búri í framsætinu. Rétt áður en ég kem í göngin, sé ég hjólreiðamann. Ég vorkenndi aumingj- ans manninum og stoppaði. Hann var ósköp sætur að sjá svo ég bauð honum með en það fylgdi með í kaupunum að hann yrði að sitja undir kettlingnum, sem mjálmaði alla leið- ina. Eftir kynningar og spjall kemur upp úr dúrnum að hann er myndlistarmaður búsett- ur í New York og ég var eina manneskjan sem hafði stoppað til að bjóða honum far. Hann var hundblautur, tjaldið og allt, eftir hremm- ingar á tjaldstæðinu í Borgarnesi þar sem hann vaknaði á floti um morguninn. Ég bauð honum á Korpu og hann hjólaði þaðan í bæ- inn eftir að hafa skoðað hjá mér vinnustof- una. Ég fékk svo vinabeiðni og póst á Facebo- ok frá foreldrum hans, sem voru grátklökk af þakklæti að hafa bjargað syninum sem hafði loks komið heill heim eftir svaðilfarir á Ís- landi og boð til Florida í heimsókn þegar ég vildi. Og ég er enn í sambandi við hann eftir þessa stuttu ferð.“ Nýja árið leggst vel í Önnu. „Væntingarn- ar sem ég hef til ársins er að koma mér í betra form. Nú verður tekið á því að vinna í þeim málum, það er öruggt,“ segir Anna að end- ingu. Barnsfæðing og flutningar Sr. Páll Ágúst Ólafsson, sóknarprestur á Stað- arstað segir árið 2014 hafa verið eftirminni- legt. „Við hjónin eignuðumst lítinn strák í maí, Ólaf Pál. Það stendur algerlega upp- úr ásamt flutningunum á Staðarstað. Ásamt þeim fjölmörgu áskorunum sem því tengjast, bæði í lífi og starfi,“ segir sr. Páll Ágúst. Árið 2015 leggst ágætlega í sóknarprest- inn. „Það er mikið að gerast í sveitinni, fólkið hér er svo jákvætt og viljugt. Ef maður sýnir fólki áhuga þá fær maður áhuga á móti. Svo eiga tvær kirkjur hérna í prestakallinu stóraf- mæli á árinu. Hellnakirkja og Staðarstaðar- kirkja verða báðar 70 ára og það verður eitt- hvað skemmtilegt í kringum það. Þar að auki er verið að vinna í allskonar framkvæmdum í ýmsum kirkjum.“ Flutti heim í sveitina Kristján Guðmundsson verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Vesturlands var einn af þeim Vestlendingum sem Skessuhorn hafði sam- band við. Hann eignaðist sitt fyrsta barn á árinu sem er að líða og þarf það ekki að koma á óvart að það hafi verið hápunktur ársins hjá honum. „Ég eignaðist lítinn strák á árinu, Guðmund Móberg. Það stendur uppúr á árinu. Einnig fluttum við fjölskyldan heim í sveitina á þessu ári. Ég er nú kominn á mín- ar æskuslóðir, Hvanneyri. Annars unnu strák- arnir mínir í Arsenal loksins til verðlauna og mér finnst það einnig standa uppúr.“ Kristján hlakkar til ársins 2015 en þá munu ný verkefni taka við í starfi og leik. „Árið 2015 verður vonandi jafn skemmtilegt og árið sem var að líða. Ég tek við sem forstöðu- maður Markaðsstofu Vesturlands á nýju ári og hlakka mikið til þess. Svo er að ala barnið vel upp, þannig að þar er eins gott að standa sig,“ segir Kristján. Útgáfa plötu og rigningin „Góðar viðtökur við plötunni minni „Kalt“ standa upp úr á árinu sem er að líða,“ seg- ir Borgfirðingurinn Heimir Klemenzson um árið 2014. Hann bætir því við að honum líki veðrið sem var framan af í desembermánuði. „Snjórinn í desember, maður er orðinn svo góðu vanur en nú kom allt í einu vetur. Það kom eiginlega aldrei sumar á þessu ári. Það rigndi mikið og það var erfitt að heyja. Heyin voru ekki jafn góð og maður hefði viljað.“ Nýtt ár leggst vel í Heimi. „Það þýðir ekk- ert annað. Ég er í FÍH og ætla að halda áfram að nema á djasspíanó þar. Svo verða vonandi fleiri skemmtileg tónlistarverkefni sem mað- ur tekur þátt í. Ég ætla að reyna að spila svo- lítið meira og fylgja plötunni eftir. Svo fer maður örugglega í stúdíó og tekur upp meira efni, þó það verði ekki heil plata. Það er mitt áhugamál, að fara í stúdíó,“ segir Heimir. Að endingu kemur hann með heilræði. „Hrós- um því sem okkur finnst vel gert. Hrós bæt- ir og kætir.