Skessuhorn - 23.06.2015, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015 11
Brákarhátíð verður haldin í Borg-
arnesi í sjöunda sinn laugardag-
inn 27. júní næstkomandi. „Dag-
skráin hefst meðal annars á morg-
unverði og boltafjöri fyrir krakk-
ana við íþróttahúsið. Það verður
svona æskulýðs- og ungmenna-
félagsbragur á þessum fyrsta dag-
skrárlið,“ sagði Eiríkur Jónsson,
einn skipuleggjenda hátíðarinn-
ar, þegar blaðamaður Skessuhorns
hitti hann í Skallagrímsgarði í lið-
inni viku. Að sögn Eiríks verða all-
ir hefðbundnir dagskrárliðir á sín-
um stað. Til dæmis víkingahátíð í
Skallagrímsgarði þar sem víking-
ar berjast og markaði verður sleg-
ið upp eins og verið hefur undan-
farin ár.
Með Eiríki í för var Sigríð-
ur Júlía Brynleifsdóttir, formaður
Skógræktarfélags Borgarfjarðar, en
félagið leikur stóran þátt í hátíð-
inni í ár. Þannig er nefnilega mál
með vexti að 27. júní munu skóg-
ræktarfélög, ásamt sveitarfélögum
um allt land, minnast þess að 35 ár
eru liðin frá því Vigdís Finnboga-
dóttir var kjörin forseti Íslands.
„Hún hafði það fyrir sið í forseta-
tíð sinni að gróðursetja alltaf þrjú
birkitré þar sem hún kom. Eitt fyr-
ir stelpurnar, eitt fyrir strákana og
eitt fyrir ófæddu börnin. Því verða
gróðursett þrjú tré hjá hverju skóg-
ræktarfélagi um allt land á laugar-
daginn,“ segir Sigríður. Frú Vig-
dís mun sjálf mæta upp í Borgar-
nes og verða viðstödd gróðursetn-
inguna í hádeginu á laugardag-
inn. „Auðvitað kom upp sú hug-
mynd að það væri gaman ef Vig-
dís gæti komið og verið viðstödd.
Kjartan Ragnarsson frétti af því,
hringdi í Vigdísi og hún samþykkti
að koma og taka þátt í þessu,“ seg-
ir Sigríður. „Þessi tré verða gróð-
ursett við íþróttavöllinn. Við gáf-
um UMSB hundrað tré og gróður-
settum á 100 ára afmæli sambands-
ins og okkur þykir því við hæfi að
halda áfram að planta trjám á þeim
stað,“ bætir hún við.
„Mér þykir dálítið skemmtilegt
að gróðursetningin sé hluti af há-
tíðinni í ár, það gefur henni enn
meiri ungmennafélagsblæ. Í gamla
daga voru alltaf gróðursett tré á
landsmótum og mörgum öðrum
viðburðum á vegum ungmenna-
félaganna. Það verður gaman að
rifja upp þessi tengsl. Þetta verður
svona eins og pínulítið landsmót
með gróðursetningu,“ segir Eirík-
ur og brosir.
Jákvæður rígur
milli hverfa
Á mörgum bæjarhátíðum vítt og
breitt um landið er til siðs að skipta
bænum upp í lið eftir hverfum sem
hvert fær sinn einkennislit. Fólk
skreytir svo garða sína og jafnvel
sjálft sig í litum liðs síns. Brákarhá-
tíð er þar engin undantekning og að
sögn Eiríks og Sigríðar er oft og tíð-
um mikið í skreytingarnar lagt. „Það
er mikill metnaður í öllum hverfum
fyrir skreytingunum. Ég veit til þess
að það hafa verið haldnir vinnu-
fundir í vikunni þar sem lagt var á
ráðin um skreytingar,“ segir Eirík-
ur og hlær við. En er þá mikill ríg-
ur milli hverfa á meðan hátíðinni
stendur? „Já, það er mikill rígur en
mjög jákvæður rígur. Við tilheyrum
nú bæði bláa hverfinu. Það er mik-
ill metnaður fyrir þessu hjá okkur
og ég veit að það gildir um önnur
hverfi líka,“ bætir hann við og Sig-
ríður tekur í sama streng.
Að lokinni Víkingahátíð og
mörkuðum í Skallagrímsgarði
verður gert stutt hlé á dagskrá
þar til öll hverfin munu hittast við
dvalarheimilið Brákarhlíð. „Þar
verður leikið á harmónikkur fyr-
ir heldri borgarana okkar, dans-
að og sungið áður en allir ganga
saman á kvöldvökuna í Englend-
ingavík,“ segir Eiríkur. Kvöldvak-
an stendur til 22 um kvöldið og á
miðnætti verður ball með Skímó í
Hjálmakletti. „Þar geta foreldrar
reimað á sig dansskóna og fengið
sér mömmudjús og pabbadjús og
dansað fram á nótt,“ segir Eiríkur
að lokum, glaður í bragði.
kgk
Frú Vigdís Finnbogadóttir verður gestur Brákarhátíðar
Landnámsmennirnir hafa látið sjá sig á hátíðinni í gegnum tíðina sem og Brák
sjálf. Ljósm. úr safni.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, formaður Skógræktarfélags Borgarfjarðar og
Eiríkur Jónsson, einn skipuleggjenda Brákarhátíðar.
Víkingabardagi í Skallagrímsgarði á Brákarhátíð. Ljósm. úr safni.
BRÁKARBALL
23:00-03:00
Hjálmaklettur
SKÍTAMÓRALL LEIKUR FYRIR DANSI
18 ÁRA ALDURSTAKMARK
Miðaverð:
2500 kr. í forsölu
3000 kr. við hurð
Forsala í Olís