Skessuhorn


Skessuhorn - 23.06.2015, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 23.06.2015, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 20152 Um 17 metra langa langreyði rak að landi í vík í Stakksey á Breiða- firði síðastliðinn laugardagsmorg- un. Eyjan er rétt norðan við Stykk- ishólm og því í góðu „lyktarsam- bandi“ við íbúa í Hólminum. Lík- legt er talið að hvalurinn hafi strandað og drepist inni í víkinni um morguninn. Félagar úr björg- unarsveitinni Berserkjum í Stykk- ishólmi fóru á laugardagskvöld- ið ásamt starfsfólki Náttúrustofu Vesturlands til að skoða hvalinn. Þá voru undirbúnar aðgerðir til að ná hræinu út á næsta flóði til að koma í veg fyrir lyktar- og grútar- mengun í Stykkishólmi og mögu- leg neikvæð áhrif á fuglalíf. Björg- unarsveitin Berserkir í Stykkis- hólmi undirbjó verkið sem ráð- ist var í á flóði á sunnudagskvöld- ið. Til aðstoðar var fenginn drátt- arbáturinn Björg frá Lífsbjörgu í Snæfellsbæ. Aðgerðin tókst prýði- lega og var hræið dregið á haf út og sökkt þar. Róbert A Stefánsson líffræðing- ur segir óvíst hver orsök þess sé að hvalurinn synti í land í Stakksey. „Líklegasta skýringin er einhvers konar veikindi eða meiðsl. Sjald- gæft er að skíðishvalir strandi lif- andi og einnig er mjög óvenju- legt að sjá langreyði við Stykkis- hólm að sumarlagi, ekki síst þar sem langreyður heldur sig einkum á svæðum með meira en 400 metra dýpi,“ skrifar Róbert á Facebook síðu sína. Starfsfólk Náttúrustofu Vesturlands tók sýni úr dýrinu, sem send verða til Hafrannsókna- stofnunar. Meðfylgjandi myndir tók Sum- arliði Ásgeirsson, ljósmyndari í Stykkishólmi, sem ásamt vöskum hópi kom að því að ná hræi hvals- ins úr víkinni. mm Bæjarhátíðin Brákarhátíð verður haldin í sjö- unda sinn í Borgarnesi næstkomandi laug- ardag. Þar verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti Íslands, verður einn af gest- um hátíðarinnar. Hún verður viðstödd gróð- ursetningu við íþróttavöllinn, en 35 ár eru síðan hún var kjörin forseti og af því tilefni verður gróðursett um allt land á laugardag. Það spáir vel um allt land næstu daga. Á miðvikudag og fimmtudag verða austlægar áttir, 3 - 8 m/s, en allvíða hafgola. Skýjað að mestu sunnan- og austanlands en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti verður á bilinu 7 til 17 stig, svalast austanlands. Á föstudag verður áfram austlæg átt, 5 - 13 m/s, hvassast syðst. Bjartviðri verður í flestum landshlutum, síst suðaustanlands og hiti verður 10 til 20 stig, hlýjast norðan- og vestanlands. Á laugar- dag og sunnudag spáir austlægri átt, skýjað verður með köflum sunnan- og austantil en annars bjart að mestu. Áfram hlýtt í veðri. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hver er mesti sparifatadagurinn í þínum huga?“ Langflestir, eða 75,61% sögðu að aðfangadagur jóla væri mesti sparifata- dagurinn. 13,41% svöruðu „jóladagur“ og 3,41% „17. júní“. „Einver annar dagur“ svör- uðu 2,44% en aðrir hátíðisdagar fengu und- ir 1% svara. Í þessari viku er spurt: Ert þú með ofnæmi fyrir gróðri? Björgunarsveitarmenn og aðrir sem komu að því að fjarlægja hræ langreyðar úr vík- inni við Stakksey rétt norðan Stykkishólms á sunnudaginn eru Vestlendingar vikunnar. Þeir komu örugglega í veg fyrir spillt and- rúmsloft þegar líður á sumarið. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Nýr skólastjóri ráðinn GRUNDARFJÖRÐUR: Sigurður Gísli Guðjónsson hefur verið ráðinn skóla- stjóri Grunnskóla Grund- arfjarðar og tekur við af Gerði Ólínu Steinþórsdótt- ur í lok júlí. Sigurður Gísli hefur kennaramenntun og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands og jafnframt við- bótardiplómu í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri. Hann hefur sinnt umsjónarkennslu og var aðstoðarskólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd. Ennfremur var hann deild- arstjóri og staðgengill skóla- stjóra í Víkurskóla síðastlið- in tvö ár. Sambýliskona Sig- urðar Gísla er Halla Karen Gunnarsdóttir og eiga þau tvo syni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Grundar- fjarðarbæjar. -grþ Sauðfjárbænd- ur segja ástand- ið alvarlegt LANDIÐ: Nýverið sendu Landssamtök sauðfjárbænda og Matvælastofnun út ítar- lega spurningakönnun til allra sauðfjárbænda vegna óvenjumikils óútskýrðs ær- dauða í vetur og vor. „Nið- urstöðurnar eru sláandi og sýna glöggt hversu alvarlegt ástandið er,“ segir í tilkynn- ingu frá LS. Sauðfjárdauð- inn hefur orðið á fjölmörg- um bæjum víða um land, að því er virðist óháð gæðum heyja. „Inngrip bænda og aukin fóðurbætisgjöf hefur ekki skipt sköpum. Strax upp úr áramótum fóru bænd- ur að taka eftir einkennum hjá fénu, það hélt illa hold- um en hafði þó góða matar- lyst. Þrátt fyrir að bændur hafi strax gripið til ráðstaf- ana með aukinni fóðurbætis- gjöf o.þ.h., virtist það koma fyrir lítið og margt fé drapst, mest í kringum sauðburð. Um hádegið í gær höfðu 223 bændur svarað könnuninni á Bændatorginu. Margir þeirra hafa misst fleira fé en eðlilegt getur talist. Oft miklu fleira. „Ástandið á einstaka bæjum er mjög alvarlegt. Af þessum 223 svörum sem komin eru má ráða að ærdauðinn í vet- ur og vor er án nokkurs vafa óeðlilega mikill. Hjá þessum bændum hafa 2.741 ær drep- ist í vetur og vor, en það jafn- gildir 13 ám á bæ að meðal- tali. Þetta er meira en tvöfalt hærri tala en vorið á undan. –mm Langreyði rak á land við Stakksey á Breiðafirði Hvalurinn í víkinni við Stakksey. Liðsmenn hjá embætti Lögreglunn- ar á Vesturlandi komu saman á vor- dögum og var m.a. stillt upp í hóp- myndatöku. Eins og oftast þá vantar nokkra í fullskipað lið en þarna eru engu að síður allflestir starfsmenn embættisins saman komnir. Óhætt er að segja að við Vestlendingar séum í góðum höndum að hafa þessa vösku sveit til að gæta laga og réttar. Meðfylgjandi mynd er af heimasíðu embættisins. mm Lögreglan á Vesturlandi í hópmyndatöku Búið að koma böndum á skepnuna. Þegar á sunnudaginn var ljóst hvert stefndi með lyktarmengun. Hér sést staðurinn merktur á kort þar sem hvalinn bar að landi. Aðstæður á strandstað gerðu það vandaverk að koma hræinu út. Það gekk þó vel. Hér er Björgin með hvalinn í togi áleiðis á haf út.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.