“ Rigningin kom sér vel Ásdís Melsted í Búðardal segir árið hafa verið gott. „Það sem stendur mest upp úr er að ég tók við rekstri Leifsbúðar í apríl ásamt vin- konu minni,“ segir hún aðspurð um hápunkta ársins. „Það gekk mjög vel, rigningin í sumar kom sér vel fyrir okkur. Hún hafði þau áhrif að fólkið kom inn,“ segir hún og hlær. Ásdís nefnir einnig að hún hafi byrjað í nýju starfi í haust. „Ég er farin að keyra sjúkrabílinn í Búðardal. Svo kom dóttir mín heim frá Arg- entínu í júlí, eftir að hafa verið þar úti í eitt ár sem skiptinemi.“ Ásdís horfir björtum augum til nýja ársins. „Nýja árið leggst mjög vel í mig. Ég held að þetta verði fínt ár.“ Hún er líklega ein af fáum sem vill fá enn eitt rigningarsumarið á Vest- urlandi. „Það væri fínt. Þá er nóg að gera hjá okkur!“ Svaf af sér áramótin „Árið 2014 hófst með heiftarlegri flensu og ég svaf af mér áramótin og skaupið að mestu í hitamóki og fór illa undirbúin og með ólund inn í nýtt ár,“ segir Guðrún Bjarnadóttir eig- andi Hespu í Borgarfirði. „Á landsvísu man ég fyrst eftir hræðilegu slysi í Norðurárdaln- um í janúar. Tvö ungmenni létust en um- ræðan sem fylgdi á eftir um líffæragjöf var ómetanleg og ótrúlegt að eitthvað gott getið leitt af svona hræðilegu slysi,“ bætir hún við. Guðrún segir að fleira af landsvettvangi sem standi uppúr sé gosið í Holuhrauni. „Og ban- setta rigningin sem var að gera út af við mig í mínu starfi í sumar!“ Úr hennar persónu- lega lífi segir hún að það standi uppúr að hún losnaði loksins við margendurnýtt áramóta- heit, sem var að klára meistararitgerð sína við Landbúnaðarháskólann. „Sama dag og ég varði ritgerðina fékk ég styrk frá Menningar- ráði Vesturlands til að byggja upp fyrirtæk- ið mitt Hespuhúsið slf. á sviði jurtalitunar. Sumarið og það sem eftir var ársins var ævin- týralegt með miklum gestagangi í Hespuhús- ið, ferðalögum innanlands sem utan vegna sölu á bandi og fræðslu. Til dæmis fór ég á prjónahátíð í Kaupmannahöfn, Handverk og hönnun í Ráðhúsinu og á Handverkshátíð- ina á Hrafnagili þar sem ég fékk viðurkenn- ingu fyrir fallegasta básinn sem var að sjálf- sögðu einn af hápunktum ársins hjá mér,“ segir hún. Aðspurð um komandi ár segir hún að um áramótin muni hún hefja nám til kennslurétt- inda við Háskólann á Akureyri í fjarnámi en samhliða því muni hún halda áfram að byggja upp Hespuhúsið, kenna við Landbúnaðarhá- skólann og halda námskeið í jurtalitun í Dan- mörku. „Mér sýnist stefna í að næsta ár hefjist ekki með ólund heldur mikilli gleði og þakk- læti fyrir góða vini, góða heilsu og tilhlökk- un yfir komandi verkefnum,“ segir Guðrún að lokum. Eldgosið í Holuhrauni „Þegar ég lít yfir liðið ár hér heima í fljótu bragði stendur upp úr hið gríðarstóra eld- gos í Holuhrauni sem allir virðast vera bún- ir að gleyma. Eldgosið sýnir eiginlega best hvað landið okkar er rosalega stórt, stór hluti landsmanna verður varla var við það,“ segir Heiðar Lind Hansson sagnfræðingur. Hann nefnir einnig að honum hafi fundist ein- kennandi fyrir árið hversu mikið var að gera í ferðaþjónustunni. „Vegna þessa er óskandi að ráðamenn finni viðunandi lausn á næstu miss- erum til að byggja upp gott aðgengi og verja náttúruperlur okkar, sem helst draga ferða- mennina hingað til lands,“ segir hann. Heið- ar segir að þegar liðið ár úti í heimi sé skoð- Hvað stóð uppúr á árinu 2014? Anna G. Torfadóttir. sr. Páll Ágúst Ólafsson. Kristján Guðmundsson hjá Markaðsstofu Vestur- lands. Heimir Klemenzson með diskinn sinn sem kom út á árinu. Ásdís Melsted staðarhaldari í Leifsbúð. Guðrún Bjarnadóttir í Hespu. Heiðar Lind Hansson.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.